24 stundir - 18.12.2007, Qupperneq 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2007 24stundir
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@24stundir.is
Jólaundirbúningur hefst um
miðjan desember þegar fólk
skreytir heimili sín og byrjar að
spila jólatónlist, bæði á mállýsku
héraðsins Konkani og ensku. Á
aðfangadagskvöld fer fólk í mið-
næturmessu en að henni lokinni
er borðuð létt máltíð áður en
haldið er á ball. Þar er bjór, vín
og indverskur kókos- og kas-
júhnetulíkjör í boði og skemmtir
fólk sér fram undir morgun.
Daginn eftir heimsækir fólk
hvert annað með mat og gefur
þeim sem minna eiga með sér.
Hlaðborð af réttum
Yfir jólin segir George að
svínakjötsréttir séu vinsælir á
svæðinu, t.d. svína-soapotel, sem
er sterkur réttur búinn til úr
rauðu chili og vínediki. Á heim-
ili George er einnig steikt önd á
borðum, marineruð í svokallaðri
garamasala-kryddblöndu, þar
sem blandað er saman engifer,
hvítlauk, sítrónusafa og lárvið-
arlaufum. Einnig eru eldaðar
rækjur með lauk og tómötum en
rækjurnar eru marineraðar í sí-
trónusafa, salti og túrmerik. Að
auki eru linsubaunaréttir og aðr-
ir grænmetisréttir á borðum.
George gefur hér lesendum
uppskrift að Dodol, indverskum
eftirrétti úr kókosmjöli og
pálmasykri. Kókosmjöl er mikið
notað í matargerðina þar sem
það er auðfáanlegt og ódýrt hrá-
efni og segir George eftirréttinn
vera vinsælan á veitingastaðnum.
Auk þess gefur hann uppskrift
að rækjurétti með tómötum og
lauk og steiktri önd.
Dodol
Eftirréttur fyrir 8 manns
250 g hrísgrjón, ósoðin
4 bollar kókosmjöl
1 dós þykk, hrein kókosmjólk
375 g Jaggery (hreinn kók-
ossykur)
½ bolli kasjúhnetur, saxaðar
fínt
1 tsk. smjör
1 tsk. vanilludropar
Aðferð:
Látið hrísgrjónin liggja í bleyti
yfir nótt, hellið vatninu af og
malið fínt í kvörn eða mat-
vinnsluvél.
Blandið öllu vel saman í mat-
vinnsluvél. Hellið blöndunni í
djúpa pönnu og sjóðið við-
stöðulaust á meðalhita þar til
blandan hefur rýrnað um helm-
ing og byrjar að losna frá hliðum
pönnunnar. Hellið henni þá í fat
og kælið. Borið fram í þykkum
sneiðum, annaðhvort kalt eða
volgt, en þá er gott að hafa van-
illuís með.
Rækju-masala frá Góa
Forréttur fyrir 8 manns
1 kg stórar rækjur (risarækj-
ur)
120 ml (½ bolli) jarðhnetuolía
90 g (½ bolli) laukur
salt eftir smekk
Mauk:
10 rauð, stór chili-piparaldin
(veikustu sem fást). (Piparinn
fæst þurrkaður í Mai Thai á
Laugavegi.)
(Notið minna af chili ef rétt-
urinn á ekki að vera sterkur.)
20 g (2 msk.) cummin-fræ
(ekki kúmen, indverskt cumm-
in)
5 g (1 tsk.) túrmerik
15 negulnaglar
1 kanillengja, 2,5 cm
30 g (3 msk.) ferskt engifer
90 ml (6 msk.) maltedik
Aðferð:
Saxið engiferið gróft, blandið
öllum hráefnunum saman í mat-
vinnsluvél. Bætið u.þ.b. 90 ml af
vatni saman við. Maukið vel í
matvinnsluvélinni. Hitið olíuna á
pönnu, saxið laukinn mjög fínt
og steikið létt við vægan hita þar
til laukurinn verður gylltur. Bæt-
ið maukinu saman við laukinn á
pönnunni, steikið létt þar til feit-
in skilur sig aðeins frá maukinu
og lauknum (u.þ.b. þrjár mín-
útur) Bætið rækjunum og salti á
pönnuna og eldið þar til rækj-
urnar eru tilbúnar, sem tekur
um mínútu.
Pönnusteikt kryddönd
Aðalréttur fyrir 8 manns
2 kg andabringur
Marinering:
16 hvítlauksrif, meðalstærð
2 msk. fínt saxað, ferskt engi-
fer
2 msk. sítrónusafi
salt eftir smekk
olía til steikingar
10 piparkorn
2,5 cm kanilstöng
6 þurr, rauð, stór chili-
piparaldin, skorin í bita.
Aðferð:
Blandið átta hvítlauksrifum
saman við engiferið og sí-
trónusafann og búið til mauk.
Blandið öðrum hráefnum saman
við. Nuddið marineringunni vel
í andabringurnar og látið bíða í
sex klst.
Skerið andabringurnar í stóra
bita (má hafa þær óskornar) og
pönnusteikið við meðalhita, haf-
ið lokið á pönnunni á meðan.
Steikið eftir smekk, en á Ind-
landi er öndin alltaf vel steikt.
24 stundir/Frikki
Rækjur, önd og svínakjötsréttir
Indverskur jólamatur
er fjölbreyttur
➤ Hefur búið hér í tæp sjö ár ogrekur veitingastaðinn Indian
Mango sem var opnaður árið
2005.
➤ Segir að svínakjötsréttir séuvinsælir á Indlandi yfir jólin.
➤ Kemur frá kaþólsku svæði áIndlandi þar sem jólin eru
haldin hátíðleg.
➤ Býður Íslendingum indversk-an jólamatseðil.
GEORGE HOLMESGeorge Holmes gefur hér
uppskriftir að indversk-
um jólaréttum. Hann
kemur frá Góa á Indlandi
þar sem meirihluti íbúa
er kaþólskrar trúar og jól-
in því stór hátíð.
George Holmes er frá Góa
á Indlandi þar sem jólin eru
haldin hátíðleg.
Sérfræðingar
í saltfiski
Þjónustum verslanir, veitingahús o.fl.
Fyrir verslanir:
Til suðu:
saltfiskbitar blandaðir
gellur
gollaraþunnildi
Til steikingar:
saltfiskbitar blandaðir
saltfiskkurl
saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos)
gellur
Fyrir veitingahús – hótel – mötuneyti:
saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos)
saltfiskbitar blandaðir til suðu og steikingar
saltfiskkurl
Fyrir utan saltfiskinn þjónustum við sitthvað fleira, svo sem:
ýsuhnakka
rækjur
þorskhnakka
steinbítskinnar og bita
Sími: 466 1016
ektafiskur@emax.is
SJÁLFLÍMANDI HNÍFAPARASKORÐUR
Gullkistan- Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160.
Hjálpa þér að halda öllu í skorðum í skúffum.Einning sjálflímandi filt tilað
klæða skúffur og filt með verjandi efni svo ekki falli á silfur og silfur-
plett.Við eigum líka fægilög, fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa.
SENDUM Í PÓSTKRÖFU.
Kryddin frá Pottagöldrum eru ómissandi í matreiðsluna
Ilmur af jólum