24 stundir - 31.01.2008, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2008 24stundir
Það þarf sterk bein og kar-akter til að tjá spænskuþjóðinni
að landslið
þeirra í knatt-
spyrnu sé ein-
faldlega ekki
nógu gott til að
verða Evr-
ópumeistari.
Og þar stendur Luis Aragones
undir nafni enda gegnheill eð-
alfýr sem segir það sem honum
býr í brjósti. Viðurkenndi hann
í útvarpi að líkurnar á að Spánn
geri rósir á Evrópumótinu í
sumar séu langsóttar enda sýni
sagan að leikmenn þess bregð-
ist gjarnan þegar pressan fer að
segja til sín.
Stjóri West Ham, AlanCurbishley, er afar sátturvið samband sitt og
stjórnarfor-
mannsins
Björgólfs Guð-
mundssonar.
Segist hann
hafa mikið
frjálsræði sem
sé jákvætt og
sér ekkert neikvætt við erlenda
fjárfesta í enska boltanum.
Mórallinn hjá Valenciahefur aldrei veriðverri og tilkoma Ro-
nald Koeman
gert hlutina
verri. Þetta
fullyrðir ein
skærasta
stjarna liðsins
að David Villa
frátöldum, Joa-
quín, og segir aðgerðir Hol-
lendingsins hafa haft lamandi
áhrif.
Real Madrid hafði mögu-leika á að kaupa Kaka á
sínum tíma fyrir 380
milljónir króna.
„Ég hef enn ekki náð mínum hæstu hæðum en þegar það
gerist verður samkeppnin aðeins á milli mín og Tiger Woods.“
Það er kannski skiljanlegt að Ian Poulter sé orðinn að meira
athlægi en venjulega eftir að hafa látið þessi orð falla í blaða-
viðtali. Hefur hann löngum þótt skrýtinn og oft áður látið
tómt rugl falla í fjölmiðlum en þetta þykir áberandi fram úr
hófi fáránleg yfirlýsing manns sem aldrei hefur komist nálægt
því að vinna stórmót og í raun aðeins sigrað sjö sinnum á ferl-
inum öllum. Sjö skipti sem óhætt er að hreykja sér af en
blikna gjörsamlega við hlið þeirra 85 móta sem Woods hefur
unnið. Þar að auki blés Poulter á afrek manna eins og Phil
Mickelson og Ernie Els sem hann segir bera virðingu fyrir en
þeir eigi ekki möguleika þegar hann sjálfur nái sínum hæðum.
Þótt gaman væri að upplifa eins og einn kylfing sem haldið
getur í eða stöðvað sigurgöngu Woods í golfinu eru líkurnar á
að það verði Ian Poulter nákvæmlega engar miðað við gengi
hans. Þeir keppa báðir í dag á fyrsta degi Dubai Classic-
mótsins og þarf Poulter aldeilis að standa við stóru orðin.
Hógværð ekki í hávegum höfð hjá breska kylfingnum Ian Poulter
Segist jafngóður og Woods
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@24stundir.is
Mörg íþróttasambönd landsins eru
í mikilli klemmu. Heita má að eina
leiðin til að laða styrktaraðila að
tiltekinni íþróttgrein sé að umrædd
íþrótt fái umfjöllun í fjölmiðlum
og þá helst í sjónvarpi. Klemman
felst í því að lítið sem ekkert efni
fæst sýnt í sjónvarpi nema styrkt-
araðilar komi þar að.
Vaxandi umræða er innan
íþróttasambandanna um hversu
erfitt sé að koma mörgum greinum
á kortið og finnst mörgum Ríkisút-
varpið standa sig illa hvað það
varðar. Eru allnokkur dæmi um að
fjárhagslega bágstödd sambönd
verði að greiða sérstaklega fyrir út-
sendingar frá viðburðum sínum
sem er í ósamræmi við yfirlýsta
stefnu RÚV að gera öllum jafnhátt
undir höfði. Kostnaður sambanda
við slíkar útsendingar hleypur á
hundruðum þúsunda.
Ekkert í stað Formúlunnar
Íþróttadeild RÚV reynir sitt
besta en bæði tími og fjármagn
hennar hefur verið skorið við nögl
undanfarið. Besta dæmið er senni-
lega að ekki er áætlað að nokkuð
komi í staðinn fyrir Formúlu 1 sem
RÚV hefur sýnt frá um árabil en
ýmsir hafa gælt við að hugsanlega
væri hægt að sýna í staðinn meira
innlent efni eða frá viðburðum á
borð við heimsmeistarakeppnina í
rallakstri eða NHL-deildina í ís-
hokkíi. Hvoru tveggja á gríðarleg-
um vinsældum að fagna nánast alls
staðar en því eru ekki gerð nein skil
á íþróttarásum Sýnar en þangað
stefna þeir jafnan sem hvað mestan
áhuga hafa á boltaíþróttum. Eru
því hæg heimatökin hjá RÚV að
einbeita sér að öðrum íþróttum.
Stefna RÚV
Hrafnkell Kristjánsson, yfirmað-
ur íþróttadeildar RÚV, viðurkennir
að fyrir komi að hafna verði óskum
um sýningar frá smærri íþróttavið-
burðum vegna kostnaðar en það sé
ekki eina ástæðan. „Ég hef fullan
skilning á stöðu annarra íþrótta-
greina en þeim vinsælustu og geri
mér grein fyrir að það er eitt hlut-
verk okkar að sinna þeim. En fleira
kemur til. Tími okkar er knappur
og samningur um sýningar frá
ákveðnum fjölda handboltaleikja
er til staðar. Þó við gjarna vildum
annað verðum við að velja og hafna
en bjóða í staðinn upp á fjölbreytni
í magasínþáttum okkar. Svo má
heldur ekki gleyma að þó hlutverk
okkar sé vissulega gagnvart öllum
þá er RÚV líka að keppa á markaði
og óeðlilegt væri að leggja þá ekki
áherslu á það vinsælasta hverju
sinni.“
Blakíþróttin Algjör
hending er ef RÚV býð-
ur upp á beinar útsend-
ingar frá öðru en fót-,
hand- eða körfubolta.
Greiða fyrir að-
gang að RÚV
Íþróttafélög eða önnur sambönd sem ekki sinna boltaíþróttum
eiga litla sem enga möguleika að fá efni sitt sýnt á sjónvarpsrás
allra landsmanna nema greiða sérstaklega fyrir
Bætist í sístækkandi hóp ís-
lenskra kylfinga sem leggja at-
vinnumennsku fyrir sig.
Magnús Lárusson úr golf-
klúbbnum Kili er formlega
kominn með atvinnu-
mannapassann og mun keppa
sem slíkur á mótum á Spáni
nú strax í byrjun næsta mán-
aðar. Að Birgi Leif Hafþórs-
syni frátöldum hafa engir at-
vinnukylfingar íslenskir enn
sett mark sitt að ráði á mót er-
lendis.
Atvinnumönn-
um fjölgar
Danskir golfáhugamenn eru
himinlifandi eftir að ljóst varð
að stórstjarnan sænska, Ann-
ika Sörenstam, keppir á
danskri grundu í september
næstkomandi. Gott fyrir Dani
en að líkindum táknrænt fyrir
Anniku hverrar ferill hefur
farið heldur niður á við á
skömmum tíma á tveimur ár-
um.
Niður á við
Heita má að Miami Heat sé í
botnlausu feni. Vart er botn-
inum fyrr náð en liðið sekkur
enn neðar. Nú tapaði liðið fyr-
ir Celtics með 30 stiga mun
sem ekki kemur á óvart nema
hvað Celtics vantaði alla sína
bestu menn.
Botnlaust
Eftir 42 daga hefst fyrsta
keppnin á nýju keppn-
isdagatali í Formúlu 1 en æf-
ingahringir liða hingað til
benda ekki til annars en sömu
tvö liðin, Ferrari og McLaren,
muni berjast um titilinn þetta
árið. Honda, BMW og Renault
eru talin koma næst þessum
tveimur risum en ekki nógu
nálægt til að valda straum-
hvörfum.
42 dagar
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Það má heldur ekki gleyma að RÚV er
einnig að keppa á markaði og óeðli-
legt væri að leggja ekki áherslu á það vin-
sælasta hverju sinni þess vegna líka.
SKEYTIN INN
TVÆR SEM SEGJA MEIRA EN ÞÚSUND ORÐ
Veisla Ein stærsta samkoma brettafólks og ofurhuga fór fram í
Kuala Lumpur í Malasíu um helgina. Allar helstu stjörnur mættu
Gangnaþon! Keppendur í Elb hlaupinu í Hamborg um helgina
hlupu 48 sinnum fram og til baka um 100 ára gömul göngin.