24 stundir - 31.01.2008, Blaðsíða 38
38 FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2008 24stundir
20% aukaafsláttur
af útsöluvörum
Peysuúrval á flottu verði!
p.s. 10% afsláttur
af nýjum vörum
fram á laugardag!
Útsölulok
Laugavegi 44 - 561-4000
„Það vantar ekki húmorinn í
Jónsa. Gott hjá honum að taka
þátt í þessu gríni og gefa kjafta-
sögunum langt nef. Ótrúlegt
hvað þær hafa verið þrautseigar
kjaftasögurnar um kynhneigð
hans. Þegar ég sá fyrirsögn Mbl-
manna þá hélt ég fyrst að Mbl
væri komið í gróusögustílinn!“
Hulda S. Ringsted
ringarinn.blog.is
„Horfði á Kompás um guðs-
manninn Guðmund í Byrginu.
Djöfull reyndi sá að ljúga sig í
gegnum flækjuna... Iron master
væri eflaust enn á fullu með
Biblíuna í einni og klemmurnar í
hinni ef Kompás hefði bara hald-
ið kjafti "af því þetta er svo lítið
land“
Gunnar lárus hjálmarsson
eyjan.is/goto/drgunni
„Tek ofan fyrir Sigurði Ragnari.
Hann lætur sínar stúlkur ekki
komast upp með neinn moðreyk.
Kvennalandsliðið er enginn
saumaklúbbur og því hafa tvær
stelpur fengið að kynnast. Aðrar
stúlkur munu hugsa sig tvisvar
um áður en þær reyna að komast
upp með álíka hegðun.“
Henry Birgir Gunnarsson
blogg.visir.is/henry
BLOGGARINN
Eftir Atla Fannar Bjarkason
atli@24stundir.is
„Við vorum búin að leita í tvo
mánuði og í dag fengum við lykla
að þessu litla húsi sem ég er búin
að láta mig dreyma um svo lengi,“
segir Bryndís Schram, en hún og
Jón Baldvin Hannibalsson festu
nýverið kaup á sumarhúsi í
spænska þorpinu Salobreña við
strönd Miðjarðarhafsins, rétt
sunnan við Granada.
„Það er stórkostlegt útsýni frá
húsinu,“ segir Bryndís. „Í norðri
eru þessi ógnvekjandi hvítu fjöll og
hinum megin er ströndin, hafið og
Afríka – hið gleymda land þarna
hinum megin við sundið.“
Bryndís og Jón Baldvin hafa
flakkað um Evrópu síðastliðið hálft
ár, en hafa loks fundið samastað á
Spáni. „Við erum búin að fara frá
Eystrasalti til Miðjarðarhafs,“ segir
hún og heldur áfram: „Við vorum í
mánuð í Króatíu og í Litháen um
tíma. Síðustu mánuði höfum við
verið á Spáni.“
Ósnortin náttúruperla
Bryndís er hafsjór af fróðleik um
svæðið og hikar ekki við að deila
fróðleik með blaðamanni. „Salo-
breña þýðir hinn salti klettur,“ seg-
ir hún. „Kletturinn er hvítur og rís
eins og líkneski upp úr sléttunni.
Efst trónir gamall kastali frá tím-
um Máranna. Veldi Mára stóð í
700 ár í Andalúsíu. Salobreña er
allt öðruvísi þorp en önnur þorp
við strendur Spánar. Þetta er algjör
náttúruperla, ósnortin og látlaus.“
Spurð hvers vegna Spánn hafi
orðið fyrir valinu segir Bryndís að
mjög einfalt svar sé við því. „Ég
hugsa að það sé fyrst og fremst
heimulleg ást mín á spænskri
tungu. Ég heimsótti Snæfríði dótt-
ur mína í Mexíkó á meðan við
bjuggum í Bandaríkjunum og fékk
þá mikla löngun til að læra málið.
Ég tala frönsku og það var stutt að
fara yfir í spænskuna.“
Stjórnmálin upp á líf og dauða
Bryndís segir spænskuna hafa
verið tómstundagaman í nokkur
ár. „Þegar maður heyrir karlmenn
tala er tungan svo æðrulaus – og
svo dularfull og tragísk af vörum
konunnar,“ segir hún. „Stjórn-
málin hér á Spáni hljóma eins og
þau séu upp á líf og dauða og þau
eru það, enda kosningar í næsta
mánuði. 9. mars verður kosið
þannig að það er mjög spennandi
að vera hérna.“
Jón Baldvin og Bryndís Schram láta gamlan draum rætast
Kaupa hús á Spáni
Hjónin Jón Baldvin og
Bryndís Schram hafa
flakkað um Evrópu í hálft
ár, en hafa nú fundið sér
samastað í sólinni á suð-
urströnd Spánar.
Á ströndinni Jón Baldvin og
Bryndís á göngu á ströndinni
rétt hjá nýja húsinu sínu.
HEYRST HEFUR …
Söngvarinn síhressi Jónsi í Í svörtum fötum, sem
Morgunblaðið ýtti út úr meintum skáp á dögunum,
verður tíður gestur á sjónvarpsskjám landsmanna á
næstu vikum, en kappinn hefur tekið að sér að vera
kynnir í skólahreystikeppninni á Skjá einum. Það
ætti að eiga vel við Jónsa sem hefur aldrei verið
hræddur við að sýna á sviði í hversu góðu formi
hann heldur sér. afb
Páll Óskar Hjálmtýsson er uppbókaður út árið.
Ásamt því að vera upptekinn að fylgja eftir vel-
heppnaðri plötu sinni, Allt fyrir ástina, á hann 15
ára starfsafmæli á árinu, en fyrsta sólóplata hans,
Stuð, kom út árið 1993. Ýmislegt er í bígerð til að
fagna þessum áfanga og í september er meðal ann-
ars von á tvöföldum geisladiski með helstu lögum
frá ferli Palla. re
Annað undanúrslitakvöld Laugardagslaganna verð-
ur á laugardag þegar Doktorarnir; Gunni og Spock
etja kappi við Eurobandið og Pálma Gunnarsson
sem flytur lag Magga Eiríks ásamt Hrund Ósk
Árnadóttur. Gestadómari kvöldsins verður engin
önnur en Magga Stína en hún er mikill reynslu-
bolti á sínu sviði og hefur margoft migið í saltan sjó
popptónlistarinnar. afb
„Þetta árið var skorað á mig að
birtast í sem flestum fjölmiðlum á
einum degi,“ segir Halldór Kristján
Þorsteinsson, hinn skeleggi séra
Skáldskaparfélags Menntaskólans í
Reykjavík.
Halldór Kristján er þátttakandi í
árlegum góðgerðardegi í MR þar
sem nemendur safna áheitum sem
renna til Unicef - barnahjálpar
Sameinuðu þjóðanna.
Sjö fjölmiðlar á einum degi
Halldór hefur fengið góð við-
brögð frá fjölmiðlum og býst við
að birtast á síðum Fréttablaðsins
og DV. Þá hefur Rás 1 tekið boði
hans, en systurstöðin 2 var að
hugsa málið þegar viðtalið var tek-
ið. Þá býst Halldór við því að sjón-
varpsstöðvarnar mæti í MR og
mun hann þá að sjálfsögðu vera í
sviðsljósinu. Með 24 stundum
birtist Halldór því í allt að sjö fjöl-
miðlum á einum degi sem hlýtur
að vera Íslandsmet – allavega í
flokki 20 ára og yngri.
„Meðal þess sem krakkar hafa
tekið sér fyrir hendur er að reyna
við kennara í tímum,“ segir Hall-
dór spurður hvað nemendur leggi
á sig til að styrkja gott málefni á
þessu merkilega degi. „Það hefur
oft endað með því að viðkomandi
nemanda sé vísað út, eða þá að all-
ur bekkurinn fær frí vegna þess að
kennarinn hreinlega bráðnar.“
atli@24stundir.is
Halldór Kristján fórnar sér í þágu málefnis
Íslandsmet í fjöl-
miðlaframkomu
Fjölmiðlakóngur Halldór birtist í
fjölmörgum fjölmiðlum í dag.
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
1 6 3 5 9 8 2 7 4
4 5 2 6 7 1 3 8 9
8 7 9 3 4 2 6 1 5
6 9 7 8 2 3 4 5 1
2 3 4 7 1 5 8 9 6
5 8 1 9 6 4 7 2 3
7 4 5 1 8 6 9 3 2
9 1 6 2 3 7 5 4 8
3 2 8 4 5 9 1 6 7
Ekki láta þér detta í hug að lækka.
24FÓLK
folk@24stundir.is a
Boris Becker og Elton John hafa
aldrei kosið mig, en ég er með
manngleggstu mönnum þegar kemur
að atkvæðum í mínu eigin kjördæmi.
Össur, er ekki bagalegt fyrir ráðherra að vera svona ómannglöggur?
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra, upplýsir á
bloggi sínu að á ferðalagi sínu til Abu Dhabi hafi hann
hvorki þekkt Boris Becker né Elton John í sjón, auk
þekkts bresks sjónvarpsmanns, Tim Sebastina.