24 stundir - 31.01.2008, Síða 20
20 FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2008 24stundir
Lestrarskóli
Helgu Sigurjónsdóttur
Meðalbraut 14, 200 Kópavogi
,,Læs“ á átta vikum
Byrjendanámskeið í lestri.
Næsta lestrarnámskeið hefst 6. febrúar og lýkur 27. mars
Námið er ætlað fjögurra og fimm ára börnum en hentar líka
eldri börnum sem hefur borið upp á sker í lestrinum.
Kennt er hálftíma á dag fjórum sinnum í viku. Hópar eru
fjórir kl. 8.00 8.30 9.00 og 16.00 Verð kr. 30.000, námsefni
er innifalið.
Skóli Helgu Sigurjónsdóttur
Meðalbraut 14 í Kópavogi.
Netfang: helgasd@internet.is
Veffang: www.skolihelgu.is
S. 554 2337og 696 2834.
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@24stundir.is
Kviksaga, í samstarfi við Listasafn
Reykjavíkur og rannsóknarverk-
efnið Ísland og ímyndir norðurs-
ins, frumsýnir heimildarmyndina
Huldufólk 102 eftir bandarísku
kvikmyndagerðarkonuna Nisha
Inalsingh á löngum fimmtudegi í
Hafnarhúsinu í kvöld. Í myndinni
kannar hún mismunandi skoðanir
Íslendinga til huldra vætta, kafar
ofan í reynslusög-
ur og tengir við
hnattræna stöðu
landsins og kemst
meðal annars að
því að lífseig
þjóðtrú mótar líf
Íslendinga, gatna-
kerfi og jafnvel
dagleg samskipti.
Þjóðfræðingurinn
Kristinn Schram
fylgir myndinni úr
hlaði og tekur ásamt öðrum þátt í
umræðum um hana eftir sýn-
inguna. Hann segir myndina afar
forvitnilega og gefa nokkuð raun-
sanna mynd af þjóðtrú Íslendinga.
„Rannsóknir hafa sýnt að huldu-
fólkstrúin lifir ennþá með þjóð-
inni, að minnsta kosti í einhverri
mynd, en í þessari heimildarmynd
er annars vegar talað við Íslendinga
sem segja skoðanir sínar á fyrir-
bærinu huldufólk og hins vegar er
talað við fólk sem segist beinlínis
hafa séð huldufólki bregða fyrir.
Eitt það athyglisverðasta við mynd-
ina er að í henni sameinast sýn út-
lendingsins á þetta framandi land
sem Ísland er og svo sjálfsmynd
okkar sjálfra,“ segir hann.
Aðspurður segir hann ímyndina
af þjóðtrú Íslendinga vissulega vera
á margan hátt ýkta. „Í þessari
mynd er vissulega ákveðin fram-
andgerving á landi og þjóð, hversu
æskileg sem okkur kann að þykja
hún vera. Margir líta á trú á huldu-
fólk, álfa og tröll sem eintómt
húmbúkk á meðan aðrir líta
kannski á þetta sem ákveðinn túr-
isma, ef svo má segja. En hvort sem
okkur líkar betur eða verr er þetta
ákveðin hlið á okkar landi og þjóð
sem sjálfsagt er að skoða.“
Lifandi trú
Kristinn segir að ólíkt því sem
margir kunni að halda hafi ekki
dregið úr þjóðtrú Íslendinga á
undanförnum 30 til 40 árum.
„Þjóðin er náttúrlega fræg fyrir það
á alþjóðavettvangi að hafa meiri
trú á yfirskilvitlegum fyrirbærum
en nágrannaþjóðirnar og margir
telja að dregið hafi úr henni á und-
anförnum árum. En samkvæmt
rannsókn sem félagsvísindadeild
Háskóla Íslands gerði hefur hún
staðið í stað og jafnvel aukist á
sumum sviðum.“
Kristinn segist hafa heyrt ágætis
mælikvarða á trú á huldar vættir
frá prófessor í þjóðfræði. „Hann
benti á að ef menn ætluðu að setja
upp heitan pott í garðinum sínum,
en að þá birtist þeim einhver í
draumi sem segði að huldufólk
byggi í steininum sem væri þarna
fyrir, þá væri prófsteinninn sá
hvort þeir myndu ákveða að færa
pottinn eða ekki í kjölfarið.“
Sýningin hefst klukkan 17.30.
Huldufólk 102 sýnd í Hafnarhúsi í kvöld
Framandgerving
á landi og þjóð
Áður en landnámsmenn
komu til landsins lögðu
þeir hulu yfir höfuð drek-
anna á víkingaskipunum
til að styggja ekki huldar
vættir. Og þvert á það
sem ýmsir telja lifir
þjóðtrúin ennþá góðu lífi
meðal Íslendinga.
Dularfullur steinn
Skyldi huldufólk
búa hér?
➤ Nafnið á myndinni vísar í Álf-hól í Kópavogi þar sem til
stóð að reisa hús á sínum
tíma en var hætt við þar sem
ýmsir töldu álfa búa í hóln-
um. Hóllinn hefur sitt eigið
heimilisfang, Álfhólsvegur
102.
HULDUFÓLK 102
Nisha Inalsingh
Kvikmynda-
gerðarkona.
Árvakur/Jónas Erlendsson
Alþjóðavæðingin tekur á sig
margvíslegar myndir og ekki síð-
ur í listinni en á öðrum sviðum.
Mikill hagvöxtur og uppbygging
hefur verið í Kína á und-
anförnum árum og hafa Kínverjar
ekki síður þegið áhrif frá Vest-
urlöndunum heldur en Vest-
urlönd frá Kína. Nýlegt dæmi um
vestræn áhrif í kínversku menn-
ingarlífi er óperan „Farewell My
Concubine“ eftir óperuskáldið
Xiao Bai, en það er allt í anda
klassískra ítalskra óperuverka.
Verkið var frumsýnt í Kínversku
óperunni á sínum tíma en nú eru
aðstandendur sýningarinnar á
ferðalagi um Bandaríkin þar sem
þeim hefur verið vel tekið af óp-
eruunnendum. Klassísk tónlist frá
Vesturlöndum nýtur sívaxandi
vinsælda í Asíu og ekki síst Kína,
þar sem þarlendar óperur hafa
þurft að keppa um hylli áhorf-
enda við þær klassísku vestrænu
með misjöfnum árangri. En þótt
Xaio Bai þyki vel hafa tekist til og
söngvararnir standi sig með prýði
hefur verkið vakið blendnar til-
finningar hjá unnendum klass-
ískra ítalskra óperuverka, enda
óhjákvæmilega erfitt að líkja eftir
þeim. Bjartsýnismenn segja þó
enga ástæðu til að óttast að um
skrumskælingu á klassískri óp-
eruhefð sé að ræða, heldur benda
á að með þessu hjálpi Kínverjar
til við að hafa hana í heiðri.
Kínverjar undir áhrifum vestrænnar menningar
Ópera með ítölsku sniði
Bjarni Helgason opnar sýn-
inguna Framandleiki – Nútíma-
landslag í ljósaskiltunum í Lista-
safni Borgarness næstkomandi
laugardag, 2. febrúar.
Á sýningunni eru sex prentuð
verk í 1,5 x 1 metra ljósakössum.
Um er að ræða nútímalandslags-
myndir þar sem leitast er við að
gera hið hversdagslega framandi og
það kunnuglega spennandi með
því að beina sjónum áhorfandans
að borgarlandslaginu sem líður hjá
án þess að við veitum því eftirtekt.
Verkin eru unnin úr skjámynd-
um úr myndskeiðum sem ýmist
eru tekin á ferð eða af viðfangs-
efnum sem hreyfast. Sýningin
verður opnuð klukkan 16 og eru
allir velkomnir.
Bjarni Helgason sýnir í Listasafni Borgarness
Framandleiki
Á ferð Hið hversdagslega
er gert framandi og hið
kunnuglega spennandi.
Á tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands í kvöld leiða sam-
an hesta sína tveir tónlistarmenn
sem eiga ættir að rekja til tveggja
stórmenna tónlistarsögunnar.
Brasilíski hljómsveitarstjórinn
John Neschling á ættir að rekja til
tónskáldsins Arnolds Schönbergs
og eins og nafnið bendir til er
fiðluleikarinn Natasha Korsakova
afkomandi hins rómaða rúss-
neska tónskálds Nikolaj Rimskíj-
Korsakovs. Hún leikur sívinsælan
fiðlukonsert Brahms, en auk hans
eru á efnisskránni Sinfónía núm-
er 2 eftir Rakmaninoff og bras-
ilískur konsertforleikur eftir Car-
margo Guanieri. Fyrir tónleikana
verður haldinn súpufundur Vina-
félags Sinfóníuhljómsveitarinnar
og þar mun Árni Heimir Ingólfs-
son, tónlistarstjóri SÍ, segja frá
verkunum sem flutt verða. Fund-
urinn verður haldinn á Hótel
Sögu og hefst klukkan 18.
Tónleikar og
súpufundur
MENNING
menning@24stundir.is a
Margir líta á trú á huldufólk, álfa og
tröll sem eintómt húmbúkk á meðan
aðrir líta kannski á þetta sem ákveðinn
túrisma, ef svo má segja.
Bryndís Baldvinsdóttir, formaður
Tónmenntakennarafélags Íslands,
tók í gær við fyrsta ævintýrapakk-
anum sem kenndur er við Skila-
boðaskjóðuna úr hendi Vigdísar
Jakobsdóttur, deildarstjóra
fræðsludeildar Þjóðleikhússins,
og Jóhanns G. Jóhannssonar, tón-
listarstjóra leikhússins. Í pakk-
anum eru nótur með lögum úr
söngleiknum um Skilaboðaskjóð-
una, diskur með tónlistinni auk
fræðslupakka um sýninguna.
Skilaboðaskjóðan, sem er eftir
Þorvald Þorsteinsson og með
tónlist eftir Jóhann G. Jóhanns-
son, er sígilt barnaleikrit og hefur
verið sýnt fyrir fullu húsi á Stóra
sviðinu síðan í haust. Tónlistin
var gefin út á geisladisk sem seld-
ist fljótt upp og hefur verið ófá-
anlegur um árabil, en nú hefur
hann verið endurútgefinn.
Fræðslupakkarnir eru nú sendir
öllum tónmenntakennurum
grunnskólanna ásamt geisladiski
með tónlistinni og nótum að
nokkrum laganna.
Sívinsælt barnaleikrit