24 stundir - 01.02.2008, Qupperneq 26
26 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2008 24stundir
LÍFSSTÍLLBÍLAR
bilar@24stundir.is a
Það hefur hægst á traffíkinni og heimsóknir
eru færri, en þeir viðskiptavinir sem koma eru
mjög ákveðnir. Þeir berjast í gegnum skaflana og
snjóinn og eru mjög ákveðnir í að kaupa sér bíla.
Eftir Einar Elí Magnússon
einareli@24stundir.is
Það ætti ekki að hafa farið framhjá
neinum að janúarmánuður hefur
verið kaldur og snjóþungur, ef
miðað er við fyrri ár. Þrátt fyrir það
hefur verið 30-40 prósent aukning
í bílasölu í janúar, ef miðað er við
sama mánuð í fyrra.
Ákveðnari kaupendur
„Mesta salan er í fjórhjóladrifn-
um bílum, jeppum og jeppling-
um,“ segir Jón Trausti Ólafsson,
markaðsstjóri Heklu. „Það hefur
hægst á traffíkinni og heimsóknir
eru færri, en þeir viðskiptavinir
sem koma eru mjög ákveðnir. Þeir
berjast í gegnum skaflana og snjó-
inn og eru mjög ákveðnir í að
kaupa sér bíla.
Þó talað sé um að efnahagurinn
sé að dragast saman er fólk búið að
stilla sig inn á ákveðnar greiðslur á
mánuði og er tilbúið til að kaupa
sér bíl. Veðrið dregur ekki úr þeim
en breytir því kannski hvað fólk
kaupir. Þess vegna er meiri sala í
jeppum núna,“ segir Jón Trausti.
Veðrið hentar okkur
Í sama streng tekur Loftur Ágústs-
son, markaðsstjóri Ingvars Helga-
sonar. „Í fjórhjóladrifnum bílum á
verðinu 2,5-3,5 milljónir erum við
langsterkastir og svona veðrátta
hentar okkur mjög vel.
Það er ekki spurning að í svona
veðurfari er meiri áhugi á fjórhjóla-
drifsbílum og ekki eins margir að
leita að þessum vorbílum, sem eru
minni bílar, enda búum við ekki við
stórborgarvandamál eins og víða er-
lendis,“ segir Loftur og bætir við að
bílamarkaðurinn á Íslandi hafi mjög
lítið breyst á síðustu tuttugu árum
þegar kemur að því hvað fólk vill.
„Næstu tíu ár koma til með að
einkennast af baráttu um sparneytni
og hagkvæmni. Maður finnur að
fókusinn er allur á því.“
Áfram fjórhjóladrifsbílar
Jón Trausti er á sama máli og
bætir við að Íslendingar muni
áfram kaupa fjórhjóladrifsbíla. „Ís-
lendingar eru mikil fjórhjóladrifs-
þjóð, sem er bara skiljanlegt. Að-
stæður hér eru þannig að það
hentar mjög vel fyrir marga að eiga
fjórhjóladrifinn bíl.
Fólk á því eftir að fá sér fjór-
hjóladrifna bíla sem eru sparneyt-
nir, hagkvæmir í rekstri og öruggir.
Ég hef mikla trú á að metangasbílar
komi sterkir inn á næstu árum en
held að Íslendingar stækki ekki
mikið við sig í minni bílum, fari
frekar í betri og öruggari bíla.“
Veðráttan hefur áhrif á bílakaup en dregur ekki úr þeim
Berjast í gegnum snjó-
skafla til að kaupa bíla
Bílasala á Íslandi hefur
verið í stöðugri upp-
sveiflu undanfarin ár.
Svo virðist sem versn-
andi veður hafi ekkert
nema góð áhrif á bíla-
kaupendur.
Vetrarveður Hvetur Ís-
lendinga til að kaupa fjór-
hjóladrifsbíla.
Bílaleigan ALP hefur gengið frá
samningum við bílaumboðin B&L
og Ingvar Helgason um kaup á 900
nýjum bifreiðum að verðmæti tæp-
lega 2 milljarðar króna.
Talið er að um sé að ræða
stærstu einstöku bílaviðskipti sem
ráðist hefur verið í á Íslandi.
440 bílanna koma frá B&L og
eru af gerðunum Hyundai, Renault
og Land Rover. 460 bílar til við-
bótar koma frá Ingvari Helgasyni
og eru það Nissan, Subaru og Opel
bifreiðar.
ALP, sem er umboðsaðili Avis og
Budget á Íslandi, hyggst nota alla
bílana í útleigu og stefnt er á að
þeir séu allir komnir á götuna um
miðjan júnímánuð.
Stærstu bílaviðskipti Íslandssögunnar
900 bílar á einu bretti
Gengið frá kaupum Frá
vinstri: Ragnar Sigurþórsson,
Þorsteinn Þorgeirsson, Björn
Ragnarsson, Heiðar Sveinsson
og Guðlaugur Ari Sigfússon.
Bílás - bílasala Akraness tók um
síðustu helgi í notkun nýjan og
glæsilegan sýningarsal við
Smiðjuvelli á Akranesi. Í salnum
er pláss fyrir 16 nýja bíla, auk
þess sem rúmgott útisvæði tekur
allt að 100 notaða sem seldir eru í
umboðssölu. Fyrirtækið heldur
upp á 25 ára afmæli sitt á árinu en
það er meðal annars með umboð
fyrir Heklu, Kia og B&L.
Bílás opnar nýjan
sal á Akranesi
SÍMAR:
AX:
Alhliða bi
réttingar
GRÆNUMÝRI 3 - SÍMI 587 7659 - WWW.BILAPARTAR.IS
BÍLAPARTAR
VIÐ HÖFUM ÞAÐ SEM ÞÚ LEITAR AÐ
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
N1 VERSLANIR
SÍMI 440 1200
WWW.N1.IS
Hjá N1 finnur þú landsins mesta úrval af bílavarahlutum frá
viðurkenndum framleiðendum. Í verslunum okkar um land
allt er fagfólk reiðubúið að veita þér alla þá aðstoð og ráðgjöf
sem þú þarfnast. N1 – Meira í leiðinni.