24 stundir - 01.02.2008, Side 32
32 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2008 24stundir
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Það er í upphafi leiksins sem Ísland fær að njóta sín.
Þyrla, sem er að flytja hetju leiksins til Bandaríkjanna,
er skotin niður yfir Íslandi og þarf hann að sleppa úr landi
áður en ófreskjurnar ná að leggja landið endanlega í rúst.
Í kvöld mun hljómsveitin Benny
Crespo’s Gang koma fram á tón-
leikum á Dillon þar sem aðgang-
ur er ókeypis. Söngkona þeirra,
Lay Low, hefur verið upptekin í
leiksýningu á Akureyri og því lít-
ið um tónleikahald síðan á út-
gáfukonsert þeirra í desember en
heilmikið er að gerast í febrúar,
og heldur því kynning á nýút-
kominni plötu þeirra áfram.
Helgi Rúnar, söngvari og gít-
arleikari, segir sveitina byrjaða að
vinna næstu plötu og fólk muni
taka eftir örlítið breyttum tóni
hjá sveitinni. Lögin séu þó enn í
vinnslu, en ef vel gangi að æfa
verði þau ef til vill frumflutt í lok
mánaðarins.
Upplýsingar um bókaða tónleika
má finna á síðunni myspace.com/
bennycresposgang. re
Benny Crespo’s á Dillon
Félag anti-rasista heldur í kvöld
styrktartónleika á Gauki á Stöng,
en tónleikarnir eru þeir fyrstu af
þrennum í ár. Fókusinn er settur
á hipphopp- og reggae-tónlist að
þessu sinni og treður fjöldinn all-
ur af tónlistarfólki upp, þar á
meðal Rottweilerhundarnir, Ses-
ar-A, Magadanshópur Kramhúss-
ins, Kenya og margir fleiri ásamt
plötusnúðum og dönsurum. Að-
gangseyrir er 1000 krónur og
hefjast tónleikarnir klukkan
22.00. Aldurstakmark er 18 ár.
Veisla á Gaukn-
um í kvöld
Írsku rokkararnir í U2 eru að
undirbúa tónleikaröð á stóra 02-
sviðinu í Lundúnum, sem Led
Zeppelin lék á í desember síðast-
liðnum. Þetta er ekki í fyrsta
skipti sem sögusagnir um meinta
tónleika U2 á þessu sviði komast
á kreik en umboðsmaður þeirra,
Paul McGuinness, hefur nú stað-
fest þær. „Sviðið býður upp á
mikla möguleika fyrir U2,“ sagði
hann í viðtali. Sveitin er um þess-
ar mundir í hljóðveri með Brian
Eno að vinna sína 12. plötu. re
U2 með tónleika
á O2-sviðinu
Eftir Viggó I. Jónasson
viggo@24stundir.is
Það er ekki á hverjum degi sem ís-
lenskir tölvuleikjaunnendur fá
tækifæri til að spila tölvuleik sem
gerist á Íslandi. Í árslok munu
Playstation 3-eigendur hins vegar
fá einstakt tækifæri til að berjast
við ófreskjur á íslenskri grund en
hluti af tölvuleiknum Resistance 2
mun gerast á Íslandi. Hulunni var
svipt af leiknum fyrir fáeinum vik-
um og ríkir gríðarleg eftirvænting
meðal Playstation 3-eigenda eftir
leiknum.
Flóttinn frá Íslandi
Ekki er vitað mikið um hversu
stór hluti af leiknum gerist á Ís-
landi en framleiðandi leiksins, In-
somniac Games, verst allra frétta
varðandi leikinn og vildi þar af
leiðandi litlu svara þegar 24 stund-
ir leituðu eftir svörum. Talsmaður
fyrirtækisins sagði þó að öll skjá-
skot úr leiknum, sem birt hafa ver-
ið, séu tekin úr íslenska hluta leiks-
ins.
Resistance 2 er framhald af
leiknum Resistance: Fall of Man
sem kom út fyrir Playstation 3 á
síðasta ári. Í leiknum fóru menn í
fótspor bandarísks hermanns sem
hélt til Englands til að berjast við
ófreskjur sem voru langt komnar
með að leggja undir sig alla Evr-
ópu. Í Resistance 2 fara menn aftur
í hlutverk sömu hetju en að þessu
sinni hafa skrímslin hafið innrás
inn í Bandaríkin.
Það er í upphafi leiksins sem Ís-
land fær að njóta sín. Þyrla, sem er
að flytja hetju leiksins til Banda-
ríkjanna, er skotin niður yfir Ís-
landi og þarf hann að sleppa úr
landi áður en ófreskjurnar ná að
leggja landið endanlega í rúst.
Hasarinn í Keflavík?
Af þeim skjáskotum sem birst
hafa má glöggt sjá að hinn íslenski
vígvöllur mun vera í grennd við
bandaríska herstöð; hvort það er
Keflavík eða einhver ímynduð her-
stöð er ekki vitað.
Fyrri Resistance-leikurinn
treysti mikið á raunverulegar bygg-
ingar, svo sem dómkirkjuna í
Manchester, til að hafa trúverð-
ugan vettvang fyrir hasarinn og því
er allt eins líklegt að raunveruleg
íslensk mannvirki eða bæir komi
við sögu í þessum stórleik.
How do you like Iceland?
Grimmar ófreskjur leggja Ís-
land undir sig í Resistance 2.
Playstation 3-leikurinn Resistance 2 hefst hér á landi
Ófreskjur hafa
sigrað Ísland
Það eru ekki margir
tölvuleikir sem gerast á
Íslandi. Þetta mun þó
breytast í haust þegar
tölvuleikurinn Resistance
2 lítur dagsins ljós en
leikurinn hefst á Íslandi.
➤ Insomniac Games er eitt virt-asta leikjafyrirtækið sem
framleiðir einvörðungu leiki
fyrir Sony-leikjavélarnar.
➤ Fyrirtækið hefur meðal ann-ars sent frá sér hina geysi-
vinsælu Ratchet & Clank-
leikjaseríu.
INSOMNIAC GAMES
Hljómsveitin The Roots hefur
ráðið til sín mikilvæga gesti til að
koma fram á næstu plötu sinni,
Rising Down, sem verður henn-
ar10. hljóðversplata og kemur út
síðar á árinu. Patrick Stump úr
Fall Out Boy, Mos Def og Com-
mon eru allir bókaðir en sögur
herma að einnig hafi komið til
tals að fá Q-Tip og Lupe Fiasco. re
The Roots með
mikilvæga gesti
Neil Diamond spilar á Gla-
stonbury-hátíðinni í Englandi í
ár og er jafnframt sá fyrsti sem
tilkynnt er um. Ameríski söngv-
arinn og höfundur laga á borð
við „Sweet Caroline“ og Am-
erica“ mun spila sunnudaginn
29. júní. Hátíðin stendur frá 27.
til 29. júní og miðar fara í sölu
þann 6. apríl næstkomandi. re
Á Glastonbury