24 stundir - 01.02.2008, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2008 24stundir
Á forsíðu 24 stunda í gær var
sagt frá fyrirtæki sem Jónas Ingi
Ragnarsson stofnaði nýverið til að
veita fyrrverandi og núverandi
föngum aukin atvinnutækifæri. Í
greininni var haft eftir honum að
fyrirtækið hygðist bjóða upp á
símsvörunarþjónustu, sem fangar á
Kvíabryggju myndu sinna. Nokkrir
samningar væru í höfn og um sam-
starfsverkefni væri að ræða við
Fangelsismálastofnun.
„Fangelsismálastofnun hefur
ekki gert samning við Hjúp ehf.
um að fangar á Kvíabryggju taki
þátt í símsvörunarþjónustu fyrir
fyrirtækið, né stendur til að gera
slíkan samning,“ segir Páll Egill
Winkel, forstjóri Fangelsismála-
stofnunar.
„Verði breytingar á vinnu fanga
verður það gert á forsendum Fang-
elsismálastofnunar.“ æþe
Fangelsismálastofnun kemur af fjöllum
Fangar verða ekki
seldir út til vinnu
Þeir Sigurður Pálsson og Þor-
steinn Þorsteinsson fengu í
gær Íslensku bókmenntaverð-
launin, Sigurður í flokki fag-
urbókmennta fyrir Minnisbók
og Þorsteinn í flokki fræðirita
fyrir bókina Ljóðhús, þar sem
fjallað er um Sigfús Daðason.
Verðlaunin voru afhent á
Bessastöðum.
Bókmenntaverðlaunin nema
750 þúsund krónum í hvorum
flokki, auk þess sem afhent
eru skrautrituð verðlauna-
skjöl og verðlaunagripir hann-
aðir af Jóni Snorra Sigurðs-
syni á Gullsmíðaverkstæði
Jens. Um er að ræða opna bók
á granítstöpli með nafni verð-
launahöfundar og bókar hans.
mbl.is
Verðlaunaðir
fyrir bækur
Eftir Frey Rögnvaldsson
freyr@24stundir.is
„Maður byrjaði bara að púsla þessu
saman í hausnum,“ sagði Einar
Jökull Einarsson sem ákærður er
fyrir skipulagningu á fíkniefnainn-
flutningi í Pólstjörnumálinu. Aðal-
meðferð í málinu fór fram í gær og
játuðu allir sakborningarnir sex að-
ild að málinu að hluta eða í heild.
Neitaði að nefna höfuðpaurinn
Einar Jökull greindi frá því að
maður hefði komið að máli við sig
í maí árið 2007 og beðið sig að
skipuleggja innflutning á fíkniefn-
um frá Danmörku til Íslands.
„Hann spurði mig hvort ég gæti
ekki græjað þetta.“ Einar Jökull var
rólegur í réttarsalnum, virtist jafn-
vel í léttu skapi og svaraði spurn-
ingum greiðlega. Hann kvaðst bera
einn ábyrgð á skipulagningu á inn-
flutningnum en neitaði að hafa
fjármagnað hann. Þegar Einar Jök-
ull var beðinn um að nafngreina
þann sem bað hann um að flytja
efnin til landsins neitaði hann því.
Einar Jökull sagði að fljótlega hefði
komið upp sú hugmynd að flytja
efnin sjóleiðina til Íslands. „Ég átti
skútu í Noregi. Ég hef siglt áður til
Íslands og það var ekkert mál.“
Fór að líða illa
Bjarni Hrafnkelsson játaði að
hafa pakkað hluta af efnunum í
íbúð í Kaupmannahöfn. Hann
neitaði því hins vegar að hafa átt
aðra aðild að málinu. Bæði Bjarni
og Einar Jökull báru að það hefði
verið hálfgerð tilviljun að Bjarni
hefði verið fenginn til verksins.
Þeir hafi hist fyrir tilviljun og Einar
Jökull beðið hann um verkið.
Bjarni hafi samþykkt það fyrir
kunningsskap við Einar Jökul.
Hann hafi farið í íbúð í Kaup-
mannahöfn eftir bendingu Einars
Jökuls þar sem efnin hafi verið. Þar
hafi hann pakkað hluta af efnunum
í viðurvist annars manns sem hann
þekkti ekki. Hann hafi hins vegar
ekki pakkað þeim öllum. „Mér fór
bara að líða illa þarna og ýtti þessu
yfir á þann sem var þarna.“
Játuðu allir aðild
Hinir sakborningarnir fjórir ját-
uðu aðild sína að málinu. Guð-
bjarni Traustason og Alvar Óskars-
son játuðu að hafa siglt skútunni til
Íslands með fíkniefnin innanborðs.
Marinó Einar Árnason játaði að
hafa ætlað að taka við efnunum á
Fáskrúðsfirði en hafnaði því að
hafa ætlað að taka þátt í dreifingu
efnanna. Arnar Gústafsson játaði
að hafa ætlað að geyma efnin fyrir
Einar Jökul en kvaðst að öðru leyti
ekki hafa haft afskipti af málinu.
Verjendur mannanna lögðu
áherslu á að þeir hefðu ekki komið
að skipulagningu smyglsins.
Átti að græja
innflutninginn
Einar Jökull Einarsson segist einn hafa skipulagt Pólstjörnumálið
Neitaði að nefna höfuðpaurinn Farið fram á harðar refsingar
➤ Saksóknari krefst hámarks-refsingar yfir þremur af
mönnunum í Pólstjörnumál-
inu, eða tólf ára fangels-
isvistar.
➤ Jafnframt var krafist harðrarefsinga yfir öllum sakborn-
ingum.
➤ Því mótmæltu verjendur.Bentu þeir bæði á að sak-
borningar hefðu átt mismik-
inn þátt í málinu og jafnframt
að þeir hefðu játað brot sín
greiðlega.
REFSIKRÖFUR
Árvakur/Kristinn
Skipulagði smyglið
Einar Jökull Einarsson
gengur í dómsal.
„Ég er sannfærð um að
með því að leggja saman
krafta okkar þá náum við
lengra í verkefnum okkar,
til hagsbóta fyrir báðar
stofnanir og það mun
skila sér út í samfélagið,“
segir Kristín Ingólfsdóttir
en hún og Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir utanrík-
isráðherra og Kristín Ing-
ólfsdóttir,
undirrituðu í gær samning milli utanríkisráðuneytisins og Al-
þjóðastofnunar Háskóla Íslands um samstarf á sviði fræðslu og rann-
sóknastarfa í alþjóðamálum.
Ætlunin með samningnum er að efla samstarf og samvinnu ráðuneyt-
isins og Alþjóðamálastofnunar með því efla samstarf í þem málum þar
sem snertifletir eru milli stofnananna segir Kristín. Hann eflir auk
þess rannsóknir og kennslu. aak
3 milljónir til alþjóðamála
Aukaaðalfundur Öryrkjabanda-
lags Íslands verður haldinn 14.
febrúar næstkomandi en ákvörð-
un um það var tekin á aðalstjórn-
arfundi í fyrrakvöld. Á dagskrá
aukaaðalfundarins verður for-
mannskosning og stefnumót-
unarvinna.
Emil Thoroddsen, varaformaður
Öryrkjabandalagsins, hefur sinnt
störfum formanns síðan Sig-
ursteinn Másson sagði af sér for-
mennsku í bandalaginu þann 11.
janúar síðastliðinn. Þá sagði jafn-
framt framkvæmdastjóri banda-
lagsins, Hafdís Gísladóttir, upp
starfi sínu. Um 15 umsóknir bár-
ust um framkvæmdastjórastarfið.
Emil hefur ekki viljað gefa upp
við 24 stundir hvort hann hyggist
gefa kost á sér í embætti for-
manns.
ibs
Formannskjör á
aukaaðalfundi
Sundagarðar hf. hafa sagt upp
samningi við sláturhúsið í Borg-
arnesi og ætla að hætta að slátra.
Inga Lilja Sigurðardóttir slát-
urhússtjóri staðfesti að uppsagn-
arbréfið hefði borist og segir eng-
ar frekari skýringar hafa verið
gefnar á uppsögninni. Hún hefði
haldið að stórgripaslátrun yrði
aukin. mbl.is
Hætt að slátra í
Borgarnesi
Tiina Rosenberg, einn fremsti
fræðimaður Norðurlanda á sviði
hinsegin fræða á Norðurlöndum
og prófessor í Lundi, heldur
fyrsta fyrirlestur í fyrirlestraröð
við Háskóla Íslands á vormisseri.
Samtökin 78 eiga 30 ára afmæli á
þessu ári, eins og nafn þeirra
bendir til. Samtökin halda afmæli
á fjölbreytilegan hátt með alvöru
og gamni. bee
Hinsegin heimur
í þrjátíu ár
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Neytendasamtökin könnuðu að þessu sinni verð
á BKI kaffi classic í 500 g umbúðum.
Munur á lægsta og hæsta verði var 45% eða 130
krónur.
Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum.
45% verðmunur á kaffi
Jóhannes
Gunnarsson
NEYTENDAVAKTIN
BKI kaffi classic 500 g.
Verslun Verð Verðmunur
Kaskó 289
Nettó 299 3,5 %
Spar Bæjarlind 348 20,4 %
Hagkaup 397 37,4 %
Þín verslun Seljabraut 398 37,7 %
Kjarval 419 45,0
Upplýsingar veita Gísli í síma 894-2865 og Svavar í síma 896-7085
KKR, SVFR og SVH
STANGAVEIÐIMENN ATHUGIÐ
Nýtt námskeið í fluguköstum í T.B.R húsinu
Gnoðavogi 1 hefst 3. febrúar kl 20:00.
kennt verður 3,10,17og 24 feb.
Við leggjum til stangir.
Skráning á staðnum gegn greiðslu (ekki kort).
Verð kr 9.000 en kr 8.000 til félagsmanna,
gegn framvísun gilds félagsskírteinis.
Mætið tímanlega. Munið eftir inniskóm.