24 stundir - 31.01.2008, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2008 24stundir
„Í uppsveitum landsins er spáð
allt að 20 stiga frosti og við höfum
áhyggjur af því að fólk gleymi
hvernig ástandið er í sumarbú-
staðnum hjá því,“ segir Einar Guð-
mundsson, forstöðumaður For-
varnahúss Sjóvár, sem biður fólk að
athuga með sumarbústaði sína fyr-
ir helgi, sennilegt sé að auka þurfi
hita ef fólk er á annað borð með
hita á bústöðunum.
Einar segir töluvert hafa komið
upp af málum í fyrravetur þar sem
vatnsskemmdir urðu í frosthörk-
um, mikið af þeim í sumarbústöð-
um. Einar giskar á að um 10 mál
hafi komið upp í janúar vegna
frostskemmda. „Fólk hefur komið
að bústöðunum sínum í mauki,
margir af þessum sumarbústöðum
eru úr timbri og ef heitt vatn flæðir
um eyðileggst allt,“ segir hann.
Einnig segir Einar mikilvægt að
fólk almennt hugi að geymslum og
bílskúrum þar sem sjaldan er farið
inn. Hann hvetur fólk til að auka
hitann á þessum stöðum svo ekki
sé hætta á að ofnar og leiðslur
spryngi í frostinu.
Þá segir Einar mikilvægt að fyr-
irtæki sem hafa loftræstikerfi hugi
að þeim. „Það eru í loftræstikerf-
unum hitaeliment til þess að dæla
heitu lofti inn í húsin og það þarf
að huga vel að því að þau virki rétt
því þegar svona mikil frost verða er
kanski lítið rennsli um þessi eli-
ment og þá eykst hættan á að þau
frjósi og spryngi,“ segir hann. Þá
þarf að athuga að snjór getur hafa
sest í lokur sem eru á loftræstikerf-
um og eiga að stjórna loftflæði inn
í þau og þar af leiðandi virka þær
ekki sem skyldi.
fifa@24stundir.is
Tryggingafélög vara við frostskemmdum í kuldakasti sem spáð er um helgina
Sumarbústaðir hafa farið í mauk í minna frosti
➤ Búist er við 6-17 gráða frostiá landinu um helgina.
➤ Misjafnt er hversu vel fólk ertryggt fyrir tjóni af völdum
veðurs.
VARAÐ VIÐ VEÐRINU
Ofnar Ef vatn frýs í ofn-
um geta þeir spurngið.
Eftir Þóru Kristínu Þórsdóttur
thorakristin@24stundir.is
„Aðgerðirnar munu frekar nýtast
körlum sýnist mér. Vinnumarkað-
urinn er mjög kynjaskiptur og þess
vegna munu t.d. þeir milljarðar
sem veittir eru í samgönguúrbætur
og viðhald fasteigna fremur gagnast
körlum en konum. Þó eru það að
stórum hluta konur sem missa
vinnuna við aflasamdráttinn,“ segir
Guðbjörg Linda Rafnsdóttir fé-
lagsfræðingur. Í haust var áætlað að
aðgerðirnar myndu skapa 500-600
störf. Nú þegar hefur um 350-400
einstaklingum í fiskvinnslu verið
sagt upp vegna kvótaskerðingar-
innar, að sögn Arnars Sigurmunds-
sonar, formanns Samtaka fisk-
vinnslustöðva. Hann telur að þar af
séu um 250 konur.
„Þetta eru almennar aðgerðir
sem eiga að nýtast bæði körlum og
konum. Það er ekkert ólíklegt að
margar skammtímaaðgerðirnar séu
karllægar en langtímaaðgerðirnar
eiga að koma konum að gagni ekki
síður en körlum. T.d. gagnast úr-
bætur í samgöngumálum báðum
kynjum,“ segir Einar K. Guðfinns-
son sjávarútvegsráðherra.
Hætta á meiri fólksflótta
Í tillögunum er einnig að finna
aðgerðir sem sérstaklega eru ætl-
aðar konum. Annars vegar eru
styrkveitingar til atvinnumála
kvenna auknar um 40 milljónir á
árinu og 20 milljónir lagðar í
Brautargengi Impru, sem er nám-
skeið fyrir athafnakonur. Félags-
málaráðuneytið áætlaði í haust að
þessar aðgerðir geri 100 til 150
konum kleift að skapa sér atvinnu.
„Það er auðvitað jákvætt að fé-
lagsmálaráðuneytið sjái að það
þurfi að taka tillit til atvinnustarf-
semi sem hentar konum. Verra er
að upphæðin skuli ekki einu sinni
ná 100 milljónum. Annars er það
þekkt, bæði hér og erlendis, að
konur flytja frekar frá dreifbýli í
þéttbýli, m.a. vegna þess að enga
vinnu er fyrir þær að fá. Þetta er eitt
af því sem útskýrir fólksflóttann á
undanförnum árum,“ segir Guð-
björg Linda.
Aðgerðirnar gagnast
frekar körlum
Ekki ólíklegt að skammtímaaðgerðirnar séu karllægar, segir sjávarútvegsráðherra
Konur eru í meirihluta þeirra sem missa vinnuna við samdráttinn, segir félagsfræðingur
Fiskverkafólk var eitt
sinn fjölmenn stétt.
➤ Dýrustu skammtímaaðgerð-irnar eru samgönguúrbætur
og viðhald á fasteignum rík-
isins.
➤ Meðal langtímaaðgerða er aðstyrkja menntunarúrræði á
landsbyggðinni.
MÓTVÆGISAÐGERÐIR
Árvakur/RAX
Starfsgreinasambandið og Sam-
tök atvinnulífsins funduðu um
kjarasamninga í gær. Að sögn
Kristjáns Gunnarssonar, formanns
Starfsgreinasambandsins, voru
þættir forsenduákvæða kjarasamn-
inganna ræddir. Hann telur líkur
til þess að samkomulag um for-
sendurnar sé að komast í höfn.
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs-
ins, segir að kominn sé ákveðinn
samhljómur um forsendur kjara-
samninganna. „Við vorum líka að
reyna að ná utan um samningana í
heild. Við fórum yfir kröfugerðina
í heild sinni til þess að átta okkur á
því hvernig málin standa.“ Næsti
fundur hefur verið boðaður á
morgun hjá ríkissáttasemjara. fr
Sátt að nást um forsendur kjarasamninga
Komið á rekspöl
Árvakur/Kristinn Ingvarsson
Svigrúm er í lögum til að veita
atvinnulausu fólki bætur til að
sækja framhaldsskóla sé fjár-
magn fyrir hendi, að sögn
Guðrúnar Stellu Giss-
urardóttur, forstöðumanns á
Vinnumálastofnun Vestfjarða.
Þetta gætu t.d. þeir sem missa
vinnuna vegna uppsagna í
fiskvinnslu nýtt sér. Meðal
mótvægisaðgerða er aukið
framlag til Vinnumálastofn-
unar en einnig er lögð áhersla
á að fjölga menntunar-
úrræðum og að styrkja fram-
haldsskóla á landsbyggðinni.
þkþ
Mótvægisaðgerðir
Geta stundað
nám á bótum
„Það eiga fleiri en 600 eftir að
missa störf út af aðstæðum í
sjávarútvegi og því duga að-
gerðirnar ekki til. Við erum
ekki fullsátt,“ segir Stefán Úlf-
arsson, hagfræðingur hjá ASÍ,
en aðgerðirnar eiga að skapa á
bilinu 500-600 störf. „Okkur
hefur líka fundist þeir fjár-
munir sem fara í vinnumark-
aðsaðgerðir, eins og t.d. til
Vinnumálastofnunar, fremur
litlir,“ segir Stefán. þkþ
ASÍ ekki fullsátt
Aðgerðirnar
duga ekki til
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Óvenjulegt er að svo mikill munur sé á þjónustugjöld-
um bankanna en hér munar 221% þar sem Glitnir
býður best en Kaupþing er með hæsta verðið.
Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum.
Mikill munur á
þjónustugjöldum banka
Brynhildur
Pétursdóttir
NEYTENDAVAKTINN
Seðilgjöld á fasteignalánum í erlendri mynt
Banki Verð Verðmunur
Glitnir 195
Landsbankinn 410 110%
Byr 610 213%
Spron 610 213%
Kaupþing 625 221%
Bæjarráð Fjallabyggðar hefur
ákveðið að lækka álögur á bæj-
arbúa Fjalla-
byggðar vegna
fasteigna-
skatts um
tæplega 6
milljónir
króna. Ákveð-
ið var á bæj-
arráðsfund-
inum að
lækka álagningu fasteignaskatts á
íbúðarhúsnæði úr 0,475% í 0,4%
en það er um 7500 króna lækkun
fyrir hverjar 10 milljónir fast-
eignamats á íbúðarhúsnæði. Auk
þess var ákveðið að hækka afslátt
fyrir aldraða og öryrkja um 5%
og hækka tekjuviðmiðun um
3,3%. mbl.is
Fasteignaskattar
Skattalækkun
í Fjallabyggð