24 stundir - 31.01.2008, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2008 24stundir
Sérfræðingar
í saltfiski
466 1016
- Útvatnaður saltfiskur án beina til suðu
- Sérútv. saltfiskur án beina til steikingar
- Ýsa, þorskur, gellur, kinnfiskur, rækjur
- Einnig fjölbreytt úrval tilbúinna rétta
www.ektafiskur.is
pöntunarsími:
frumkvöðlafyrirtæki ársins - viðurkenning frá matur úr héraði - localfood
Eftir Írisi Ölmu Vilbergsdóttur
iris@24stundir.is
Einhvers staðar verðum við þó öll
að búa og því er nauðsynlegt að
kanna málið vel og komast að því
hvað hentar hverjum og einum
best. Að ýmsu er að hyggja þegar
kemur að því að velja húsnæði en
fyrst þarf að skoða hvort viðkom-
andi ætlar sér að vera á leigumark-
aðinum eða hvort hann vill skuld-
binda sig enn frekar og kaupa
húsnæði.
Frjáls í leiguhúsnæði
Fyrst skulum við skoða kosti og
galla þess að leigja húsnæði. Helsti
kosturinn er að sjálfsögðu frelsið.
Þeir sem ekki eru tilbúnir til þess
að festa sig í ákveðnu hverfi eða
bæjarfélagi eru mun betur settir í
leiguhúsnæði enda þarf ekki annað
en að segja samningnum upp og þá
er viðkomandi frjáls til þess að
flytja hvert sem hann vill. Annar
kostur er að leigjandi ber ekki
ábyrgð á viðhaldi og stærri við-
gerðum á húsnæðinu. Leigusalinn
gerir yfirleitt ráð fyrir minniháttar
viðgerðarkostnaði í leigunni og ef
þakið byrjar að leka eða pípurnar
springa tilheyrir sá höfuðverkur
leigusalanum. Þriðji kosturinn er
að leigjandi þarf ekki að fara í
gegnum strangt greiðslumat til
þess að fá íbúð á leigu. Viðkomandi
ákveður því sjálfur hver önnur út-
gjöld eru og hvernig hann getur
lagað sinn lífsstíl og tekjur að leigu-
verðinu. Bankinn gefur ekki færi á
þessu enda fer greiðslumat þannig
fram að gert er ráð fyrir ákveðinni
upphæð í framfærslukostnað og fer
sú upphæð eftir fjölskyldustærð.
Bankinn gerir einnig ráð fyrir
ákveðinni upphæð í bílarekstur
þrátt fyrir að viðkomandi eigi ekki
bíl enda er gert ráð fyrir því að
flestir eignist bíl þó síðar verði.
Einnig eru lán tekin með inn í
greiðslumatið sem og aðrar fjár-
hagslegar skuldbindingar, ef ein-
hverjar eru. Auðveldast er að líta á
það þannig að bankinn geri ráð
fyrir því sem kallast mannsæmandi
líf á meðan þeir sem hafa lítið á
milli handanna verða oft að lifa
sannkölluðu fátæktarlífi en það er
mögulegt í leiguhúsnæði þar sem
leigan er borguð fyrst og afgang-
urinn er notaður til þess að kaupa
helstu nauðsynjar. Bankinn reynir
með öðrum orðum að koma í veg
fyrir að húsnæðið eigi þig og að þú
sért bundinn í báða skó um
ókomna framtíð.
Gallinn við að vera í leiguhús-
næði er sá að það er sama hversu
lengi þú býrð í húsnæðinu þú
munt ekki fá krónu til baka þegar
þú flytur út. Þetta þykir mörgum
svekkjandi enda er leigan í flestum
tilvikum rúmlega 100 þúsund
krónur á mánuði eða jafnvel tæp-
lega 200 þúsund.
Þreytandi að flytja
Annar galli er að leigjandi er
háður eiganda húsnæðisins og í
flestum tilvikum er um tíma-
bundna leigu að ræða og þarf leigj-
andinn því líklega að flytja reglu-
lega. Það getur verið þreytandi til
lengdar og þá sérstaklega ef um
stóra fjölskyldu er að ræða.
Stærsti kosturinn við að búa í
eigin húsnæði er tvímælalaust sá að
þú ert öruggur, svo lengi sem af-
borganirnar eru greiddar. Þér er
einnig frjálst að innrétta húsnæðið
að vild og jafnvel rífa niður veggi ef
þeir fara í taugarnar á þér. Viðhald
húsnæðisins er í þínum höndum
en þér er frjálst að fresta því sem
þér finnst ekki nauðsynlegt að gera
strax og spara peningana til betri
tíma. Ef eitthvað stórvægilegt gerist
getur það hins vegar farið mjög illa
með fjárhaginn hjá þeim sem mega
ekki við óvæntum fjárútlátum. Ef
um fjölbýli er að ræða getur eig-
andi til dæmis þurft að greiða fyrir
breytingar sem honum er meinilla
við bara vegna þess að meirihlut-
inn kaus breytingarnar. Slíkt áfall
hefur orðið til þess að fólk hefur
þurft að selja húsnæðið til þess að
greiða niður skuld.
Hverjar eru framtíðarhorf-
urnar?
Burtséð frá öllum kostum og
göllum þá er ein spurning sem þú
þarft að spyrja þig áður en þú festir
kaup á húsnæði; er ég tilbúin/n til
að setjast að í þessu húsnæði næstu
5-10 árin? Ef svarið er „nei“ eða
„kannski“ á leigumarkaðurinn bet-
ur við þig í bili. Það getur kostað
morð fjár að kaupa, selja og stand-
setja nýja íbúð.
Þessi pistill er aðeins ófagleg
pæling og ætlaður til þess að fá fólk
til þess að hugsa sig um áður en
ákvörðun um húsnæðiskaup er
tekin. Mikilvægast af öllu er að
ráðfæra sig við sérfræðinga hjá
bankanum eða Íbúðalánasjóði áð-
ur en lokaákvörðunin er tekin.
Hvort er betra að eiga eða leigja?
Stærsta spurningin
Húsnæðismál eru oftar
en ekki varanlegur haus-
verkur hjá meðaljóninum
hér á landi.
Leiguverð er óstjórnlega
hátt og húsnæðiskaup
valda skelfingu hjá þeim
sem heyra stöðugt fréttir
af mögulegri verðbólgu
og ætluðu verðhruni á
fasteignum.
Nauðsyn Við þurfum
öll þak yfir höfuðið.
➤ Það er hægt að fá hjá Íbúða-lánasjóði og í þeim banka
sem þú átt viðskipti við.
➤ Geta verið allt að 80 prósenthjá bönkum auk þess sem
hægt er að taka 20 prósenta
viðbótarlán til 10 ára, við
fyrstu kaup.
HÚSNÆÐISLÁN
Ef þú ert einn af þeim sem eru
alltaf orðnir peningalausir um
miðjan mánuð þrátt fyrir að tekj-
urnar séu í hærra lagi getur verið
kominn tími til þess að athuga í
hvað peningarnir fara. Ef slík at-
hugun leiðir í ljós að þú eyðir
stærstum hluta launanna í ónauð-
synlega vitleysu gæti verið sniðugra
að spyrja: „Af hverju eyði ég pen-
ingum?“
Eyðir til að gleyma
Þessi spurning getur verið mjög
ógnvekjandi enda er svarið í mörg-
um tilfellum að viðkomandi eyðir
peningum vegna þess að honum
leiðist eða líður illa. Ef þetta er til-
fellið er lausnin ekki einföld og
vandinn getur vaxið fólki í augum.
Flest gerum við eitthvað þegar
okkur líður illa til þess að láta okk-
ur líða betur. Sumir fara á kaffihús
og fá sér sígarettu, aðrir fara út að
hlaupa og enn aðrir borða allt sem
tönn á festir. Reykingar og ofát eru
vissulega stórhættuleg fyrirbæri en
eyðslufyllerí getur sömuleiðis end-
að mjög illa enda lendir gjarnan öll
fjölskyldan í súpunni og það getur
tekið mörg ár að leysa fjárhags-
vandann sem skapast við það að
fylla fataskápinn af fötum sem
aldrei eru notuð.
Mikilvægast er að horfast í augu
við vandann og komast að því hvað
fær þig til að líða illa enda er alveg
ljóst að verslunarferðin mun ekki
leysa vandann. Ef það er einmana-
leiki sem er að plaga þig þá er kjör-
ið að reyna að komast inn í ein-
hvern skemmtilegan félagsskap
sem er á einhvern hátt tengdur
áhugamáli þínu, til dæmis veiði-
klúbb eða gönguklúbb. Ef vandinn
er flóknari þá er engin skömm að
því að leita hjálpar hjá sálfræðingi
enda er ávinningurinn þess virði að
kyngja stoltinu.
iris@24stundir.is
Hvers vegna eyðir þú peningum?
Fólk sem verslar til að gleyma
Reglubundinn sparnaður er fyr-
irbæri sem margir stefna að en
fæstir láta nokkurn tímann verða
af að setja í gang.
Ferlið er ekki flókið. Þú einfald-
lega stofnar sparireikning og lætur
leggja sjálfkrafa inn á hann um
hver mánaðamót og þá áttu alltaf
eitthvað í bakhöndinni ef illa fer.
Það er algeng skoðun landsmanna
að til þess að spara þurfi þeir að fá
ákveðna upphæð útborgaða. Sú
upphæð þarf gjarnan að nægja fyrir
alls kyns skemmtunum og óþarfa
og sparnaður er þá settur í síðasta
sæti.
Skemmtilegur sparnaður
Þetta eru fyrstu mistökin enda er
enginn of blankur til að spara.
Upphæðin þarf ekki að vera há og
þetta er í flestum tilfellum aðeins
spurning um forgangsröðun. Þú
getur lagt örfáa þúsundkalla inn á
reikninginn í hverjum mánuði þó
að nágranninn eigi miklu meiri
pening og flottari hluti. Á endan-
um verður það þú sem ert fjárhags-
lega öruggur á meðan nágranninn
er að sligast undan afborgunum af
öllum visa-lánunum sem borguðu
flottu húsgögnin.
Sparnaður getur verið mjög
skemmtilegur og þá sérstaklega ef
eitthvað kemur upp á og hægt er að
sækja pening í sjóðinn í stað þess
að fá rándýra heimild. Það er aldrei
of seint að byrja og um að gera að
fá ráðgjöf í bankanum um hvaða
leið er best og hvers konar reikn-
ingur er með hagstæðustu vextina.
Of blankur
til að spara
reglulega
Í mánaðarlok getur verið gott að
kunna nokkrar ódýrar og góðar
uppskriftir að girnilegum kvöld-
mat fyrir alla fjölskylduna.
Spagettí bolognese er einn ein-
faldasti réttur sem hægt er að
elda, þótt hann verði kannski
ekki eins og á ítölsku veitinga-
húsi. Það eina sem þarf er spa-
gettí, tilbúnar litlar kjötbollur
eða hakk og dós af tilbúinni
pastasósu. Spagettíið er soðið og
kjötið steikt og því er svo blandað
saman í potti ásamt sósunni.
Gott er að hafa ristað brauð með.
Einfalt og gott fyrir alla.
Einfalt og gott í
kvöldmatinn
LÍFSSTÍLLSPARIBAUKURINN
lifsstill@24stundir.is a
Þeir sem ekki eru tilbúnir að
festa sig í ákveðnu hverfi
eða bæjarfélagi eru mun betur
settir í leiguhúsnæði.