24 stundir - 01.02.2008, Side 22

24 stundir - 01.02.2008, Side 22
22 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2008 24stundir Eftir Egil Bjarnason egillegill@hotmail.com Fjórtán sæta jeppi, með tuttugu og fjórum farþegum, nemur staðar við lítið ættbálkaþorp fyrir miðju Indlandi. ,,Basari!“ kallar bílstjór- inn og réttir fram lófann að út- lendingunum í aftursætinu. ,,Þrjá- tíu rúpíur, takk!“ Gestgjafarnir koma á auga- bragði og fagna okkur eins og höfðingjum. Á meðan einn þorpsbúanna skreytir mig með blómakransi reyni ég að rifja upp hversu oft ég ítrekaði fyrir tengi- liðnum að ég vildi alls enga sér- meðferð. Ég stórefast um að al- mennir gestir fái viðlíka móttökur og sé að því búnu afhent íbúð hér- aðshöfðingjans sem dvelur þessa stundina við vinnu í höfuðborg- inni Delhi. Í landi sem hýsir liðlega einn milljarð fólks er Basari ekki til á landakorti þrátt fyrir að þorpsbúar séu álíka margir og Akureyringar. Um þessar mundir er verið að byggja hótel, unnið að opnun minjasafns og veitingastaðar til þess að koma staðnum á kortið, túristakortið. Umdeild stéttaskipting Við erum eins konar til- raunaverkefni leiðsögumannsins, Surendra, sem byrjar ferðina á að útskýra fyrir okkur stéttaskiptingu hindúismans. ,,Samkvæmt trúnni fæðast hindúar inn í fjórar mishá- ar stéttir: Brahmin, Kshatriya, Va- ishya og Shudra. Með öðrum orð- um: prestar, bardagamenn, viðskiptamenn og verkamenn. Hinir ósnertanlegu, Dalit, eru ekki taldir með en þeir vinna öll lág- launastörfin,“ segir Surendra sem er af viðskiptastéttinni Vaishya og bætir kankvís við: ,,Þá má þekkja af klæðnaðinum og ístrunni. Það er þeim að þakka hvað efnahagur landsins er á góðri siglingu.“ Surendra er nútímalegur í við- horfum og kveðst umgangast alla sem jafningja. ,,Já, já, ég heilsa al- veg þeim ósnertanlegu og sit með þeim til borðs,“ segir hann en það ku vera stigsmunur á viðhorfum stórborgar- og landsbyggðarfólks. ,,Í borgunum eru skilin óljósari og fólk notar aðallega skírnarnöfn. Borgarbúar eru menntaðri og frjálslyndari og vilja þar af leiðandi leggja af skipulagða stéttaskipt- ingu. Með tímanum verður hún úrelt.“ Skítugar heimilisvenjur Heimili Basaribúa eru flest steinhlaðin og þökin úr hand- gerðum moldskífum sem sitja á löngum grönnum trjágreinum. Allar dyr í húsunum eru yfirleitt ekki nema einn og hálfur metri á hæð til þess að gestir gangi ekki inn með of mikilli reisn. Enn und- arlegri er sá siður heimamanna að maka stéttina fyrir utan heimilin með kúataði. Í augum hindúa eru kýr heilagar en saurinn þjónar einnig þeim praktíska tilgangi að mýkja gólfin og þykir ekki síst mikil húsprýði. Þegar inn er komið má sjá að nútíminn er að ryðja sér til rúms. Öll heimili, nema þau fáu sem eru úr trjágreinum, hafa rafmagn og hin betur settu hafa sjónvarp og gaseldavél. Undanfarin ár hafa framfarir hins vegar látið á sér standa. Monsúnrigningarnar hafa brugðist bændum í þessu mikla landbúnaðarhéraði. Margir hafa þurft að flýja til stórborganna í leit að vinnu. ,,Sumir skilja fjölskyldur sínar eftir í Basari og senda pen- inga heim en aðrir eru farnir fyrir fullt og allt,“ segir Surendra, von- góður um að túrisminn eigi eftir skapa mörg atvinnutækifæri. Á meðan við göngum um þorp- ið fjölgar stöðugt í krakkaskar- anum sem flykkist forvitinn á eftir okkur. Þau höfðu flest verið að fylgjast með krikketleik en meira að segja leikmennirnir misstu áhugann á meðan við vorum á vappi. Það er augljóst að þorpið hefur hingað til ekki fengið sinn skerf af þeim fimm milljónum ferðamanna sem heimsækja Ind- land ár hvert. En eiga börnin ekki að vera í skólanum? Jú, sum þeirra eru það. Það er að segja þau sem koma frá hástéttunum. Skólinn í þorpinu er, eins og allt á Indlandi, ofhlaðinn af fólki. Hluti nemenda situr á hnjánum á skólalóðinni og þreytir lokapróf þegar okkur ber að garði. Kúltúr og kannabis Síðar um daginn, þegar ég er einn á vappi að fylgjast með hópi manna í fjárhættuspili, er mér boðið te hjá einu af ótal hindúa- hofum í þorpinu. Þar hefur hreiðrað um sig gamall, blindur Indverji sem sagður er vera að til- biðja guðina en í rauninni er hann rammskakkur. Með þjóð- ardrykknum, mjólkurteinu reykja hinir elstu í hópnum marijúana. Heimaræktað, segja þeir stoltir en verða stressaðir þegar ég hyggst ljósmynda afurðina. Smeykir við hina hörðu réttvísi að sjálfsögðu. Undir kvöldið er okkur boðið á æfingu þjóðlegs fjöllistafólks í þorpinu. ,,Til þess að stemma stigu við því að fólk gleymi uppruna sínum reynum við að slá reglulega upp indverskum menning- arhátíðum. Líka til að viðhalda mállýskunni sem er töluð á svæð- inu. Nú orðið talar fólk mun frek- ar hindí eða ensku,“ segir Su- rendra ábúðarfullur en listamennirnir knáu eru að þessu sinni að æfa sig fyrir brúðkaup hjá fjölskyldumeðlimi héraðshöfðingj- ans sem ég minntist á í upphafi. Gestalistinn telur hvorki meira né minna en fimm þúsund manns. Til stóð að gista tvær nætur í þorpinu en vegna 59. lýðveldisdags Indlands vilja félagar okkar í Bas- ari bregða sér af bæ og síður skilja gestina eftir í reiðileysi. Árvakur/EgillBjarnason Egill Bjarnason heimsækir lítið ættbálkaþorp í Indlandi Flóttinn í borgina Eftir alvarlega upp- skerubresti vilja þorpsbúar í indverska ættbálkaþorpinu Basari gera staðinn aðlaðandi fyrir ferðamenn. Tveimur ferðalöngum frá Selfossi, Agli Bjarnasyni og Söru Kristínu Finnbogadóttur, var boðið að vera með þeim fyrstu til að heim- sækja staðinn. Skakkur Brahmin Með hass- pípu í hendi situr þessi aldraði Indverji í hindúahofi og tilbiður Ganesha og aðra merkilega guði. Þjóðleg skemmtun Í Basari eru haldnar reglulegar menningarveislur til þess að viðhalda indverskum hefðum. Hótelgesti brá aldeilis í brún þeg- ar hann fékk alvöru mannsauga í kassa á hótelherbergi sitt í Tas- maníu. Kassinn sem merktur var „líffæri“ var færður hótelgestinum af leigubílstjóra en sá mæti maður gerði augsýnilega mistök. Hót- elgesturinn, sem eðlilega var í uppnámi, skilaði kassanum í mót- töku hótelsins þar sem starfs- maður hótelsins setti kassann í ís- skáp, hreinlega vegna þess að hann vissi ekki hvað hann átti að gera við augað. Talsmaður flug- félags í Ástralíu sem var ábyrgt fyrir auganu afsakaði mistökin og sagði að um leið og mistökin uppgötvuðust hefðu þau verið leiðrétt. Það náðist því að koma auganu á réttan stað í tíma. Fékk alvöru auga á hótelið www.fi.is Ferðaáætlun 2008 beint flug frá keflavík Trans-Atlantic sérhæfir sig í ferðum til Eistrasaltslandanna Verð miðast við gengi evru 15. jan 2008 Tímabil Brottför Hótel Verð 15.-19.mars( 5 nætur ) Keflavík **** kr 76.295 MUNIÐ FRÁBÆR TILBOÐ TIL KENNARA

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.