24 stundir - 01.02.2008, Side 16

24 stundir - 01.02.2008, Side 16
Laugavegi 174 sími 590 5000 www.bilathing.is Kletthálsi 11 sími 590 5760 bilathing@bilathing.is Opið 10-18 virka daga og 10-14 laugardaga Skoda er einn áreiðanlegasti fólksbíll sem völ er á. Eigendur árgerða 2005-2006 eru byrjaðir að endurnýja og við eigum nokkra fyrsta flokks Skoda Fabia og Skoda Octavia sem langar mikið til að komast aftur út að aka. Nú eru góð kaup í Skoda! Og allt að 1.200.000,- Fabia, frá ca. 680.000,- Og allt að 2.000.000,- Octavia, frá ca. 980.000,- N ÝL EG IR B ÍLAR Í TOPPSTA N D I· N ÝLEGIRBÍLARÍT OP PS TA N D I · GÓÐKAUP AFLMIKLIR,HAGKVÆMIR - OG NÆSTUM NÝIR! 16 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2008 24stundir Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@24stundir.is Leikfélagið Silfurtunglið frum- sýndi leikritið Fool for love eftir bandaríska leikskáldið Sam Shep- ard í lok síðasta árs og var upp- haflega ætlunin að ljúka sýningum á því í janúarlok. Aðsóknin hefur þó verið framar öllum vonum og því hefur verið ákveðið að halda sýningum áfram til loka febrúar. Einn leikara í verkinu, Sveinn Ólafur Gunnarsson, segist óska þess að hægt væri að sýna það ennþá lengur. „Ég var búinn að ganga með þann draum í mag- anum í nokkurn tíma að setja upp verk eftir Sam Shepard en svo frétti ég að einhver annar væri að fara að gera það þannig að ég hugsaði með mér: „Þar fór það“. En svo hringdi Jón Gunnar leik- stjóri í mig og bauð mér hlutverk í Fool for love þannig að ég ákvað að slá tvær flugur í einu höggi,“ segir hann. Í leikritinu leikur hann kúrekann Eddie sem er ródeó- maður og áhættuleikari, og hittir fyrir fyrrum ástkonu sína á móteli í Texas. „Það má segja að hann sé holdgervingur karlmennskunnar og sannur kúreki,“ segir Sveinn Ólafur, en hann er þegar byrjaður að æfa fyrir leikritið Dubbeldusch sem Vesturport setur upp í sam- starfi við Leikfélag Akureyrar. „Þar leik ég náunga sem við köllum bara Manninn. Hann er viðkunn- anlegur rólegheitamaður og hann er gerólíkur Eddie í Fool for love, sem er mjög gott því að mér finnst spennandi að stökkva á milli ger- ólíkra verkefna.“ Framundan hjá Sveini eru stífar æfingar á Dubbeldusch. „Við byrj- uðum á samlestri í Borgarleikhús- inu síðasta mánudag og svo strax daginn eftir vorum við komin á gólfið, sem er nokkuð óvenjulegt. Svo förum við norður til Akureyr- ar um miðjan febrúar þannig að ég verð á flakki á milli Akureyrar og Reykjavíkur meðan sýningar á Fo- ol for love eru að klárast.“ Allir leikarar og leikstjóri Fool for love eru komnir með ný verk- efni upp í hendurnar og því verður ekki hægt að sýna verkið lengur en út febrúar. Sveinn segir uppsetn- inguna hafa verið mikið ævintýri. „Í raun fórum við út í þetta sem hálfgert hugsjónaverkefni þar sem við nutum ekki fjárstuðnings neins nema nokkurra fyrirtækja sem styrktu okkur. Launin hafa ekki verið há en verðlaunin hafa verið ómetanleg í formi þakklætis áhorf- enda og jákvæðra dóma,“ segir hann. Fyrir utan að leika í Fool for love og Dubbeldusch hefur Sveinn sitthvað fleira á sinni könnu. „Einu stöðugu tekjurnar sem ég fæ eru fyrir lestur auglýsinga. Svo er ég, ásamt Jóhönnu Friðriku Sæ- mundsdóttur, að föndra við leik- stjórn hjá Stúdentaleikhúsinu og það er ævintýralega skemmtilegt verkefni. Ég útskrifaðist sem leik- ari árið 2006 og var þá staðráðinn í að leggja fyrir mig kvikmyndaleik enda kominn með hálfgerðan leiða á leikhúsinu, en pældi aldrei í leik- stjórn. Verkefnin í kvikmyndaleik eru hins vegar stopul ef maður er ekki þekkt nafn og svo er ég aftur kominn með mikla ástríðu fyrir leikhúsinu. Nú heillar leikstjórn mig líka mikið og ég gæti hugsað mér að starfa meira við það í framtíðinni. En ég veit ekki hvað verður, það kemur bara í ljós.“ Mikið ævintýri Sveinn Ólafur í hlutverki Eddies. Fool for love verður sýnt út febrúar Viðtökurnar eru verðlaun Leikritið Fool for love hefur hlotið góðar við- tökur frá því að það var frumsýnt í Austurbæ í desember. Sveinn Ólafur Gunnarsson er einn leik- ara sýningarinnar, en hann er á leið norður til Akureyrar. ➤ Var frumsýnt árið 1983 íBandaríkjunum, en sögusvið- ið er vegamótel í suðurríkjum Bandaríkjanna. FOOL FOR LOVE Leikritið Hetjur eftir franska leikskáldið Gerald Sibleyras verð- ur frumsýnt á Nýja sviði Borg- arleikhússins í dag í leikstjórn Hafliða Arngrímssonar. Leik- urinn gerist árið 1959 og sögu- sviðið er elliheimili þar sem þrír uppgjafahermenn úr fyrri heims- styrjöldinni dvelja saman og leggja undir sig bakgarð þar sem enginn annar má koma. „Þetta er grátbroslegt verk um menn sem hafa misst af lífinu ef svo má segja,“ segir leikstjórinn Hafliði. „Til þess að varna því að aðrir komi út á veröndina þeirra beita þeir varnaðaraðgerðum eins og í styrjöldinni, enda kunna þeir ekkert annað. Þeir eiga allir við ákveðin óafmáanleg vandamál að stríða í kjölfar styrjaldarinnar. Einn er með sprengjubrot í hausnum, annar með ónýtan fót og sá þriðji er taugaveiklaður og félagsfælinn.“ En þrátt fyrir allt láta þeir sig dreyma. „Þeir horfa á Alpana og láta sig dreyma um ferðalög og kvenfólk, sem lítið er af í kringum þá,“ segir hann. Draumar upp- gjafahermanna MENNING menning@24stundir.is a Launin hafa ekki verið há en verðlaun- in hafa verið ómetanleg í formi þakk- lætis áhorfenda og jákvæðra dóma.

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.