24 stundir - 31.01.2008, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2008 24stundir
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
4
07
10
0
1/
08
Óþarfa gluggapóstur finnur sér leið inn á of mörg heimili í dag.
Á tímum rafrænna greiðslna og vefvæðingar ætti gluggapóstur
fyrir löngu að vera leifar gamals tíma, sóunar og óskynsemi.
Svo ekki sé minnst á umhverfisspjöllin.
Með því að fara inn á www.or.is/bodgreidslur getur þú lagt þitt af mörkum
til umhverfisverndar og borgað reikningana þína með boðgreiðslum.
Enginn pappír, enginn gluggapóstur, ekkert vesen.
Skiptu yfir í boðgreiðslur
• Ef allir viðskiptavinir OR skipta yfir í boðgreiðslur sparast 7068 kg
af pappír á ári eða 295 tré.
www.or.is
Fyrstu 100 sem skipta
yfir í boðgreiðslur
fá glaðning frá
Orkuveitu Reykjavíkur
Er þetta
ekki orðið
ágætt?
Eftir Frey Rögnvaldsson
freyr@24stundir.is
Mikil fjölgun mjög dýrra lúxusbíla
á Íslandi knýr tryggingafélögin til
þess að hækka iðgjöld fyrir kaskó-
tryggingar. Af stóru tryggingafélög-
unum fjórum, VÍS, Sjóvá, Trygg-
ingamiðstöðinni (TM) og Verði,
hefur eitt þeirra, VÍS, þegar lagt
álag á iðgjöld kaskótrygginga dýr-
ari bíla. Samskonar breytingar eru
til skoðunar hjá Verði og TM en hjá
Sjóvá bíða menn átekta. Hjá öllum
félögunum leggst þó á aukaálag á
þegar vátryggingafjárhæð fer yfir
ákveðin mörk.
Iðgjald miðist við verðmæti
Guðmundur Örn Gunnarsson,
forstjóri VÍS, segir að þar á bæ hafi
menn nú þegar tekið upp álag á ið-
gjald kaskótrygginga fyrir dýrari
bíla. „Við endurskoðuðum okkar
gjaldskrá vegna fjölgunar dýrra bíla
á götunum. Við þurfum auðvitað
af stilla iðgjald af miðað við verð-
mæti bíla og áhættu. Verðbil á bíl-
um hefur aukist mjög á síðari árum
og þetta er einn angi þess.“
Sífelld endurskoðun
Sigmar Scheving, forstöðumað-
ur einstaklingsþjónustu hjá TM,
segir að þar á bæ sé lagt iðgjaldsá-
lag á kaskótryggingar fyrir bíla sem
eru yfir 6,5 milljónir að vátrygging-
arfjárhæð. „Þetta álag var fjórar
milljónir hjá okkur áður en við
ákváðum að hækka það vegna sam-
keppnissjónarmiða. Þetta var ekki
tekið upp vegna mikillar fjölgunar
lúxusbíla á síðustu árum en við er-
um alltaf með okkar tryggingar í
endurskoðun og meðal annars er
sérstaklega verið að skoða hærra
álag á þessa dýru bíla. Vonandi lýk-
ur þeirri vinnu fljótlega.“
Guðmundur Jóhann Jónsson,
framkvæmdastjóri Varðar, segir að
það sé á umræðustigi hjá félaginu
að taka upp sérstakar tryggingar
fyrir lúxusbíla. „Við höfum samt
lengi lagt sérstakt viðbótariðgjald á
kaskótryggingar á dýrari bílum.
Þau mörk hjá okkur eru 4,5 millj-
ónir. Við erum hins vegar að skoða
hvort við ættum að fjölga trygg-
ingaflokkum svo iðgjaldið haldist í
hendur við verðgildi bílanna.“
Iðgjald sé ekki niðurgreitt
Þór Sigfússon, forstjóri Sjóvár,
segir að ekki hafi verið skoðað sér-
staklega hjá fyrirtækinu að setja
aukaálag á lúxusbíla eða dýrari
bíla. „Við pössum upp á að eig-
endur dýrari bifreiða greiði iðgjald
í samræmi þá áhættu sem af þeim
hlýst. Við höfum ekki sérstaklega
brugðist við fjölgun lúxusbíla þó
að við vitum af henni. Við pössum
bara upp á að þeir sem tryggja hjá
okkur ódýrari bíla séu ekki að nið-
urgreiða iðgjaldið fyrir þá sem
tryggja dýrari bíla. Við erum hins
vegar að fylgjast með þessu frá degi
til dags og ef við greindum að þró-
unin væri að verða slík myndum
við bregðast við því og mögulega
leggja aukið álag á þessa dýru bíla.“
ÞEKKIR ÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á frettir@24stundir.is
Lúxusinn er dýr
Iðgjald fyrir kaskótryggingar lúxusbíla hækkar hjá tryggingafélögunum Mikil fjölgun
lúxusbíla síðustu ár ástæðan Verðmæti bíls og iðgjald verður að fylgjast að
IÐGJÖLD KASKÓTRYGGINGA
Range Rover 2008
Verðmæti: 15 milljónir
Toyota LandCruiser 2008
Verðmæti: 4,8 milljónir
147.041
78.000 73.483
84.868
29.231
38.000 46.482 35.067
➤ Öll tryggingafélögin leggjaálag á iðgjald kaskótrygginga
þegar vátryggingarfjárhæð
fer yfir ákveðin mörk.
➤ Hjá VÍS eru mörkin sex millj-ónir og hjá TM eru þau 6,5
milljónir.
➤ Hjá Sjóvá eru mörkin áttamilljónir en hjá Verði eru þau
4,5 milljónir.
TRYGGINGAÁLAG
Kaskótryggingar bíla hjá trygg-
ingafélögunum hafa skilað tapi
undanfarin ár. Frá því í febrúar í
fyrra hafa öll stóru tryggingafélög-
in hækkað iðgjöld á kaskótrygging-
um hjá sér. Guðmundur Jóhann
Jónsson, framkvæmdastjóri Varð-
ar, segir að tap á kaskótryggingum
hafi aukist mjög hjá fyrirtækinu á
milli áranna 2006 og 2007. „Við
hækkuðum iðgjöldin hjá okkur um
fimmtán prósent um síðustu ára-
mót en ég veit að það mun ekki
duga til að snúa rekstrinum á þess-
um tryggingum við.“
Sjóvá hækkaði sín iðgjöld um
fimm prósent í febrúar 2007 og hjá
TM hækkuðu iðgjöldin af kaskó-
tryggingunum um fimmtán pró-
sent í júlí á síðasta ári. VÍS hækkaði
iðgjaldið hjá sér um síðustu áramót
um fimm prósent en sú hækkun
náði ekki alveg til allra hópa. Hjá
öllum fyrirtækjunum efast menn
um að hækkunin muni duga til að
rétta við reksturinn og frekari að-
gerðir eru í skoðun. fr
Hækkanir
duga ekki
Kaskótryggingar
skila tapi hjá trygg-
ingafélögunum
Heilbrigðisráðherra hefur úthlutað 164 milljónum króna í styrki úr
Framkvæmdasjóði aldraðra. Akraneskaupstaður fékk 27,2 milljónir
króna til að kaupa fasteign fyrir félagsstarf aldraðra. Hjúkrunarheim-
ilið Eir fékk 15 milljónir til að reisa dagdeild fyrir 20 í Spönginni í
Reykjavík. Snæfellsbær fékk 30 milljóna styrk til að byggja 12 rýma
hjúkrunarheimili. Reykjavíkurborg fékk 18 milljónir í dagvist-
arhúsnæði fyrir heilabilaða. Hafnafjarðarbær fékk 4,5 milljónir til að
breyta fasteign fyrir heilabilaða. Kópavogsbær fékk 60 milljónir króna
í nýtt hjúkrunarheimili. Þetta var síðasta úthlutun heilbrigðisráðherra
úr sjóðnum sem nú flyst milli ráðuneyta. bee
160 milljónir til aldraðra
Geir H. Haarde forsætisráðherra
heimsækir Lúxemborg og Belgíu í
síðari hluta febrúar til viðræðna
við forsætisráðherra ríkjanna.
Hann ræðir líka við fulltrúa í
framkvæmdastjórn ESB og fram-
kvæmdastjóra Atlantshafs-
bandalagsins.
Geir hittir Jean-Claude Juncker,
forsætisráðherra Lúxemborgar,
og kynnir sér starfsemi íslenskra
fjármálafyrirtækja.
Þá fer Geir til Belgíu og hittir
Guy Verhofstadt forsætisráðherra
og Jaap de Hoop Scheffer, fram-
kvæmdastjóra NATO. mbl.is
Geir Haarde til
Belgíu og Lúx
Hæstiréttur hefur staðfest úr-
skurði Héraðsdóms Reykjavíkur
um að tveir Litháar, sem voru í
síðustu viku dæmdir í 5 ára fang-
elsi fyrir nauðgun, sæti gæslu-
varðhaldi á meðan áfrýj-
unarfrestur til Hæstaréttar varir.
Nauðgarar
áfram í gæslu
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
vísað frá 42,5 milljóna bótakröfu
manns á hendur ríkinu. Skaða-
bótakrafan var lögð fram í kjölfar
þess að maðurinn vann mál á
hendur ríkinu fyrir Mannrétt-
indadómstóli Evrópu.
Maðurinn tapaði árið 1997 skaða-
bótamáli gegn Landsbankanum í
Hæstarétti en maðurinn taldi sig
hafa orðið fyrir tjóni vegna sak-
næmrar háttsemi starfsmanns bankans. Mannréttindadómstóll Evr-
ópu komst árið 2003 að niðurstöðu um tengsl eins af dómurunum við
Landsbankann, sem maðurinn hefði getað óttast. Héraðsdómur taldi
ógerlegt að taka afstöðu til bótakröfu mannsins.
mbl.is
Bótakröfu vísað frá