24 stundir - 18.12.2007, Blaðsíða 34

24 stundir - 18.12.2007, Blaðsíða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2007 24stundir MENNING menning@24stundir.is a Ég er alltaf að útskýra fyrir fólki frá grunni hvað ég er að gera, en það fylgir þessu bara á meðan þetta er ekki þekkt fyrirbæri. Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@24stundir.is Út er kominn óvenjulegur dvd- diskur sem ber heitið Eyelove Ice- land, en það er hönnuðurinn og listakonan Sigrún Lýðsdóttir sem hefur veg og vanda af útgáfunni. Á disknum eru sex vídeóverk eftir Sigrúnu sjálfa og hafa þau öll afar þjóðlegt, íslenskt yfirbragð. Í fyrsta verkinu er horft yfir mosabreiðu og í því næsta birtist íslensk lopapeysa með hefðbundnu mynstri og á henni birtast alls kyns náttúruleg fyrirbæri á hreyfingu, eins og til dæmis snjókorn, hlaupandi hestar, stjörnur og fljúgandi fuglar. Í þriðja verkinu sést gamli bærinn í Reykjavík á mikilli hreyfingu þar sem húsin raðast öll upp á nýtt og snúast sum hver á hvolf. Íslenska sauðkindin birtist áhorfendum í allri sinni dýrð í næstsíðasta verk- inu og það síðasta er myndskeið af kraumandi goshver sem púslast saman. Að sögn Sigrúnar er hug- myndin á bak við diskinn sú að hann geti nýst sem hvert annað listaverk inni í stofu, ekki síst þegar gesti ber að garði. „Vídeóverk er í raun að mörgu leyti eins og mál- verk eða ljósmynd á hreyfingu, en fæstir sjá svoleiðis verk nema á sér- stökum listasýningum. Með þessu er hægt að myndskreyta stofuna með vídeóverkum,“ segir hún, en svona diskar hafa ekki verið gefnir áður út hér á landi. „Það eru nátt- úrlega til svipaðir diskar með arin- eldi og fiskabúrum, sem eru not- aðir til skrauts, en þetta er öðruvísi. Þessi diskur býður upp á þann möguleika að hvert og eitt verk sé endurtekið aftur og aftur eða að diskurinn sé spilaður í heild sinni, allt eftir smekk hvers og eins,“ bæt- ir hún við. Brjáluð hugmynd Vídeóverkin tóku alls um hálft ár í vinnslu og hafa ekki verið sýnd annars staðar, enda eru þau sér- staklega gerð fyrir þessa útgáfu. Sigrún segist þó hafa gengið með hugmyndina að disknum í magan- um nokkuð lengi. Er ekki óðs manns æði að fara út í svona útgáfu algjörlega á eigin veg- um? „Jú, það má auðvitað segja það, ekki síst af því að þetta hefur ekki verið gert áður. Ég er alltaf að út- skýra fyrir fólki frá grunni hvað ég er að gera, en það fylgir þessu bara á meðan þetta er ekki þekkt fyr- irbæri.“ Hverju verki fylgir íslensk tónlist sem Sigrún valdi sjálf í sam- starfi við 12 tóna, en það eru Ólöf Arnalds, Apparat Organ Quartett, Jóhann Jóhannsson, Evil Madness, Skúli Sverrisson og Paul Lydon sem eiga lögin á disknum. „Ég lærði sviðs-, búninga- og ljósahönnun úti í Bretlandi og hef unnið dálítið með tónlistarmönnum við gerð vídeósviðsmynda fyrir tónleika. Í þeim tilfellum hafa vídeóverkin verið gerð eftir tónlistinni en núna var það öfugt, ég valdi tónlistina eftir að ég var búin að gera verkin,“ segir hún. Framundan er áfram- haldandi vinna á þessu sviði. „Mig langar að gera fleiri svona diska þótt ég sé reyndar ekki byrjuð á þeim næsta, enda er nóg að gera við að fylgja þessum eftir og kynna hann fyrir fólki. En ég á líka eftir að læra meira í þessari tölvutækni sem þarf til þess að gera svona verk. Vonandi kemst ég á námskeið í Bretlandi á komandi ári. Það verð- ur heilmikil vinna að læra meira og halda mér við, enda breytist tækn- in mjög ört.“ Spennandi að vinna með vídeómiðilinn Sigrún Lýðsdóttir. Óvenjulegur dvd-diskur með þjóðlegu yfirbragði Vídeólistaverk heima í stofu Ung íslensk listakona hefur gefið út dvd-disk með samansafni vídeó- listaverka sem öll bera þjóðlegt yfirbragð. Verk- in hafa ekki verið sýnd á sýningum áður enda eru þau sérstaklega hugsuð sem listaverk heima í stofu. ➤ Fyrirtæki hennar, sem gefurdiskinn út, heitir Eyelove og er heimasíða þess á slóðinni eyeloveco.com. Þar má sjá brot úr verkunum og lista yfir útsölustaði. ➤ Tók þátt í SEQUENCES-listahátíðinni fyrr á árinu og gerði svokallað hreyfanlegt graffiti-verk í samstarfi við kærastann sinn sem er graf- fiti-listamaður. ➤ Hefur meðal annars gert víd-eó-sviðsmynd fyrir hljóm- sveitina Gus Gus. SIGRÚN 24 Stundir/Kristinn Ingvarsson Jólasýningu Hafnarborgar lýkur um helgina, en hún var sett upp í lok nóvember síðastliðins. Um er að ræða sýningu á nýjum mynd- skreytingum Brians Pilkingtons úr bókinni Tryggðartröllum og er höfundur textans Steinar Berg. Safnið er opið alla daga nema þriðjudaga frá kl. 11 til 17 og á fimmtudögum er opið til kl. 21. Síðasta sýningarhelgi Aðventuævintýri, sem staðið hefur yfir á Akureyri undanfarna daga, heldur áfram í dag. Jólasýning Listhlaupadeildar Skautafélagsins verður í Skauta- höllinni milli klukkan 17 og 19, nemendur Point-dansstúdíósins sýna í Ketilshúsinu klukkan 16 og jólasöngleikurinn Kraftaverk á Betlehemsstræti verður sýndur í Akureyrarkirkju klukkan 17.30. Áfram aðventu- ævintýri Til stendur að rífa nærri 100 hús í miðbæ Reykjavíkur, á Laugavegi, Hverfisgötu og í Þingholtunum ásamt því sem Kolaportinu verð- ur hugsanlega rutt í burtu og bílastæði sett þar í staðinn. Af þessu tilefni verður haldinn fundur í kvöld á Boston við Laugaveg þar sem formaður Torfusamtakanna, Snorri Freyr Hilmarsson, heldur tölu. Mark- miðið með fundinum er að freista þess að bjarga miðbænum. Bjarga miðbænum ATVINNUBLAÐIÐ atvinna@24stundir.is alltaf á laugardö gum Pantið gott pláss t ímanlega
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.