24 stundir - 01.02.2008, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2008 24stundir
Ásgeir Einarsson, atvinnukafari frá Akranesi, kafaði í gær við miðbakkann á Reykjavíkurhöfn til að losa flækju
úr skrúfu línubátsins Kristrúnar. Ásgeir var ekki laus við munnherkjur af kulda þegar hann kom upp úr kafinu.
„Það er verst að koma upp, þá frýs maður,“ segir Ásgeir, „sumir venjast þessu, en margir detta út á veturna og við
erum kringum tuginn sem köfum allt árið,“ segir Ásgeir sem á þrjá syni sem eru kafarar eins og pabbinn.
Atvinnukafarinn Ásgeir Einarsson á þrjá syni sem kafa líka
Kaldur kafari og öllu vanur
Eftir Auði Alfífu Ketilsdóttur
fifa@24stundir.is
Áherslur í öryggis- og varnarmál-
um hafa breyst mjög á undanförn-
um árum. Þetta er meðal þess sem
fram kom í máli Alyson J.K. Bailes,
gestakennara í stjórmálafræði við
Háskóla Íslands, en hún hélt erindi
á vegum Rannsóknastofu í kvenna-
og kynjafræðum undir yfirskrift-
inni „Nýjar áherslur í varnarmál-
um, eru þær góðar fyrir konur?“
Færist frá þjóðaröryggi
Frá því kalda stríðið leið undir
lok hafa hugmyndir um öryggismál
þjóða tekið töluverðum breyting-
um. Áherslan hefur færst frá milli-
ríkjadeilum og yfir í átök innan
ríkja, hvort sem er uppreisnir eða
borgarastyrjaldir. Þá hafa skilgrein-
ingarnar í auknum mæli færst frá
hugmyndum um þjóðaröryggi og
yfir í öryggi einstaklingsins og
möguleika hans til að lifa lífinu til
fullnustu og í þriðja lagi nýjar ógn-
ir líkt og hryðjuverkastarfsemi.
Alyson segir þessar breyttu
áherslur á vissan hátt til bóta fyrir
konur þar sem þær feli í sér að
vandamál sem snerta konur fá
frekara vægi.
Þá segir hún líklegra að konur
geti haft eitthvað um það að segja
hvernig málum er háttað til dæmis
við uppbyggingu ríkja eftir átök.
Öryggisvæðing
Öryggisvæðing er það hvernig
hlutir sem áður hafa ekki verið
álitnir öryggismál eru færðir undir
þá skilgreiningu. Hún nefndi dæmi
af umhverfismálum sem hérlendis
eru mikilvægt öryggismál og eins
fuglaflensu sem ríki gætu skilgreint
sem öryggismál ef það þjónaði
hagsmunum þeirra.
Alyson segir öryggisvæðingu oft
geta þjónað góðum tilgangi. „Jafn-
vel í Evrópu finnum við gjarnan
fyrir því að með því að skilgreina
eitthvað sem öryggis- eða varnar-
mál virðist það sjálfkrafa fá forgang
þegar kemur að úthlutun fjár-
magns,“ segir hún.
Hættan er hins vegar sú að með
því að öryggisvæða til að mynda
löggæsluna og tollgæslu í kjölfar
árásanna 11. september 2001 hefur
hún fengið töluvert meira fjármagn
en til dæmis heilsugæslan eða um-
hverfisvernd. „Ég persónulega
mundi vilja sjá mun fleiri atriði
skilgreind sem öryggismál ef það
yrði til þess að fá stjórnendur til
þess að hugsa meira um þessi
mýkri og „ókarlmannlegri“ mál og
forðast með því til lengri tíma
stærri vanda.“
Breyttar áherslur
í varnarmálum
Hugmyndir um öryggismál alltaf að víkka út Málefni kvenna
ofar á blaði „Ókarlmannlegri“ öryggismál mikilvæg
➤ Lýsir áhyggjum af því aðóbreyttir borgarar, sér-
staklega konur og börn, séu
yfirgnæfandi meirihluti fórn-
arlamba vopnaðra átaka.
➤ Ítrekar mikilvægt hlutverkkvenna í forvörnum og lausn-
um átaka og uppbyggingu
friðar.
ÁLYKTUN SÞ NR.1325
Árvakur/Árni Torfason
Alyson Bailes
Ræddi um örygg-
ishugtakið á fundi
RIKK í HÍ í gær
A
T
A
R
N
A
–
K
M
I
/
F
ÍT
Nóatúni 4 • Sími 520 3000
www.sminor.is
Þvottavél
frá Siemens,
sem lætur
blettina hverfa.
Þetta er vél sem hefur
algera sérstöðu.
Fjórtán blettakerfi fyrir
ólíka bletti, t.d. vínbletti,
blóðbletti og grasgrænku.
Tromlan er óvenjustór,
tekur 65 l og hægt er að
þvo í henni allt að 8 kg.
Innra byrði tromlunnar er
með droplaga mynstri
sem fer sérlega vel með
þvottinn. Vélin er mjög
snör í snúningum: 15
mín. hraðkerfi og 60
mín. kraftþvottakerfi
fyrir meðalóhreinan þvott.
Snertihnappar. Stór og
öflugur skjár. Vélin hefur
mjög góða hljóðeinangrun
og er í orkuflokki A+.
RV
U
N
IQ
U
E
02
08
01
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Hreinar hendur
- örugg samskipti
Á tilboðií febrúar 2008DAX Handspritt, krem og sápur
DAX Sótthreinsiservíettur 20 stk. 393 kr.
DAX Hand & húðkrem 600 ml með dælu 496 kr.
DAX Handáburður 250 ml 259 kr.
Borgin er full af Vildarpunktum
safnaðu þeim með því að setja fasteignagjöldin á VISA
Þeir korthafar sem hafa áhuga á að greiða fasteignagjöld sín
hjá Reykjavíkurborg með VISA Boðgreiðslum geta skráð sig í Rafrænni
Reykjavík á vef Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is, hringt í síma 4 11 11 11
og einnig er hægt að skrá fasteignagjöldin á www.valitor.is/visabod
upplysingar
Kolbrun S.510 3722
Kolla@24stundir.is
Bilablad
Serblad 24 stunda5.FEB.2008