24 stundir - 01.02.2008, Blaðsíða 8

24 stundir - 01.02.2008, Blaðsíða 8
samningur. Hann hefur haft áhrif á öll svið íslensks samfélags.“ Aðildarviðræður tækju hálft ár Athygli vekur að ekkert er fjallað um gjaldmiðla í skýrslunni þrátt fyrir miklar umræður um mögu- lega upptöku evru hérlendis að undanförnu. Ingibjörg segir það eðlilegt. „Við erum ekki með evr- una í neinni sérstakri skoðun í ut- anríkisráðuneytinu en það er hins vegar verið að skoða þau mál í við- skiptaráðuneytinu. Þetta mál er ekki á okkar verksviði og því sá ég ekki ástæðu til þess að fara sérstak- lega inn á það í skýrslunni.“ Í skýrslunni segir að skörun sé milli EES-samningsins og 22 af 35 köflum sem ESB skiptir aðildarvið- ræðum sínum við ný ríki upp í. Ingibjörg segir það sýna hversu ná- lægt kjarna ESB Ísland sé komið í gegnum EES-aðildina. „Í okkar til- viki þá liggur fyrir að 22 af þessum 35 köflum eru í lagi. Við erum því „Ég valdi að vera með sérstaka skýrslu um Evrópumál í þinginu til að skapa umræður um þau. Al- þingi hefur látið sig þessi mál mjög litlu varða,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra sem kynnti í gær skýrslu sína um Ísland á innri markaði Evrópu fyrir Al- þingi. Þetta er í fyrsta sinn sem ut- anríkisráðuneytið vinnur skýrslu um Evrópumál sérstaklega. „Evr- ópumálin varða okkar framtíðar- hagsmuni og skipta máli varðandi það hvernig við gætum þeirra á al- þjóðavettvangi. Þingið getur verið miklu virkara en það er og tekið þær stefnur sem eru í undirbúningi innan ESB til umræðu.“ Stærsta skref Íslendinga Hún segir að öllum ætti að vera ljóst hversu mikil áhrif samning- urinn um Evrópska efnahagssvæð- ið (EES) hefur haft á framþróun á Íslandi. „Þegar verið var að ræða samninginn á sínum tíma þá sner- ust umræðurnar um fisk, niðurfell- ingu á fiskitollum og um að reikna út ávinninginn sem við hefðum í krónum og aurum út frá því. Í dag er óvinnandi vegur að meta þann ávinning sem við höfum haft af samningnum. Ég held að ekkert eitt skref sem við höfum nokkurn tímann stigið í utanríkismálum hafi verið jafnáhrifamikið og þessi búin að taka upp mjög mikið af regluverki ESB, þó ég geti ekki sleg- ið prósentutölu á það. En hlutfallið er hærra en ef 22 yrði deilt í 35 því við erum líka búin að taka upp hluta innan hinna kaflanna. Það er vegna þessa sem framkvæmda- stjórar innan ESB, eins og Ollie Rehn sem er með stækkunarmálin, hafa sagt að það tæki mjög skamm- an tíma að leiða aðildarviðræður við Ísland til lykta. Menn hafa nefnt hálft ár.“ Verður að okkar veruleika Að mati Ingibjargar mun endur- skoðaður sáttmáli ESB hafa breyti- leg áhrif á samskipti sambandsins við Ísland. „Hann hefur áhrif á okkur að því leytinu til að hann eykur völd þjóðþinganna og Evr- ópuþingsins. Það er skiljanleg breyting frá bæjardyrum aðildar- ríkjanna en gerir okkur hins vegar erfiðara fyrir vegna þess að þá er- um við ekki lengur bara að semja við ráðherraráðið og fram- kvæmdastjórnina, heldur mun Evrópuþingið geta haft áhrif á hvernig reglugerðir og lög breytast. Þar eigum við mjög litla aðkomu nema ef tekið verður upp frekari samstarf í gegnum stjórnmála- flokkana. Við verðum alltaf að vera á vaktinni og reyna að átta okkur á því hvernig við komum okkar hagsmunum á framfæri við ESB vegna þess að það sem þar gerist mun verða að veruleika okkar.“ Markviss vinna komin af stað Í skýrslunni eru tiltekin nokkur stefnumið sem nú eru til meðferð- ar sem kunna að snerta hagsmuni Íslands með beinum hætti á grund- velli EES-samningsins. Líkt og kom fram í 24 stundum í gær er eitt þeirra tilskipun sem myndi færa flugsamgöngur undir viðskipta- kerfi ESB um losun gróðurhúsa- lofttegunda. Þar sem flug er miklu stærri þáttur í samgönguháttum Ís- lendinga en þeirra sem búa á meg- inlandi Evrópu er ljóst að ef ekki fengist einhvers konar undanþága frá tilskipuninni myndi hún hafa mjög aukinn kostnað í för með sér fyrir flugrekstraraðila. Ingibjörg segir að markviss vinna við að koma skilaboðum til ESB um sér- stöðu okkar í þessum málum sé þegar hafin. „Við búum við svo miklar vegalengdir. Við getum ekki stigið upp í bíl, lest eða tekið ferju til meginlands Evrópu. ESB þarf að skilja þá afstöðu og við þurfum að fá sambandið til þess. Við höfum þegar verið í miklu sambandi við hagsmunaaðila enda gerum við okkur grein fyrir hversu mikilvægt þetta er fyrir flugið. Við getum ekki haft nein áhrif á niðurstöðuna hjá ESB, en við getum beðið um að það verði tekið tillit til þess að við búum svona langt frá öðrum Evr- ópuríkjum.“ Samhliða kynningu á skýrslunni var tilkynnt að nefnd um þróun Evrópumála yrði sett á laggirnar. Í Vill að Alþingi láti sig Evrópumál varða ➤ Skýrslan er sú fyrsta sem ut-anríkisráðherra Íslands lætur vinna sérstaklega um Evr- ópumál. ➤ Áður hafa Evrópumálin veriðundirkafli í yfirgripsmeiri skýrslu um utanríkismál al- mennt. SKÝRSLA UM EVRÓPUMÁL Þórður Snær Júlíusson thordur@24stundir.is FRÉTTAVIÐTAL  Fyrsta skýrsla Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur um Evrópumál var kynnt á Alþingi í gær 8 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2008 24stundir Volkswagen – kolefnisjafnaður útblástur Golf 290.000 kr. F í t o n / S Í A

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.