24 stundir


24 stundir - 01.02.2008, Qupperneq 23

24 stundir - 01.02.2008, Qupperneq 23
24stundir FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2008 23 Verslunin Rúmgott · Smiðjuvegi 2 · Kópavogi · Sími 544 2121. Opið virka daga frá kl. 10-18 - laugardaga kl. 11-16 www.rumgott.is GEL OG ETHANOL ELDSTÆÐI BYLTING Í SVEFNLAUSNUM SPRENGIÚTSALA EITT BESTA ÚRVAL LANDSINS Á HEILSUDÝNUM 20-50% AFSLÁTTUR VAXTALAUS LÁN Í 6 MÁNUÐI Ferðabæklingur Úrvals Útsýnar fyrir árið 2008 kom út um síðustu helgi og hefur strax vakið mikla athygli, að sögn Þorsteins Guð- jónssonar, forstjóra Úrvals Útsýn- ar. „Það stefnir í fínt ferðaár. Við höfum allavega ekki upplifað aðr- ar eins móttökur og í ár. Fólk er þegar farið að bóka ferðir út og þetta fer mjög hratt af stað,“ segir Þorsteinn og bætir við að það sé sífellt minna um að fólk bóki ferðir á síðustu stundu. „Und- anfarin þrjú ár hefur nánast allt verið uppselt og þeir sem ætluðu sér að panta ferðir seint hafa því gripið í tómt.“ Aðspurður hvaða áfangastaður sé vinsælastur segir Þorsteinn að Marmaris í Tyrk- landi sé geysilega vinsæll staður. „Á Marmaris erum við að bjóða upp á stórar og fínar íbúðir sem hafa mælst vel fyrir hjá fjöl- skyldufólki. Það er mjög hagstætt verðlag þar, ágætis veður auk þess sem á Marmaris er annar menn- ingarheimur þannig að fólk upp- lifir ferðina sem meira ferðalag. Svo bjóðum við vitanlega upp á þessa klassísku staði eins og Portúgal, Tenerife, Mæjorka, Ali- cante og Krít. Krít er ólík hefð- bundnum ferðamannastöðum að því leyti að íbúarnir halda mjög fast í sína menningu, sem gerir staðinn öðruvísi og sjarmerandi fyrir vikið. Tenerife sló algjörlega í gegn hjá okkur á síðasta ári og er fyrsti sólaráfangastaðurinn sem er vinsæll tólf mánuði á ári. Við fljúgum því þangað tvisvar á viku nánast allt árið um kring.“ Margir hafa þegar pantað ferð í sólina Marmaris og Krít í tísku KYNNING Tyrkland Marmaris á Tyrklandi er vinsæll áfangastaður Íslendingar hafa alltaf verið heillaðir af Skotlandi og er ekkert lát þar á enda hefur landið upp á ótal margt að bjóða annað en skotapils og sekkjapípur. Skotland er land hárra fjalla, dala og vatna og ekki skemmir glaðværð og gestrisni Skota fyrir. Þau Ingibjörg Geirsdóttir og Snorri Guðmundsson búa í Skot- landi og hafa verið dugleg að kynna Skotland fyrir Íslendingum en þau fara árlega um skosku heiðarnar með hóp Íslendinga í hinum vinsælu gönguferðum um West Highland Way. Skosku hálöndin Nú gefst kostur á að fara í páskaferð með Úrvali Útsýn á slóðir Hálandahöfðingjans en skosku hálöndin hafa löngum ver- ið talin meðal fallegustu svæða í Evrópu. Ferðalöngum gefst kostur á að njóta ferðalags um djúpa dali, vötn og eyjar í héraði sem ein- kennist af stórbrotnu landslagi og merkilegri sögu en farið verður um Loch Lomond, Inverary, Ob- an, Glen Coe, Fort William, Isle of Skye, Loch Ness, Speyside og Stirl- ing svo eitthvað sé nefnt. „Það muna allir eftir vinsælu sjónvarpsþáttunum um Hálanda- höfðingjann eða Monarch of the Glen sem voru sýndir í Ríkissjón- varpinu á sínum tíma,“ segir Inga. „Í þessari göngu munum við ein- mitt fara á þær slóðir þar sem þættirnir voru teknir upp enda er landslagið þar engu líkt og kom- um við til með að heimsækja ótal fallega staði. Á svæðinu eru líka fjölmargir glæsilegir kastalar og við munum skoða nokkra þeirra. Hálöndin eru líka þekkt fyrir framleiðslu á nokkrum af bestu viskítegundum í heimi og ætlum við að kynna okkur fram- leiðsluferlið en það eru eflaust margir sem hafa áhuga á því.“ Mikil náttúrufegurð Náttúruunnendur verða ekki sviknir af ferðalagi um svæðið en bæði er hægt að njóta góðrar hreyfingar og útivistar sem og að kynna sér stórmerkilega sögu skosku hálandanna. Svokallaðar hreyfiferðir eru að verða sífellt vinsælli meðal Íslend- inga en fjöldi manns leggur land undir fót á ári hverju og fer í gönguferðir eða hjólreiðatúra er- lendis. Allar nánari upplýsingar er að finna á www.uu.is. og www.skot- ganga.co.uk. Einstök náttúrufegurð á sögulegum slóðum Á slóðir Hálandahöfðingjans Gönguleiðir Ótal fallegar gönguleiðir eru í boði um skosku hálöndin.

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.