24 stundir - 31.01.2008, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2008 24stundirFRE
VÍÐA UM HEIM
Algarve 17
Amsterdam 7
Ankara -6
Barcelona 15
Berlín 6
Chicago -2
Dublin 5
Frankfurt 4
Glasgow 6
Halifax 4
Hamborg 6
Helsinki 1
Kaupmannahöfn 6
London 7
Madrid 10
Mílanó 7
Montreal 3
München 1
New York 8
Nuuk -7
Orlando 14
Osló 2
Palma 21
París 4
Prag 4
Stokkhólmur 5
Þórshöfn 2
Hægviðri og víða þurrt í fyrstu, en sums stað-
ar él með suðurströndinni.
Norðan 18-23 um tíma suðaustanlands í
fyrramálið en síðan dregur hægt úr vindi.
Frost 2 til 10 stig, kaldast inn til landsins.
VEÐRIÐ Í DAG
-1
-3
-1
-3 0
Él með suðurströndinni
Norðanátt, 10-18 m/s austantil, en 5-10 vest-
anlands. Snjókoma eða él á Norður- og Norð-
austurlandi, en léttskýjað sunnan- og vest-
anlands. Frost 4 til 16 stig, kaldast inn til
landsins suðvestantil.
VEÐRIÐ Á MORGUN
-6
-6
-4
-6 -3
Frost allt að 16 stig
Póstburður verður gefinn frjáls
innan aðildarríkja Evrópusam-
bandsins (ESB) og á EES-svæðinu í
síðasta lagi í lok árs 2010 sam-
kvæmt tillögum Evrópuþingsins og
-ráðsins. Gert er ráð fyrir að málið
verði samþykkt á fyrri hluta ársins í
ár. Við gildistöku tilskipunarinnar
mun Íslandspóstur hf., sem fer
með einkarétt til póstburðar hér-
lendis, því missa þann einkarétt, en
hann gildir í dag um öll bréf sem
eru 50 grömm á þyngd eða léttari.
Engu að síður verður stjórnvöldum
skylt að tryggja póstburð fimm
daga vikunnar.
Þetta kemur fram í skýrslu Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur utan-
ríkisráðherra um Ísland á innri
markaði Evrópu sem kynnt verður
á Alþingi í dag.
Hörð viðbrögð starfsmanna
Þegar tillagan kom fyrst til um-
fjöllunar í Evrópuþinginu og ráð-
herraráði ESB ríkti mikill ágrein-
ingur um hana samkvæmt
skýrslunni, ekki síst vegna harðra
viðbragða starfsmanna opinberra
póstþjónustufyrirtækja.
Á endanum náðist þó sátt um
málamiðlun um að póstburður
verði gefinn frjáls ekki síðar en í
árslok 2010. Þá varð samkomulag á
þinginu um að meina póstburðar-
fyrirtækjum annarra ríkja aðgang
að markaði ríkja sem hefðu gefið
póstburð frjálsan, væri heima-
markaður þeirra lokaður.
thordur@24stundir.is
Íslandspóstur missir mögulega einkarétt á póstburði 2010
ESB vill gefa póstburð frjálsan
Íslandspóstur gæti
misst einkaleyfi sitt 2010.
„Ég býst við að við klárum þetta
ekki fyrr en á mánudaginn,“ segir
Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokks-
formaður Sjálfstæðisflokksins, að-
spurð hvort þingflokkurinn muni
skila frá sér frumvarpi iðnaðarráð-
herra að nýjum orkulögum í vik-
unni. Hún segir marga af þing-
mönnum flokksins vera erlendis
þessa dagana.
Ríkisstjórnin samþykkti orku-
lögin 11. janúar og voru þau í kjöl-
farið lögð fram í þingflokkum rík-
isstjórnarflokkanna. Höskuldur
Þórhallsson auglýsti eftir frum-
varpinu, sem hann segir sitja fast í
þingflokki Sjálfstæðisflokksins, í 24
stundum í gær. Þingflokkur Sam-
fylkingarinnar afgreiddi það í upp-
hafi síðustu viku.
elias@24stundir.is
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins
Afgreiða orkulögin
á mánudaginn
Það var fyrir algjöra tilviljun sem
húsmóðir í Reykjavík uppgötvaði
að hún hafði ekki fengið auglýstan
afslátt af öllum vörunum sem hún
keypti í Bónus-versluninni á Sel-
tjarnarnesi sem lokað var í vik-
unni. „Ég keypti fleiri en eina ein-
ingu af 15 vörutegundum. Það
voru hins vegar bara dregin 30
prósent af einni einingu af hverri
vörutegund. Það var hrein tilviljun
að ég skoðaði strimilinn,“ segir
húsmóðirin sem keypti vörur fyrir
nokkra tugi þúsunda.
„Ég keypti dýrar vörur sem eldast
vel,“ útskýrir hún. Húsmóðirin óttast að einhverjir viðskiptavinir hafi
ekki gert jafngóð kaup og þeir hafi talið sig vera að gera.
Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónus-verslananna,
kveðst hafa heyrt af þessu tilviki og öðru til viðbótar. „Þetta var lagað
um leið og það uppgötvaðist. Við opnuðum verslunina klukkan 10 um
morguninn og við fengum fyrstu fyrirspurnina upp úr klukkan 13.“
Guðmundur segir engan vafa leika á því að fleiri viðskiptavinir hafi
lent í því sama. Þegar afgreiðslumenn slógu verð vörunnar inn einu
sinni og margfölduðu verðið síðan með fjölda keyptra eininga dróst
afslátturinn bara af einu sinni. „Það var tölvufyrirtæki sem prógram-
meraði þessa útsölu hjá okkur,“ segir Guðmundur og bætir við að það
sé ofboðslega leiðinlegt þegar svona gerist. „Ég hvet fólk til að hafa
samband við okkur og koma með strimilinn til að fá mismuninn
greiddan. En það er ekkert hægt að gera ef fólk er búið að fleygja
strimlinum.“ ibs
Fengu ekki allan afsláttinn
Lögreglan handtók síðdegis í gær
fjórða manninn í tengslum við
fíkniefnasmygl í hraðsendingu
sem upp komst í síðustu viku.
Lögreglan á Suðurnesjum hand-
tók manninn fyrir utan Leifsstöð.
Maðurinn sem var handtekinn er
Annþór Karlsson sem er dæmdur
brotamaður og hefur meðal ann-
ars komist í kast við lögin fyrir
handrukkanir. Lögreglan gerði
húsleit á heimili Annþórs í Vog-
um í gær en ekki fékkst staðfest
að eitthvað saknæmt hefði fund-
ist þar. Annþór verður yfirheyrð-
ur á morgun og þá mun lögreglan
ákveða hvert framhald málsins
verður. Allir mennirnir þrír sem
handteknir voru í upphafi sitja í
gæsluvarðhaldi, tveir fram á
föstudag og einn til 7. febrúar. fr
Annþór handtekinn vegna smygls
EFtir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@24stundir.is
Stýrihópur um málefni Reykjavík
Energy Invest (REI) mun ekki skila
skýrslu sinni til borgarráðs í dag
líkt og til stóð. Ástæðan er sú að
sjálfstæðismenn báðu um að skil-
um stýrihópsins yrði frestað.
Síðasti fundur stýrihópsins átti
að vera á þriðjudag í síðustu viku
en var frestað vegna myndunar
nýs meirihluta í borginni. Sam-
kvæmt heimildum 24 stunda var
vinnu stýrihópsins þegar lokið að
mestu og einungis eftir að ná sam-
komulagi um orðalag og fram-
setningu texta. Niðurstöðum
stýrihópsins munu fylgja lögfræ-
ðiálit um ábyrgð þeirra sem fóru
með umboð borgarinnar í REI-
málinu.
Sjálfstæðismenn vildu frestun
Svandís Svavarsdóttir, formaður
stýrihópsins, segir niðurstöðunni
væntanlega verða skilað á borgar-
ráðsfundi eftir viku. „Sjálfstæðis-
menn höfðu samband og óskuðu
eftir fundi hjá stýrihópnum. Mér
fannst sjálfsagt að veita þeim hann.
Sá fundur verður væntanlega hald-
inn eftir helgi. Ég mun skýra frá
þessu á borgarráðsfundi á morgun
og svo væntanlega skila niðurstöð-
um af starfi stýrihópsins viku síð-
ar.“ Gísli Marteinn Baldursson,
borgarfulltrúi sjálfstæðismanna,
fór fram á frestunina fyrir hönd
síns borgarstjórnarflokks. Ekki
náðist í Gísla Martein í gær.
REI verður rætt á stjórnarfundi
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur
(OR), eiganda REI, mun funda í
fyrsta sinn á morgun síðan nýr
meirihluti var myndaður. Þar
munu málefni REI meðal annars
vera til umræðu en heimildir 24
stunda herma að Júlíus Vífill Ingv-
arsson verði næsti stjórnarformað-
ur þess fyrirtækis.
Auk þess verður tekið til um-
ræðu bréf Hafnfirðinga til stjórn-
arinnar vegna kaupa OR á hlut
bæjarins í Hitaveitu Suðurnesja,
erindi til OR frá Alcan á Íslandi og
væntanleg kynning á orkufrum-
varpi Össurar Skarphéðinssonar
iðnaðarráðherra.
Skilum vegna
REI frestað
Stýrihópur sem fjallaði um REI-málið átti að skila niðurstöðu
sinni í dag Skilin frestast um viku að beiðni sjálfstæðismanna
REI Lykilmenn í félaginu
þegar það var sett á lagg-
irnar síðastliðið haust.
➤ Stýrihópur um framtíð Orku-veitu Reykjavíkur, og þar með
REI, var skipaður í október
síðastliðnum.
➤ Honum var meðal annars faliðað fara yfir lagalegan grund-
völl samruna REI og Geysis
Green Energy og framgöngu
þeirra sem komu að honum
fyrir hönd borgarinnar.
REI-MÁLIÐ
● Of margir Orkuveituformenn
Byggðaráð Borgarbyggðar
sendi frá sér bókun þar sem
borgarstjórn Reykjavíkur er
hvött til að sýna stefnufestu og
ábyrgð við stjórn fyrirtækja í
sameiginlegri eigu Borg-
arbyggðar, Reykjavíkur og ann-
arra sveitarfélaga.
„Það er ólíðandi, bæði fyrir
meðeigendur Reykjavíkur sem
og starfsfólk viðkomandi fyr-
irtækja, að skipt skuli hafa verið
um formann stjórnar Orku-
veitu Reykjavíkur fimm sinn-
um og stjórnarformann Faxa-
flóahafna þrisvar sinnum á
innan við tveimur árum í krafti
meirihlutaeignar Reykjavík-
urborgar í fyrirtækjunum,“
mbl.is
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
STUTT