24 stundir - 01.02.2008, Side 24
24 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2008 24stundir
Börn jafnt sem fullorðnir geta
orðið bílveik en það getur verið
erfiðara að fást við slíkt með lítil
börn sem verða hrædd og vilja
kannski ekki þurfa að kasta upp.
Stuttar bílferðir geta nægt til að
börnin verði bílveik en ferðaveiki
skapast af síendurteknum hreyf-
ingum farartækisins sem hafa áhrif
á jafnvægisskyn okkar. Skilaboð
berast frá miðju eyrans til heilans
um að líkaminn sé á hreyfingu en á
meðan senda augun þau boð að
líkaminn sé í kyrrstöðu.
Hlykkjóttir vegir verstir
Hlykkjóttir og holóttir vegir
hafa yfirleitt einna verst áhrif á bíl-
veiki og eins er sjóveiki algeng þeg-
ar báturinn gengur upp og niður í
öldugangi. Einnig verða sum börn
flugveik sem getur skapast af
stressi og hræðslu við flugið. Til að
draga úr bílveiki er nóg af hreinu
lofti mikilvægast. Reyndu því að
hafa gluggann opinn eða rifu á
honum eins og hægt er. Þá skaltu
passa að barnið borði ekkert sem
er þungt í maga fyrir eða á meðan
að ferðalaginu stendur. Reyndu
síðan að láta barnið einbeita sér að
einhverju fyrir framan sig sem er
dálítið langt í burtu. Þannig dregur
úr ósamræmi á milli sjónar og
heyrnar. Alls ekki láta barnið lesa
því það er yfirleitt talið leiða til bíl-
veiki og reyndu að hafa ofan af fyr-
ir barninu eins og hægt er.
Bara eitt að gera
Ef barnið er við að kasta upp
skaltu nema staðar ef þú getur og
koma barninu út. Það er líka
skemmtilegra fyrir alla í bílnum.
Annars þarf bara að vera með nóg
af plastpokum, blautþurrkum og
tissjúi hjá barninu. Ef barnið er of
ungt til að sjá um sig sjálft verður
einhver að sitja aftur í hjá því og
hjálpa til.
Góð ráð þegar ferðast er með börn
Verða gjarnan bílveik
Bílveiki Mikilvægt er að barnið fái nóg af fersku lofti á bílferðum og borði ekkert sem
er of þungt í maga.
Það tók hina 109 ára gömlu Maríu
Kostova frá Makedónía rúmlega 20
ár að fá sitt fyrsta vegabréf þar sem
þarlend yfirvöld þurftu að kanna
hve gömul hún væri. María fædd-
ist 7. febrúar 1898 og ekkert fæð-
ingarvottorð var gefið út á þeim
tíma. Yfirvöld í Makedóníu höfðu
týnt gögnum um fæðingu hennar
og þegar hún bað um vegabréf, fyr-
ir rúmlega tuttugu árum, varð að
leita að gögnunum.
María heyrði aldrei aftur frá yf-
irvöldum en nú hafa gögn um fæð-
ingu hennar fundist og yfirvöld
geta því staðfest hve gömul hún er.
María mun því fá sitt fyrsta vega-
bréf í næsta mánuði, en það hittist
svo vel á að þá er einmitt 110 ára
afmæli hennar. Kostova segir að
þetta sé óvænt ánægja og nú þurfi
hún að íhuga hvert hún vilji ferðast
svo hún geti nýtt vegabréfið.
Tuttugu ár að
fá vegabréf
Þú og makinn eruð í fríi og nú á
allt að vera svo rómantískt og gott.
En ekki vera allt of upptekin/n af
því að hlutirnir eigi endilega að
vera einhvern veginn. Það getur
nefnilega tekið ykkur smá tíma að
stilla saman strengi eftir stress í
vinnunni og daglega rútínu. Nú er
kannski kominn tími til að fara
saman í sturtu eða prófa nýja stell-
ingu, en ef þið eruð frekar í stuði
til slappa af saman fyrir framan
sjónvarpið eða borða nammi úr
mínibarnum er það líka allt í lagi.
Það getur verið gott að nota frí til
að tala saman um heima og geima
en reynið þá að tala ekki of mikið
um vinnuna og stressið heima.
Látið frekar eins og þið séuð að
kynnast upp á nýtt. Síðan er
skemmtilegt að dressa sig svolítið
upp fyrir makann. Maður er ekki
oft í sínu fínasta taui heima fyrir
svo að makinn ætti að kunna að
meta það.
Rómantískt
en notalegt frí
WWW.N1.ISN1 HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
27
79
/
T
A
1
0.
20
07
SUPER SWAMPER
GROUND HAWG
DEKK OG FELGUR
FYRIR JEPPA
Fellsmúla 24, Rvk. s: 530 5700
Réttarhálsi 2, Rvk. s: 587 5588
Ægisíðu 102, Rvk. s: 552 3470
Langatanga 1, Mos. s: 566 8188
Reykjavíkurvegi 56, Hfj. s: 555 1538
Dalbraut 14, Akranes. s: 431 1777
EAGLE ALLOYS
POLISHED
DOTZ
LUXOR
U.S. WHEEL
SILVER TRACKER
U.S. WHEEL
CHROME TRACKER
COOPER
DISCOVERER ATR
JEPPA OG JEPPLINGADEKK
COOPER
DISCOVERER M+S
JEPPA OG JEPPLINGADEKK
GROUND HAWG II
FÁANLEGT Í 36 - 44"
15 -16,5" FELGUR
SUPER SWAMPER
SSR
FÁANLEGT Í 35 - 38"
15 -18" FELGUR
SUPER SWAMPER
IROK
FÁANLEGT Í 33 - 49"
15 -18" FELGUR
EAGLE ALLOYS
1144