24 stundir - 31.01.2008, Síða 7
24stundir FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2008 7
„Þessi keppni var árið 2006 og ég
var bara búin að steingleyma
þessu,“ segir Sunnefa Pálsdóttir,
vinningshafi í samkeppni um ný
endurskinsmerki sem Umferðar-
stofa og Glitnir stóðu fyrir. Sam-
keppnin var haldin í framhaldi af
átakinu „Gaman að sjá þig“ sem
Umferðarstofa stóð fyrir og miðaði
að því að fá börn og unglinga til að
nota endurskinsmerki.
„Þetta er svona leikur að orð-
um,“ segir Sunnefa um vinnings-
merkið en það heitir endur-skin og
á því er mynd af öndum. Sunnefa
gerir töluvert af því að hanna dót
og hefur meðal annars haldið úti
heimasíðum og hannað ýmislegt
þeim tengt en hún er nemi í tölv-
unarfræði. „Það er ekki hönnunar-
tengt nám nema við hönnum hug-
búnað náttúrlega,“ segir hún.
„ Ég tek öðru hverju þátt í svona
samkeppni ef ég hef ekkert betra að
gera,“ segir Sunnefa og bætir við að
hún taki sérstaklega þátt í ljós-
myndasamkeppnum. „Ég hef rosa-
lega gaman af því að taka myndir
og kannski fikta aðeins í þeim,“
segir hún og bætir við: „Ég er ro-
samikið fyrir myndvinnslu þannig
að það er ekkert ólíklegt að ég fari í
framhaldsnám sem tengist bæði
tölvunarfræði og myndvinnslu.“
Allt of lítið er um að gangandi
vegfarendur noti endurskinsmerki
en þau má nálgast í útibúum Glitn-
is. fifa@24stundir.is
Verðlaun fyrir endurskins „endur-skin“
„Þetta er svona
leikur að orðum“
Eftir Ægi Þór Eysteinsson
aegir@24stundir.is
Bæjarstjórn Ár-
borgar ákvað á
fundi sínum á
mánudaginn að
samþykkja leigu-
samning til tuttugu ára vegna tæp-
lega átta hundruð fermetra hús-
næðis fyrir þjónustumiðstöðvar
aldraðra á Selfossi. Samkvæmt
heimildum 24 stunda greiðir sveit-
arfélagið hæsta leiguverð sem um
getur í Árborg.
Leigusamningurinn hljóðar upp
á 1.840 krónur á fermetrann eða
1,4 milljónir króna á mánuði. Á
samningstímanum greiðir því
sveitarfélagið um 336 milljónir
króna. Fyrirhugað er að húsið rísi í
byrjun árs 2010 og tekur þá leigu-
samningurinn gildi, en hann er
háður vísitölu.
Athugun 24 stunda á leiguverði
á Selfossi leiddi í ljós að meðal-
leiguverð í bænum er í kringum
fimmtán hundruð krónur.
„Þetta er leiguverð sem er sam-
bærilegt og í einhverjum tilvikum
töluvert lægra en leiguverð fyrir
samskonar húsnæði í sveitarfélög-
um í nágrenni Reykjavíkur,“ segir
Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjar-
stjóri Árborgar.
„Þarna er um að ræða húsnæði
sem er sérhannað fyrir tiltekna
starfsemi. Viðmiðunarverðið sem
tekið hefur verið sem dæmi á við
einfalt skrifstofuhúsnæði sem fyrir
er og svo hefur leiguverð hækkað á
Selfossi undanfarið.“
Byggingin án byggingarleyfis
Bæjaryfirvöld hafa enn ekki gef-
ið út byggingarleyfi vegna fyrirhug-
aðrar byggingar. Húsið á að rísa á
svæði sem mikill styr hefur staðið
um og hafa íbúar kært deiliskipu-
lagið til úrskurðarnefndar skipu-
lagsmála, sem enn hefur ekki úr-
skurðað um málið.
Bæjarstjórnin hefur verið gagn-
rýnd fyrir samþykkja leigusamn-
inginn áður en úrskurðarnefndin
hafi lokið sinni vinnu.
„Við teljum engu skipta hvort
við göngum frá samningnum núna
eða seinna því það liggur fyrir að
við ætlum í samstarf með bygging-
araðilanum og leigusamningurinn
tekur ekki gildi fyrr en við tökum
við húsnæðinu. Nefndin hefur ekki
sett fram stöðvunarkröfu á fram-
kvæmdir og því höldum við
áfram.“
Tuttugu
ára leiga
Bæjarstjórn Árborgar gerir 20 ára leigu-
samning Hæsta leiguverð á Selfossi
➤ Samkvæmt heimildum 24stunda er hæsta leiguverð á
Selfossi á bilinu 1.600 til
1.700 krónur fyrir fermetr-
ann.
➤ Leiga fyrir iðnaðarhúsnæðier í kringum 1.000 krónur fyr-
ir fermetrann.
LEIGUVERÐ Á SELFOSSI
Ráðhús Árborgar Bæjaryf-
irvöld samþykktu leigusamning
fyrir húsnæði sem er ekki til.
SELFOSS