24 stundir - 18.12.2007, Side 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2007 24stundir
„Og enn er elsti maður heims lát-
inn. Rétt einu sinni. Það virðist
vísun á bráðan dauða að vera elsti
maður heims. Lífslíkurnar minni
en hjá flestum öðrum þjóðfélags-
hópum, gæti ég trúað. […] Ég
vona að ég verði aldrei elsti mað-
ur heims. Mig langar að lifa svo-
lítið lengur.“
Hlynur Þór Magnússon
hlynur.eyjan.is
„Ég fór í Blóðbankann um dag-
inn til að leggja inn, ég hafði ekki
gefið blóð síðan 1984. Það var
bara tekin prufa […] Svo hringdi
ég til að tékka á þessu og þau vilja
bara ekki mitt blóð […] Veit ekki
alveg af hverju þetta var nið-
urstaðan. Sennilega héldu þau að
ég væri gömul fyllibytta.“
Sigurður Helgi Magnússon
zorglubb.blog.is
„Sjálf hefi ég aðeins einu sinni á
ævinni étið rjúpur. Ekki þóttu
mér þær neitt sérstakar á bragðið
og tek flestan mannamat fram yf-
ir rjúpur og kæsta skötu á hátíð-
arborði. Þá er maður sömuleiðis
laus við meltingartruflanir af því
að kyngja höglunum.“
Anna K. Kristjánsdóttir
velstyran.blog.is
BLOGGARINN
Eftir Atla Fannar Bjarkason
atli@24stundir.is
„Ég er búinn að vera í viðræðum
við Starbucks um að opna á Íslandi
í mörg ár,“ segir Bjarni Krist-
insson, framkvæmdastjóri Skíf-
unnar.
Bjarni hefur sett af stað undir-
skriftalista, á slóðinni Starbucks.is,
sem ætlað er að þrýsta á eigendur
kaffihúsakeðjunnar Starbucks um
að gefa vilyrði fyrir opnun á Ís-
landi. „Ég er mikill áhugamaður
um Starbucks á Íslandi,“ segir
Bjarni. „Þeim finnst markaðurinn
svo lítill á Íslandi að það taki því
ekki að sprikla hér. En þau vita af
undirskriftalistanum og munu
örugglega fylgjast með. Ég mun
hafa samband þegar listinn er orð-
inn almennilegur.“
Opna sjö kaffhús á dag
Starbucks er stærsta kaffi-
húsakeðja heims með yfir 15.000
kaffihús í rúmlega 40 löndum. Fyr-
irtækið er í mjög örum vexti og
opnar að meðaltali sjö kaffihús á
hverjum degi.
Fyrr á þessu ári stofnaði Star-
bucks útgáfufyrirtækið Hear Mu-
sic. Paul McCartney var fyrsti lista-
maðurinn til að skrifa undir hjá
fyrirtækinu, en hann hafði lengi
verið á mála hjá EMI-
útgáfunni sögufrægu. Hear
Music lokkaði einnig til
sín kanadísku tónlist-
arkonuna Joni Mitchell,
sem gaf út sína fyrstu
breiðskífu með frum-
sömdu efni í tíu ár hjá
fyrirtækinu.
Bjarni hefur áhuga á
að blanda saman rekstri
Skífunnar og Starbucks.
„Sem framkvæmdastjóri Skífunnar
er ég mjög heitur fyrir að tengja
það saman, Skífuna og
Starbucks,“ segir
hann. „Þeir selja
mikið af tónlist. Ég
er með kjallara
undir allri Skíf-
unni á Laugavegi
þar sem við erum
með alls kyns
uppákomur og
fjör. Við
myndum
klárlega
vilja sjá
Starbucks
þar. Byrja
í 101 og
halda
svo
áfram.“
Bjarni Kristinsson vill opna Starbucks-kaffihús í miðbæ Reykjavíkur
Ræðir við Starbucks
um opnun á Íslandi
Viðræður um opnun Star-
bucks á Íslandi hafa stað-
ið í nokkur ár, en fyr-
irtækið óttast að íslenski
markaðurinn sé of lítill.
Nú hefur undirskriftalisti
litið dagsins ljós á Star-
bucks.is sem þrýstir enn
frekar á fyrirtækið.
Starbucks á Íslandi? Markaðurinn
á landinu þykir frekar lítill.
➤ Starbucks-kaffihúsakeðjanvar stofnuð í Seattle í Banda-
ríkjunum árið 1971.
➤ 147.436 manns starfa hjá fyr-irtækinu um allan heim.
STARBUCKS
Viðræður í mörg ár Bjarni
vill opna Starbucks í Skífunni.
HEYRST HEFUR …
Ómar Eyþórsson, fyrrverandi dagskrárstjóri út-
varpsstöðvarinnar RVK FM, segir á bloggsíðu sinni
að dagar stöðvarinnar séu taldir, enda heyrðist bara
surg á tíðninni 101,5 um helgina. Sögur Ómars af
andláti stöðvarinnar eru stórlega ýktar þar sem tón-
list var farin heyrast á henni upp úr hádegi í gær.
Skýringin ku vera sú að útsendingarloftnet stöðv-
arinnar lenti illa í óveðri síðustu daga. afb
Heiðdís Lilja Magnúsdóttir, fráfarandi ritstjóri
Nýs lífs, hyggst taka sér frí frá fjölmiðlaheiminum
og setjast á skólabekk. Miklar hrókeringar urðu á
dögunum hjá útgáfufélaginu Birtíngi og tímaritið
Ísafold rann inn í Nýtt líf. Einhverjir skildu frétt-
irnar þannig að Heiðdís hefði verið rekin, en það ku
ekki vera rétt. Hún var búin að segja upp eins og
Guðmundur Magnússon, ritstjóri DV.is. afb
Vinsældir sýningarinnar Laddi 6-tugur ætla engan
endi að taka. Troðfullt var á 81. sýningu grínkóngs-
ins á laugardagskvöld og fólk stóð upp og ætlaði
aldrei að hætta að klappa eftir sýningu. Athygli
vakti að Laddi var með sárabindi um þumalinn.
Fólk velti fyrir sér hvort Skúli rafvirki hefði gripið
um vitlausan vír eða hvort Eiríkur Fjalar hefði misst
sig í gleðinni við gítarglamur og söng … afb
„Fjarstýrður Range Rover fyrir
þau allra flottustu. Spilar tónlist og
er með alls konar flottum ljósum.
Alvörukaggi!“ Svona er fjar-
stýrðum Range Rover-jeppa lýst í
Hagkaupum í Smáralind.
Samkvæmt upplýsingum frá
leikfangadeild Hagkaupa í Smára-
lind er mikil spenna fyrir fjar-
stýrðum lúxusbílum, þrátt fyrir að
þeir séu ekki mjög hentugir í tor-
færur, en börn eru jafnan spennt-
ari fyrir hólum og hæðum heldur
en hefðbundnum götuakstri.
Fjarstýrðir lúxusbílar vinsælir
Lexus- og Ford Mustang-bílar
eru einnig fáanlegir í fjarstýrðum
útgáfum, en starfsmaður í Hag-
kaupa sagði að verslunin hefði ný-
lega tekið inn þessar tegundir af
bílum.
Sannkallað lúxusbílaæði hefur
gripið þjóðina og þar er greinilega
ekki spurt um aldur. Skemmst er
að minnast þess þegar Blaðið (nú
24 stundir) sagði frá því að 2007
yrði metár í lúxusbílasölu.
Það sem af er ári hafa 127 nýir
Range Rover-jeppar selst sam-
kvæmt upplýsingum af vef Um-
ferðarstofu. Verðið á þeim er frá
tæpum 8 milljónum upp í rúmar
17 milljónir. Verðkröfur barnanna
eru ögn hógværari, en fjarstýrður
Range Rover kostar 6.990 krónur í
Hagkaupum. Ef barnið hyggst taka
bílalán til 84 mánaða hjá TM fyrir
bílnum þyrfti það að punga út
rúmum 400 krónum á mánuði,
miðað við 20% innborgun. Fjar-
stýrði bíllinn myndi á endanum
kosta rúmar 33.000 krónur.
atli@24stundir.is
Ekki spurt um aldur í lúxusbílaæði á Íslandi
Börn fá Range
Rover í jólagjöf
Lúxusbílar fyrir börn Range Ro-
ver og Lexus eru vinsælir meðal
barnanna.
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
6 8 1 3 4 5 9 7 2
3 2 4 6 7 9 8 1 5
5 7 9 8 1 2 3 4 6
2 9 6 7 3 1 4 5 8
4 1 7 2 5 8 6 3 9
8 3 5 9 6 4 7 2 1
7 5 2 4 8 6 1 9 3
9 4 8 1 2 3 5 6 7
1 6 3 5 9 7 2 8 4
Getur einhver sagt Ella að ég
hafi fundið jakkann hans!?
24FÓLK
folk@24stundir.is a
Góður brandari er
sjaldan of oft kveðinn
Er brandarinn ekki búinn?
Óttar M. Norðfjörð skrifaði eftirminnilega „ævisögu“
Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar í mjög litlu broti. Nú
hefur Brissó B. Johannsson skrifað svipaða ævisögu um
Óttar, án hans vitundar.
Spennandi ævintýrabækur, sem hlutu
norrænu barnabókaverðlaunin 2004 og
barna og unglingaverðlaun IBBY 2006.
Fyrstu þrjár bækurnar fást á tilboði
2 fyrir 1200 kr. í öllum verslunum
Eymundsson.
ÁVÍTARASTRÍÐIÐ
Ef það á að takast að stöðva
Drakan verður það að
gerast núna. En Dínu virðast
áætlanir Nikós fremur
háskalegar en skynsamlegar
og orrustan við drekaherinn
verður ekki unnin með
vopnum einum saman.
J
E
N
T
A
S
w
w
w
.je
nt
as
.c
om