24 stundir - 31.01.2008, Side 9
24stundir FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2008 9
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@24stundir.is
Verði tilskipun sem færir flug-
samgöngur undir viðskiptakerfi
Evrópusambandsins (ESB) um
losun gróðurhúsalofttegunda inn-
leidd í EES-samninginn óbreytt
gætu íslensk flugfélög þurft að
kaupa losunarheimildir fyrir um-
framlosun sína. Hérlendis eru yfir
80 stórar flugvélar á skrá og sam-
kvæmt lauslegri áætlun Flugmála-
stjórnar er losun þeirra hlutfalls-
lega mun meiri en hjá öðrum
ríkjum sem samningurinn nær til.
Umhverfisráðherrar ESB-ríkjanna
fjölluðu um tillöguna á fundi
skömmu fyrir jól og varð sam-
staða þeirra á milli um að allt flug
verði komið inn í kerfið frá 2012
og að losunarheimildirnar muni
nema 100 prósentum af meðaltali
viðmiðunaráranna 2004 til 2006.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í skýrslu utanríkisráðherra
um Ísland á innri markaði Evr-
ópu sem kynnt verður á Alþingi í
dag.
Flugstarfsemi undir gildissvið
Tilskipun Evrópuþingsins og
ráðsins um kerfi fyrir viðskipti
með losunarheimildir gróður-
húsalofttegunda innan ESB var
tekin inn í EES-samninginn þann
26. október síðastliðinn. Kerfið
gerir fyrirtækjum kleift að eiga
viðskipti með losunarheimildir
sem þeim hefur verið úthlutað.
Núverandi gildissvið viðskipta-
kerfisins miðast við losun á kolt-
víoxíði frá tilgreindri starfsemi
svo sem orkuframleiðslu og jarð-
efnaiðnaði.
Innan ESB er þó stefnt að því
að rýmka gildissviðið út til ann-
arra atvinnugreina og lofttegunda
og samkvæmt tillögu fram-
kvæmdastjórnar ESB felst breyt-
ingin helst í því að flugstarfsemi
yrði felld undir gildissvið tilskip-
unarinnar. Í skýrslu utanríkisráð-
herra segir að þar sem tilskipunin
sé þegar hluti af EES-samningn-
um séu „yfirgnæfandi líkur á að
tillaga um breytingu á tilskipun-
inni sem færir flug undir þetta
kerfi komi einnig til með að falla
undir EES-samninginn“.
Guðjón Arngrímsson, upplýs-
ingastjóri Icelandair, segir að fyr-
irtækið fylgist grannt með um-
ræðunni um þessi mál. „Það er
erfitt að geta sér til hvaða þýð-
ingu þetta myndi hafa því í raun-
inni á eftir að ákveða alla tækni-
lega og siðferðislega útfærslur á
þessu. Sem stendur veit í raun
enginn til hvers þetta mun leiða.
Við fylgjumst mjög náið með og
höfum samband við Flugmála-
stjórn, utanríkis- og umhverfis-
ráðuneytið vegna hugsanlegra af-
leiðinga hér.“
ESB gerir kröfu um að
flugfélög kaupi kvóta
„Yfirgnæfandi líkur“ á að íslensk flugfélög þurfi að kaupa losunarheimildir
Icelandair hefur rætt
við stjórnvöld um hugs-
anlegar afleiðingar hér.
➤ Tilskipun um kerfi fyrir við-skipti með losunarheimildir
gróðurhúsalofttegunda var
tekin inn í EES sl. haust.
➤ Umhverfisráðherrar ESB viljaað allt flug verði komið inn í
kerfið frá 2012.
➤ Samkvæmt lauslegri áætlun losar íslenski flugvélaflotinn
meira en stórar flugvélar í
ESB-ríkjum.
LOSUNARKVÓTAR
Árvakur/Árni Sæberg
Hitaveita á
Íslandi á
hundrað ára
afmæli um
þessar
mundir. Af
því tilefni
hefur Sam-
orka, sam-
tök orku- og veitufyrirtækja,
látið hanna merki fyrir ald-
argamla hitaveitu Íslendinga.
Afmæli hitaveitu á Íslandi
miðast við frumkvöðulsstarf
Stefáns B. Jónssonar sem
virkjaði hver til húshitunar á
Suður-Reykjum í Mosfells-
sveit árið 1908. bee
Nýtt merki
Hitaveita 100
Slysavarnafélagið Landsbjörg
gaf Landhelgisgæslunni leit-
arbúnað til að leita að fólki í
snjóflóðum í tilefni af afmælis
félagsins.
Landsbjörg er áttatíu ára og
hélt afmælishátíð í Listasafni
Reykjavíkur að viðstöddu fjöl-
menni. Búnaður í tvær þyrlur
er væntanlegur síðari hluta
febrúar. bee
Slysavarnafélag 80
Landsbjörg
„Svo vel hefur tekist að ná niður
kamfýlóbaktersmiti í alifuglum á
Íslandi að eftir því er tekið erlend-
is,“ segir Sigurborg Daðadóttir,
dýralæknir alifuglasjúkdóma hjá
Matvælastofnun, en hún ræddi um
baráttuna við kamfýlóbakter í
kjúklingaeldi á opnum fundi um
málið sem haldinn var á Keldum í
gær.
„Stjórnvöld einsettu sér að ná
niður kamfýlóbektersýkingum árið
1999 og gripið var til aðgerða til
þess, annars vegar með því að upp-
fræða fólk um smitleiðir og það
hvernig meðhöndla ætti mat og
varast krosssmit,“ segir Sigurborg.
Hins vegar var farið í aðgerðir á
kjúklingabúunum sem helst gengu
út á fræðslu og smitvarnir, þó ekki
hafi nákvæmlega verið vitað hvern-
ig kamfýlóbakter smitaðist.
Sigurborg segir íslensk kjúk-
lingabú í háum gæðaflokki vegna
þess að fast hafi verið tekið á þess-
um málum. Skyldað var að taka
sýni úr öllum hópum sem koma til
slátrunar fyrir slátrun en líka eftir
slátrun. Séu þau jákvæð má ekki
selja kjúklinginn nema frysta hann
eða steikja en við geymslu í frysti
drepast allt að 90% af bakteríun-
um. „Það er mikið í húfi fyrir kjúk-
lingabændur að koma vörunni
ferskri á markað en hérlendis eru
um 80% af kjúklingum seld fersk.“
Á fundinum talaði Birthe Hald,
danskur dýralæknir, um tilraunir í
Danmörku sem ganga út á að gera
fuglahús fluguheld, með því að
pakka þeim inn í flugnanet. Með
því tókst að minnka tíðni kamfýló-
bakter svo mikið að sumir bæir
urðu alveg lausir við smit.
Sigurborg segir þetta leið sem
vert sé að skoða hérlendis en bætir
því við að það verði ekki auðvelt að
finna lausn sem dugir í veðráttunni
hérlendis. fifa@24stundir.is
Barátta við kamfýlóbaktersmit í alifuglum gengur vel
Pakka kjúklingabúum inn í flugnanet
➤ Kamfýlóbakter í mönnumveldur bólgu í smáþörmunum
og niðurgangi.
➤ Einkenni hennar eru meðalannars vatnskenndur nið-
urgangur, lystarleysi og kvið-
verkir, hiti og blóð í hægðum.
KAMFÝLÓBAKTER
Fluguheld? Ýmsar leiðir
eru notaðar gegn kam-
fýlóbakter.
Talið er að syfja og þreyta við
akstur sé fjórða algengasta or-
sök alvarlegra umferðarslysa.
Syfja og akstur verður um-
fjöllunarefni málþings sem
Umferðarstofa heldur á morg-
un. Þar verður fjallað um
hættuna sem stafar af syfju og
þreytu við akstur og greint frá
leiðum til að minnka líkur á
að ökumenn sofni meðan á
akstri stendur. Þingið er öll-
um opið. bee
Hættulegur svefn
Algeng slys