24 stundir - 18.12.2007, Qupperneq 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2007 24stundir
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Aðeins eru sex mánuðir síðan reglum
hérlendis var breytt á þann veg að börn
niður í sex ára aldur gætu ekið smámót-
orhjólum. Áður var aldurstakmarkið tólf ár.
Kaká um alla eilífð. Fram-kvæmdastjóri AC Mil-an, Adriano Galliani,
fullvissar
stuðningsmenn
liðsins um að
Brasilíumað-
urinn Kaká ætli
sér að skrifa
undir fram-
lengdan samning við liðið í júní
og það alla leið til ársins 2013.
Stjórinn fær plús í kladda
stuðningsmannanna fyrir vikið
en undarlegt má vera að Kaká
skuli skrifa undir svo langan
samning svo stuttu eftir að hafa
viðrað hugmyndir um að spila
einhvern daginn á Spáni.
Annars fer milli málahvort styrkja á lið Mil-an eftir áramót. Gengið
hefur verið
brokkgengt og
sem fyrr eru
stjörnur þess
allnokkrar
komnar yfir sitt
besta. Galliani
framkvæmdastjóri segir búið
að gera ráðstafanir til að kaupa
tvo leikmenn en Silvio Berlus-
coni, eigandi liðsins, segir enga
þörf á viðbótum enda sé Ro-
naldo að ná sér af meiðslum og
andlegum verkjum og annar
Brasilíumaður sem miklar von-
ir eru bundnar við, Alexandro
Pato, fær loks leikleyfi í janúar.
Spurning hvort ekki sé kominn
tími á fund hjá strákunum.
Þrátt fyrir tvo heimsklassa-markmenn, sem reyndarþola ekki hvor annan,
hefur Valencia
fengið á sig
fleiri mörk í
fyrsta átta
heimaleikjum
sínum nú en
allt síðasta
tímabil. Canizares og Hilde-
brand hafa fengið tækifæri til
skiptis en án árangurs en ekki
er langt síðan spænska liðið
þótti sýna hvað bestan varn-
arleik í Evrópu ár eftir ár.
Risaleikur Barcelona ogReal Madrid á sunnu-daginn
verður minni
en vonir stóðu
til. Leo Messi
verður ekki
með og munar
um minna.
Takið ofan hattinn og það ekki
seinna en nú fyrir Boston Cel-
tics í NBA-deildinni.
Margfrægt liðið hefur ekki
byrjað leiktíð betur síðan 1963
en liðið hefur aðeins tapað
tveimur af 20 leikjum sínum
og leiðir NBA í nánast hverj-
um einasta flokki sem tölfræði
er haldin yfir.
Meira að segja næsta lið, SA
Spurs, er í rykinu langt á eftir
með 18 sigurleiki og fimm
tapleiki.
Hallelúja
Alþjóðaólympíunefndin hefur
nú formlega eytt öllum gögn-
um um árangur frjáls-
íþróttastjörnunnar Marion
Jones úr skrám sínum og er
hún því persona non grata í
heiðurshöll frjálsra íþrótta og
Ólympíuleika. Henni er enn-
fremur meinað að taka þátt í
næstu Ólympíuleikum detti
henni það í hug, sem er frá-
leitt.
Jones út
Tennisstjarnan fornfræga
Chris Evert og golfséníið Greg
Norman hafa trúlofað sig á
sextugsaldrinum. Bæði hafa
reynt hinn gullna giftingarveg
tvívegis áður.
Allt er þegar
þrennt er
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@24stundir.is
Það var ekki að sjá að þarna væru
byrjendur á ferð, og þaðan af síður
að sumir þátttakenda væru aðeins
sex ára gamlir.
Þannig var það nú engu að síður
í reiðhöll Gusts um helgina þegar
tugir barna tóku þátt í fyrsta
krakkamótorkrossæfingamóti sem
haldið hefur verið hér á landi.
Tókst það afar vel í alla staði enda
tók enginn þátt án þess að öllum
öryggisskilyrðum væri fullnægt.
Ekki minnkaði spenningurinn hjá
börnunum þegar sérútbúinn jóla-
sveinn með hlífar og hjálm skaut
upp kollinum á miðri æfingu.
Æfingamótið var ætlað börnum
á aldrinum sex til níu ára og voru
engin hjól öflugri en 50cc. Sökum
þess að ekið er á lokuðum brautum
geta börnin leikið sér á slíkum
hjólum takmarkalaust en gerð er
krafa um 17 ára aldur og vélhjóla-
próf fyrir þá sem hug hafa á að aka
hjólum af slíkri stærð á götum úti.
Ætlunin er að halda fleiri slík æf-
ingamót fyrir þau yngstu strax á
næsta ári enda er áhuginn gríðar-
legur og fjölmennt var á mótinu
þótt mótorkrosshjól af þessum
toga kosti vart undir 200 þúsund-
um króna.
Ýmsum kann að þykja undarlegt
að svo ung börn aki um á mót-
orhjólum en reglur hérlendis eru
þær sömu og víðast erlendis. Börn
niður í sex ára aldur mega aka um
á slíkum hjólum á þar til gerðum
brautum svo lengi sem öllum ör-
yggisreglum er framfylgt og börnin
eru í tilskildum hlífðarfatnaði. Er
það svo að mestu á ábyrgð foreldra
að stilla kraft hjólsins hverju sinni.
Aðeins eru sex mánuðir síðan
reglum hérlendis var breytt á þá
lund að börn niður í sex ára aldur
mættu aka slíkum tækjum. Áður
var aldurstakmarkið tólf ár.
Tæplega 800 slík smáhjól með
vél undir 50cc eru skráð hér á
landi.
Hundrað prósent einbeiting
Krakkarnir, sem sumir hverjir voru
að setjast á hjól í fyrsta skipti, voru
einbeittir með afbrigðum.
Jólahjól
Aldurstakmark í krakkamótorkrossi var lækkað úr 12 í 6 ár
Allt að þúsund slík hjól í notkun og eru þau vinsæl í jólapakkann
Allir sáttir Tæplega 30 börn tóku þátt í æfingamótinu í þetta skipti og
fengu þau öll glaðning frá jólasveininum. Myndir 24stundir/G.Rúnar
Bara gaman Innibrautin vakti lukku
enda auðveld og engin urðu óhöppin
Fysta sinn Aldrei áður hefur braut verið
sett upp inni hér á landi.
SKEYTIN INN