24 stundir


24 stundir - 18.12.2007, Qupperneq 20

24 stundir - 18.12.2007, Qupperneq 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2007 24stundir Eftir Andrés Inga Jónsson andresingi@24stundir.is Mikið verk er framundan eftir að samkomulag náðist á loftslagsráð- stefnu Sameinuðu þjóðanna á Balí á laugardaginn sem leið. Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráð- herra segir að niðurstaða þessarar tveggja vikna ráðstefnu hafi látið bíða eftir sér. „Það hékk á bláþræði að sam- komulag næðist. Ráðstefnunni átti að ljúka á föstudeginum, en það var haldið áfram á laugardag svo það mætti ljúka þessu. Þetta leit ekki vel út á lokasprettinum en sem betur fer tókst að ná samkomulagi um vinnuáætlun til næstu tveggja ára með þátttöku allra ríkjanna með aðild að loftslagssamningn- um,“ segir Þórunn. Upphafið að upphafinu Meginmarkmið ráðstefnunnar á Balí var að fá ríki heims að samn- ingaborðinu. Um tíma leit ekki út fyrir að Bandaríkin myndu sam- þykkja Balí-vegvísinn. „Það er aðalatriði í þessu máli að hafa Bandaríkin með og líka þró- unarlöndin, ekki síst stóru þróun- arlöndin eins og Kína og Indland.“ Til að liðka fyrir samningavið- ræðunum var bætt inn ýmsum ákvæðum sem sneru sérstaklega að því að hvetja þróunarríkin til að taka þátt. Þegar ljóst var að þau yrðu með fylgdu Bandaríkin fast á hæla þeirra. Ólík ábyrgð Yvo de Boer, yfirmaður loftslags- stofnunar Sameinuðu þjóðanna, fagnar því að á Balí hafi svokall- aður „Berlínarmúr loftslagsbreyt- inga“ fallið. Það nefnir de Boer þá afstöðu sem hann segir hafa ríkt, að ábyrgðin á umbótum í loftslags- málum liggi hjá auðugari þjóðum heims. Í Balí-vegvísinum er áhersla lögð á að öll ríki heims beri ábyrgð á þróun loftslagsmála, hvort sem um er að ræða rík iðnríki eða fátæk þróunarríki. Ábyrgðin er þó ólík, þar sem verkefni iðnríkjanna snúa að því að minnka losun gróður- húsalofttegunda en verkefni þró- unarríkjanna eru meira í ætt við forvarnastarf. Siðferðileg skylda „Það gefur augaleið að þau lönd, sem hafa mengað mest og losað mest af gróðurhúsalofttegundum frá því að iðnbyltingin hófst, til- heyra næstum því öll Vesturlönd- um. Iðnríkin bera mikla ábyrgð. Þau losa mikið núna og bera líka sögulega ábyrgð og það er einfald- lega hin siðferðilega hlið þessara mála sem krefst þess að tekið sé til- lit til sögunnar í þessu,“ segir Þór- unn. Þórunn segist gleðjast yfir því að samkomulag skuli hafa náðst og bætir við: „Ég er stolt af því að Ís- lendingar voru á Balí-fundinum í hópi þeirra landa sem sýndu frum- kvæði, forystu og ábyrgð í lofts- lagsmálunum.“ Vegvísirinn liggur fyrir  Samkomulag náðist um vegvísi að framtíðarsamkomulagi í lofts- lagsmálum  Ábyrgð allra ríkja að vinna að loftslagsmálum ➤ Kýótó-bókunin var samþykktárið 1997. Framundan er tveggja ára samningalota vegna arftaka hennar. ➤ Lögð verður áhersla á að látaöll ríki heims bera ábyrgð í loftslagsmálum, jafnt auðug iðnríki sem fátækari þróun- arríki. LOFTSLAGSMÁL Maraþonfundur Fulltrúar 190 ríkja samþykktu vinnuáætlun í loftslagsmálum til næstu tveggja ára á lokafundi Balí-ráðstefnunnar. 24stundir/AFP HELSTU ÁLYKTANIR LOFTSLAGSÞINGSINS Á BALÍ Samningaferli Á fundi í Kaupmannahöfn árið 2009 á að ná nýju allsherjarsamkomulagi um arftaka Kýótó- bókunarinnar, sem fellur úr gildi í lok árs 2012. Loftslagsnefnd SÞ Mið verður tekið af tilmælum vísindanefndar Sam- einuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC). Verkaskipting Iðnríki munu leita leiða til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda og þróunarríki munu forðast að láta aukinn hagvöxt haldast í hendur við aukna losun. Aðlögunarsjóður Sérstakur sjóður verður stofnaður til að auðvelda þróunarríkjum að takast á við afleiðingar loftslagsbreytinga. Yfirfærsla tækni Iðnríki munu auka þróun og notkun loftslags- vænnar tækni og auðvelda aðgengi þróunarríkja að henni. Skógareyðing Baráttan gegn eyðingu regnskóganna verður efld og samþætt loftslagssamningi Sameinuðu þjóðanna. HEILL HEIMUR AF SKEMMTUN Opið sunnudaga til fimmtudaga 11.00 -24.00 Opið föstudagaoglaugardaga 11.00 - 02.00 Auglysingasimi Katrin s.510 3727 / kata@24stundir.is KOLLA s. 510 3722 / kolla@24stundir.is Heilsa Serblad 24 stunda 4.januar 2008

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.