24 stundir - 18.12.2007, Qupperneq 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2007 24stundir
Eftir Írisi Ölmu Vilbergsdóttur
iris@24stundir.is
Gestgjafinn er alltaf með puttann á
púlsinum þegar matar- og vín-
menning er annars vegar. Sólveig
Baldursdóttir, ritstjóri blaðsins, er
því rétta manneskjan til að mæla
með nýjum og spennandi jólarétt-
um.
„Jólin eru nokkuð hefðbundin á
mínu heimili og ganga mikið út á
að borða góðan mat, eins og hjá
flestum, en þó geri ég ráð fyrir að
áherslan á mat sé eðlilega nokkuð
mikil hjá mér. Fyrir tveimur árum
veiktist ég um jól og þá þurftu aðrir
fjölskyldumeðlimir að taka að sér
matartilbúninginn. Það urðu ein
skemmtilegustu jól sem ég hef upp-
lifað,“ segir Sólveig en jólin eru
undirbúin snemma á Gestgjafan-
um. „Við byrjum að velta okkur
upp úr nýjum hugmyndum á haust-
in ef ekki fyrr og finna út hvaða
straumar eru í gangi fyrir jólin.
Villibráð á jólaborðið
Jólin eru í flestum tilfellum í
mjög föstum skorðum og ekki
mikið svigrúm fyrir breytingar
nema nauðsyn beri til. Nú eru til
dæmis margir þvingaðir í að finna
eitthvað annað en rjúpu í jólamat-
inn og þá bregðast kaupmenn auð-
vitað vel við og flytja inn alls konar
villibráð, þ.e.a.s. ef fólk vill halda
sig við bráðina.
Annars er ég farin að prófa mig
áfram með alls konar grænmetis-
mat og komst upp á bragðið með
hnetusteik sem ég hef haft í nokkr-
um matarboðum og öllum líkar
vel,“ segir Sólveg en hægt er að
kaupa hnetubuffið frosið í Mela-
búðinni og þangað fer Sólveg oft til
að fá innblástur að nýjum réttum.
„Ég fer einnig mikið í Ostabúð-
ina á Skólavörðustíg og svo fann ég
yndislega rómantíska búð á Hverf-
isgötunni sem heitir Súkkulaði og
rósir og Edda Heiðrún Backman
rekur. Þar er til dæmis hægt að
finna fínar og frumlegar jólagjafir.
Annars var ég svo heppin að eiga
erindi til Bandaríkjanna fyrir
skömmu og þar lauk ég við jóla-
gjafainnkaup sem var hið besta mál
og mjög hagkvæmt fyrir mig.“
Jólaskreytingarnar eru Sólveigu
einnig mikilvægar en hún skreytir
yfirleitt með miklum litum. „Sterk-
ir litir eiga vel við um jólin og það
vill til að ég er glysgjörn inn við
beinið og þykir gott að hafa liti í
kringum mig. Ég vil hafa mikið af
ljósum í öllum regnbogans litum.
Glysgjörn Sólveig skreytir
í öllum regnbogans litum.
Jólamaturinn þarf ekki að vera hefðbundinn
Girnileg hnetu-
steik í jólamatinn
Jólamaturinn er í mörg-
um tilfellum sá sami ár
eftir ár og ekki eru allir
tilbúnir til þess að breyta.
Þeir sem vilja vera frum-
legir geta hins vegar
prófað að elda framandi
villibráð og holla græn-
metisrétti.
➤ Er ritstjóri Gestgjafans semgefinn hefur verið út í tæp
26 ár.
➤ Blaðið fjallar um allt fráhversdagsmatargerð til
stórra veisluhalda.
➤ Blaðið var stofnað árið 1981af hjónunum Hilmari B. Jóns-
syni og Elínu Káradóttur.
➤ Gestgjafinn heldur einnig útivefsíðunni www.gestgjaf-
inn.is.
SÓLVEIG BALDURSDÓTTIR
24stundir/Frikki
Klementínurnar boða jólin á
sama hátt og lóan boðar vorið. Í
desember fyllast ávaxtaborðin í
stórmörkuðum af þessum góm-
sætu ávöxtum sem seldir eru í
tonnatali í aðdraganda jólanna.
Klementínur eru sívinsælar í skóla-
nestið, á borðið í kaffistofunni og
sem hollt snakk við sjónvarpið.
Uppruni klementínanna er óljós
en sumir halda því fram að þær
hafi orðið til fyrir slysni hjá prest-
inum Clément Rodier sem stund-
aði garðyrkju á munaðarleysingja-
hæli sínu.
Aðrir segja að sögu þeirra sé hægt
að rekja til Kína og að þær hafi verið
til löngu fyrir tíma Cléments.
Klementína er sæt, steinalaus og
auðvelt er að flysja hana. Stundum
eru klementínurnar þó með stein-
um en það er aðeins eftir að býflug-
ur hafa mengað þær með fræjum
úr öðrum ávöxtum. Snemma á síð-
asta ári hótuðu bændur í Kaliforn-
íu málsókn á hendur býflugna-
bændum vegna skemmda sem
flugurnar ollu á uppskeru þeirra.
Uppskerutími klementína í Kali-
forníu er frá því nóvember og fram
í janúar og þar eru þær þekktar
sem jólaklementínur líkt og á Ís-
landi.
Klementínurnar boða jólin
Seljast í tonnatali um jólin
Girnilegar klem-
entínur eru góm-
sætar og safaríkar
LÍFSSTÍLLÍ JÓLASKAPI
lifstill@24stundir.is a
Við byrjum að velta okkur upp
úr nýjum hugmyndum á haust-
in ef ekki fyrr og finna út hvaða
straumar eru í gangi fyrir jólin.
Veiðikortið veitir aðgang að 31 vatnasvæði vítt og
breitt um landið og kostar aðeins 5000 kr.
K
R
A
FT
A
V
ER
K
Fæst hjá N1, veiðibúðum
og á www.veidikortid.is
Frí heimsending þegar verslað er beint á vefnum
Loksins á Íslandi
Dickens húsin frá Department 56
Jólahúsið
Skólavörðustíg 21a
101 Reykjavík