24 stundir - 17.04.2008, Blaðsíða 48

24 stundir - 17.04.2008, Blaðsíða 48
24stundir KIA • Laugavegi 172 • Reykjavík • s ími 590 5700 • www.kia. is KIA umboðið á Ís landi er í e igu HEKLU Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi Ó ! · 11 45 6 • Öflug 170 hestafla dísilvél • Ný og glæsileg innrétting • Hátt og lágt drif • 5 þrepa sjálfskipting • ESP stöðugleikastýring • 16" álfelgur • Vindskeið og þokuljós • Hraðastillir • Þakbogar • 3.500 kg dráttargeta • Sumar- og vetrardekk fylgja Listaverð 4.420.000 kr. 3.995.000 kr. FULLBÚINN JEPPI Á SÉRSTÖKU TILBOÐSVERÐI „FÁRÁNLEGA GÓÐ KAUP“ ? Það er þetta með bensínverðið ogveikingu krónunnar. Ég reyndi að út-skýra málið fyrir indverskri vinkonuminni. Bar mig illa, kvartaði fyrir höndminnar kúguðu þjóðar. Hún spurðihvort fólk væri farið að finna þetta á eig-in skinni. - Já, bensínið er orðið mikludýrara, alveg svakalegt, dæsti ég í gegn- um Skype og klykkti út með að einn lítri kostaði jafnvel meira en þrjár máltíðir úti á götu á Indlandi. - Það er eins gott að hægt er að dreifa svo miklum kostnaði á marga farþega, svaraði vinkonan. Ég þagnaði, tuldraði svo að venjulega væri bara einn í hverj- um bíl, eða sko að meðaltali 1,2 til 1,3. - Ha? Nú, ekur fólk þá um á pínu- litlum bílum, svona smartbílum sem eyða engu? Ég hóstaði. Nei, eiginlega ekki. Jeppaeign er algeng. - Já, en er ekki óhagkvæmt að aka um á alltof stórum vélum, varstu ekki að segja að bensínið væri svo rosalega dýrt? Jú, jú. - Fólk notar bílana þá bara í neyð? Ég tafsaði, nei, rannsóknir sýndu að flestar bílferðir væru innanbæjarsnatt og ekki nema nokkrir kílómetrar. Á Íslandi væri bíllinn meira svona eins og yfirhöfn: Maður sveiflaði sér inn í heitan bílinn og klæddi sig svo úr honum eftir nokkra metra. Vinkonan sprakk úr hlátri. – Þú ert sem sé að segja að þið séuð svo velmeg- andi að þið klæðist vélknúnum úlpum sem brenna skelfilega dýrum vökva? - Uuuu, það voru þín orð, ekki mín. Við heyrumst, bless. Að kveikja í peningum Sigríður Víðis Jónsdóttir spáði í úlpur. YFIR STRIKIÐ Er vélin nógu stór? 24 LÍFIÐ Grínarinn Bill Cosby hyggst gefa út hipphopp-plötu á næstunni. Hann þekkir þó sín takmörk og fær aðra til að rappa. Bill Cosby gefur út hipphopp-plötu »40 40 manns hafa skráð sig til keppni þar sem keppt er um hver er mesta gítarhetjan í tölvu- leiknum Guitar Hero. Fjölmargir vilja vera gítarhetjur »46 Svavar Lúthersson, aðstandandi Torrent.is, hefur leitað til skráa- skiptasamfélagsins um fjárhagslegan styrk. Torrent-maðurinn leitar að styrkjum »46 ● Mikið eftir „Kvenréttinda- félagið er búið að vera sterkt félag um langan tíma og komin ákveðin hefð á hlutina,“ segir Margrét Sverrisdóttir en hún var kjörin formaður Kvenrétt- indafélags Íslands á þriðjudag. „Ný könnun sýnir launamun upp á 16%. Fólk verður að fara að trúa því. Það þýðir ekki alltaf að segja að það sé ekki tekið tillit til alls, það er gert og þetta er munurinn. Þetta sýnir að þó að Kvenréttinda- félagið sé 100 ára eigum við ótrú- lega mikið eftir óunnið.“ ● Glæstar vonir „Ég lagði mig alla í þessa plötu og ég vona bara að fólki líki hún,“ segir Jó- hanna Guðrún, Yohanna, um nýja plötu sína, But- terflies and Elvis, sem kemur í verslanir í dag. „Þetta er popptónlist en það eru áhrif frá hinum og þessum tónlist- armönnum sem ég hef hlustað á í gegnum tíðina.“ Á plötunni nýtur hún aðstoðar lagahöfundarins og upptökustjórans Lees Horrocks sem hefur meðal annars unnið með Celine Dion og Enrique Ig- lesias. „Hann er algjör snillingur þessi maður, það er ekki spurning.“ ● Fjölskyldu- skemmtun „Það voru aðallega fjöl- skyldur sem mættu á frumsýn- inguna,“ segir Harpa Dögg Fríðudóttir, að- stoðarleikstjóri og talsmaður Fúríu, leikfélags Kvennaskólans í Reykjavík. Kvennó frumsýndi í gær leikrit sem samið er upp úr sagnabálkn- um 1001 nótt, í leikstjórn Mar- grétar Kaaber. „Það verða sex sýn- ingar yfir helgina með möguleika á aukasýningu,“ segir Harpa, en 25 leikarar taka þátt í sýningunni. Ritstjórn Sími: 510 3700 ritstjorn@24stundir.is Auglýsingar Sími: 510 3700 auglysingar@24stundir.is Hvað ætlar þú að gera í dag? - kemur þér við

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.