24 stundir


24 stundir - 01.02.2008, Qupperneq 34

24 stundir - 01.02.2008, Qupperneq 34
34 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2008 24stundir Hinn gríðarlega vinsæli spurn- ingatölvuleikur Buzz! mun bæta enn einni rós í hnappagatið í sumar þegar leikurinn kemur út á PSP-leikjatölvunni. Leikurinn mun hafa yfir 5000 spurningar sem skiptast niður í marga valflokka þar sem meðal annars er spurt um fræga fólkið, íþróttir, vísindi og kvikmyndir. Þar að auki hafa sex nýjar spurn- ingalotur verið sérhannaðar fyrir PSP-útgáfu leiksins til að tryggja hámarksfjör. vij Buzz! kemur á PSP í sumar Eftir Atla Fannar Bjarkason atli@24stundir.is „Auddi Blö var með leiðindi um daginn. Hann sagði að Sly [Sylves- ter Stallone] væri útbrunninn sterahaus og núna er hann að spyrja hvort honum sé ekki boðið. Nei. Ég gleymi ekki svona. Hann er ekki velkominn,“ segir Egill Ein- arsson, betur þekktur sem Gillze- negger. Sylvester Stallone snýr aftur sem John Rambó í fjórðu kvikmynd- inni um hermanninn í næstu viku. Egill tók forskot á sæluna og bauð ásamt tveimur félögum sínum nokkrum útvöldum Rambó- aðdáendum á forsýningu í Laug- arásbíói í gær. „Ég býð ekki frægum gæjum ef þeir eru ekki Sly-aðdáendur. Frekar býð ég ófræg- um gæjum sem eru Sly-aðdáendur,“ segir Egill ómyrkur í máli um Auðun Blöndal. Fjórða kvik- myndin um Rambó hefur vakið mikla athygli vestanhafs fyrir gegndarlaust ofbeldið sem myndin sýnir á afar grafískan hátt. Við- tökur gagnrýnenda hafa verið afar mismunandi, en samkvæmt vefsíð- unni Metacritic.com hefur hún fengið að meðaltali 45 af 100 mögulegum. Egill lætur það ekki stöðva sig. „Þetta er John J. Rambó. Þú ert ekki að fara á þessa mynd til þess að sjá Ósk- arverðlaunamynd,“ segir hann. „Þú ert að fara til að sjá hasar. Þú ert að fara til að sjá Sly drepa fólk. Er hægt að biðja um eitthvað betra en það? Fyrsti gæinn er drepinn á þriðju mínútu þegar þú ert nýsestur. Sly er að rífa hausinn af mönnum í þessari mynd.“ RAMBÓ-TÖLFRÆÐI First Blood Rambo Fist Blood Part II Rambo Rambo III Fjöldi vondra karla sem Rambó drepur klæddur í bol: 1 12 33 83 Fjöldi vondra karla sem Rambó drepur ber að ofan: 0 46 45 0 Fjöldi vondra karla sem Rambó drepur hvernig sem hann er klæddur: 1 58 78 83 Fjöldi vondra karla sem félagar Rambós drepa sjálfir: 0 10 17 40 Fjöldi góðra karla sem eru drepnir af vondum körlum: 0 1 37 113 Heildarfjöldi þeirra sem eru drepnir: 1 69 132 236 Heildarfjöldi morða á mínútu: 0,01 0,72 1,3 2,59 Á hvað mínútu var fyrsta morð framið (mín.sek): 29.31 33.34 41.9 3.22 Fjöldi morða á mínútu frá því að fyrsta morð er framið: 0,02 1,18 2,39 3,04 Fjöldi atriða þar sem skotið er á Rambó án árangurs: 12 24 38 2 Fjöldi atriða þar sem góðir gaurar eru pyntir af vondum gaurum: 2 5 7 3 Fjöldi kynlífsatriða: 0 0 0 0 Rithöfundurinn John Mueller hefur tekið saman tölfræðina úr Rambó- myndunum fjórum. Egill Gillzenegger bauð útvöldum á Rambó-forsýningu Fjórða kvikmyndin um Rambó verður frumsýnd í næstu viku. Í tilefni af því bauð Gillzenegger nokkr- um hörðum Rambó- aðdáendum á forsýningu í gær. Mismunandi skoðanir Rambó er hetja í augum Egils en ekki Auðuns. maður vandist þessu svolítið í upptökum, því persóna mín í myndinni er nafli alheimsins má segja, allt snýst í kringum hana. En auðvitað er gaman að vera svona í sviðsljósinu til tilbreytingar, ég neita því ekki,“ sagði Reilly af lít- illæti. Gestaleikarar í myndinni eru ekki af verri endanum. Jack Black leikur bítilinn Paul McCartney, að- alsprauta The White Stripes, Jack White, leikur Elvis Presley og þá koma The Temptations fyrir í myndinni einnig. Fyrirfram má búast við miklum hlátrasköllum, enda framleiðendurnir hinir sömu og færðu okkur Knocked Up, The 40 Year Old Virgin og Superbad, sem allar slógu rækilega í gegn hér á landi. traustis@24stundir.is Grínmyndin Walk Hard verður frumsýnd í dag, en í aðalhlutverki er konungur aukahlutverkanna, John C. Reilly, sem margir kannast við úr Days of Thunder, Boogie Nights, Magnolia, Gangs of New York, The Aviator og Talladega Nights, svo fáeinar séu nefndar. John leikur Dewey Cox í mynd- inni, sem er í raun blanda af Elvis, Ray Charles, Johnny Cash og Bob Dylan og er sagan ekkert ósvipuð lífshlaupi Johnny Cash, nema mun fyndnari. Töluvert er um nekt í myndinni, sem John fannst í fyrstu frekar óþægilegt. „Í einu atriðinu var ég með ósvikið karlamanns- typpi steinsnar frá andlitinu sem var ekki góð tilfinning í fyrstu. En síðan vandist þetta, því það eru mörg nektaratriði í myndinni. Og eigandi reðursins, Tyler, er góður gæi og var mjög afslappaður, sem hjálpaði mér líka. Þá er maður auðvitað vanur að sjá svona lagað í karlaklefanum og því kom þetta mér ekki í uppnám,“ sagði John í nýlegu viðtali í tilefni frumsýn- ingar myndarinnar. John er eitt af kunnuglegustu andlitunum í Hollywood, en aldrei hefur hann leikið aðalhlutverk í kvikmynd af slíkri stærðargráðu fyrr. „Það er svolítið skrítið að sjá andlitið á sér úti um allan bæ á risastórum aug- lýsingaskiltum. Sem betur fer eru þau ekki mörg á þeirri leið sem ég fer í vinnuna, en vinir og ættingjar eru alltaf að minnast á þetta. Auð- vitað er þetta skrítin tilfinning, en Grínmyndin Walk Hard verður frumsýnd í dag Í kóngslíki Walk Hard leiðir áhorfendur í gegnum tónlistarsöguna. Konungur aukahlutverkanna í aðalhlutverki Hótelerfinginn Paris Hilton gerði sér lítið fyrir og kyssti leik- konuna Elishu Cuthbert í bak og fyrir á skemmtistað í Stóra eplinu í vikunni. Með athæfi þessu tókst stjörnunni enn einu sinni að koma sér á forsíður slúðurblaðanna, en nú kappkosta fjölmiðlar ytra að gera því skóna að Paris hrífist af öðrum konum. Þannig ætlaði allt um koll að keyra þegar hún gerði sér dælt við Katherine Moennig úr sjónvarpsþáttunum The L Word á dögunum, en téðir þættir fjalla á opinskáan hátt um lesbíur og sam- neyti þeirra. Paris lét það ekki nægja og í kjölfarið hélt hún rak- leiðis á klúbb fyrir samkynhneigða í Los Angeles. Þaðan hélt hún síðar um kvöldið og leiddi vinkonu sína, Courtenay Semel, og ráku menn upp stór augu vegna náinna sam- skipta þeirra. Eftir kossaflensið við Elishu í vikunni vilja menn því meina að Paris sé búin að venda kvæði sínu í kross og komi nú til með að herja á markaðinn í leit að konu. „Þær byrjuðu allt í einu að kyss- ast og voru svo hvor ofan í ann- arri,“ sagði einn áhorfenda á staðnum. hþ Gerir sér dælt við konurnar 24LÍFIÐ 24@24stundir.is a Þetta er John J. Rambó. Þú ert ekki að fara á þessa mynd til þess að sjá Óskarverðlaunamynd. Þú ert að fara til að sjá hasar. Þú ert að fara til að sjá Sly drepa fólk. Er hægt að biðja um eitthvað betra en það? Þeir sem fá aldrei nóg af því að gagnrýna ofbeldi í tölvuleikjum munu líklega slefa við þær fréttir að tölvuleikur byggður á Saw- hryllingsmyndunum sé í bígerð. Það er leikjafyrirtækið Brash En- tertainment sem vinnur að gerð leiksins en hann er væntanlegur í október árið 2009. Brash vinnur um þessar mundir náið með framleiðendum Saw- myndanna, Lionsgate og Twisted Pictures, við að búa til nýjan söguþráð fyrir leikinn sem mun tvinnast saman við heim Saw- myndanna. Leikurinn mun not- ast við nýjustu Unreal-grafíkvél- ina og því ættu framleiðendur leiksins að geta látið blóðið og allan viðbjóðinn líta nokkuð raunverulega út. Saw-myndirnar hafa notið gríð- arlegra vinsælda en þær tilheyra svokölluðum Gorno-flokki kvik- mynda þar sem reynt er að líkja eftir allskonar pyntingum og mis- þyrmingum á sem raunveruleg- astan máta. Því ætti fólk að geta ímyndað sér það fjaðrafok sem mun verða þegar Saw-tölvuleikurinn verður loksins gefinn út á næsta ári en undanfarna mánuði hafa staðið yfir harðar deilur vegna leiksins Manhunt 2 sem mun vera barna- leikur samanborið við Saw. vij Saw-tölvuleikur á leiðinni Auðunn Blöndal ekki velkominn Ertu að flytja, láttu fagmenn sjá um verkið fyrir þig Örugg og trygg þjónusta Laugaveg 80 - S: 561 1330 www.sigurboginn.is Sundbolir og bikini frá

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.