24 stundir - 17.04.2008, Blaðsíða 27
24stundir FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 27
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@24stundir.is
Ólafur Gunnarsson rithöfund-
ur er að undirbúa beat-hátíð sem
haldin verður á heimili hans,
Stóru Klöpp við Suðurlandsveg, 3.
maí. Hátíðin er haldin í minningu
beat-höfundarins Jack Kerouac og
erlendir og íslenskir rithöfundar
og listamenn taka þátt í henni.
Keppst um þátttöku
„Það er hrein tilviljun og þó
ekki að beat-hátíð skuli vera hald-
in heima hjá mér,“ segir Ólafur.
„Fyrir tuttugu árum þýddi ég On
the Road eftir Jack Kerouac sem
heitir í íslenskri þýðingu minni Á
vegum úti. Þessi bók átti hálfrar
aldar afmæli nú fyrir stundu. Þá
voru ýmsir menn héðan og þaðan
úr heiminum beðnir um að skrifa
í amerískt hátíðarrit í minningu
Kerouac og til heiðurs bókinni.
Bókin kom út síðastliðið haust.
Rithöfundurinn Ron Whitehead
stóð fyrir útgáfunni en hann var
mikill vinur Allen Ginsberg. Ron
hafði samband við mig og sagðist
vera að fara í upplestrarferð um
heiminn og spurði hvort ég vissi
um góðan stað á Íslandi þar sem
hann gæti fengið að kasta sér nið-
ur og sofa á nóttinni. Ég sagði
honum að ég byggi á því sem væri
sennilega á amerísku kallað „small
farm“. Þar væri útihús þar sem ég
geymdi tvo gamla bíla, Cadillac
frá 1968 og 1959 módel af Pontiac
en ef hann kærði sig um gæti
hann fengið að gista þar. Hann
sagði þetta stórkostleg tíðindi,
hann gæti ekki geta hugsað sér
betri eða stórkostlegri félagsskap
en þessa gömlu bíla.
Ron spurði hvort við ættum
ekki að hafa upplestrardag á
bóndabænum mínum. Ég sagði
jú, það væri ágætis verönd í
kringum húsið og við ættum að
geta lesið þar upp fyrir þá sem
hefðu áhuga á að koma og hlusta
á okkur. Ég var varla búinn að
snúa mér við þegar Ron var bú-
inn að kalla til annað beat-skáld
og sömuleiðis konu sem ætlar að
gera heimildarmynd um þennan
upplestrardag. Svo bættist við
amerísk skáldkona, Eileen Myles,
og útgefandi hennar og eftir hálf-
an mánuð fæ ég tölvupóst og þá
er amerískt lárviðarskáld og góð-
vinur Kerouack, Frank Messina,
kominn í hópinn.“
Afmæli úgefanda
Michael Pollock, Einar Kára-
son, Sjón, Hilmar Örn Hilmars-
son, Birgitta Jónsdóttir og Jónsi í
Sigur Rós munu einnig verða
meðal þátttakenda. „Svo höfum
við einhver leynivopn sem við
gefum ekki upp að þessu sinni,“
segir Ólafur og bætir við: „Ef ein-
hverjir finna hjá sér mikla löngun
til að taka þátt
í þessu með okkur og vilja lesa
upp þá er það velkomið.“
Mikið verður um dýrðir þenn-
an dag á heimili Ólafs og grillað
verður fyrir börn og fullorðna.
„Beat-dagurinn er 3. maí en þá
á minn ágæti vinur og útgefandi
til heillar eilífðar, Jóhann Páll
Valdimarsson, afmæli. Ég er að
vinna í því að Jóhann láti afmæl-
isdag sinn renna saman við beat-
daginn, komi upp eftir og haldi
upp á afmæli sitt þar,“ segir Ólaf-
ur.
Ólafur Gunnarsson „Ef einhverjir
finna hjá sér mikla löngun til að
taka þátt í þessu með okkur og
vilja lesa upp þá er það velkomið.“
Í minningu Jack Kerouac
Ólafur heldur beat-hátíð
➤ Beat-kynslóðin er notað umhóp bandarískra rithöfunda
sem mikið bar á upp úr 1950
og höfnuðu viðurkenndum
reglum samfélagsins.
➤ Helstu frömuðir beat-kynslóðarinnar voru Jack
Kerouac, Allen Ginsberg og
William Burroughs.
BEAT-KYNSLÓÐINÓlafur Gunnarsson rit-
höfundur heldur beat-
dag í byrjun maí. Erlendir
gestir koma sérstaklega
til landsins í tilefni dags-
ins og íslenskir listamenn
verða einnig meðal þátt-
takenda.
24stundir/Kristinn
Á þessum degi árið 1998 lést Linda McCart-
ney. Hún var ljósmyndari, tónlistarmaður og
baráttumanneskja fyrir dýravernd.
Linda giftist Paul McCartney árið 1969.
Saman áttu þau þrjú börn og McCartney ætt-
leiddi dóttur hennar, Heather, af fyrra hjóna-
bandi. Auk þess að vera meðlimur í hljómsveit-
inni Wings skrifaði Linda matreiðslubækur um
grænmetisfæði, setti á fót matvælafyrirtæki sem
sérhæfði sig í framleiðslu heilsufæðis og gaf út
ljósmyndabók með myndum sínum frá sjö-
unda áratugnum.
Árið 1995 greindist Linda með brjósta-
krabbamein og lést 56 ára gömul á búgarði fjöl-
skyldunnar í Arizona.
Í nýlegu viðtali lýsti Paul McCartney henni
sem ákaflega jarðbundinni og greindri konu
sem hefði aldrei kært sig sérstaklega mikið um
athygli.
Linda deyr
AFMÆLI Í DAG
Isak Dinesen (Karen Blixen)
rithöfundur, 1885
Nikita Krústsjov stjórna-
málamaður, 1894
Nick Hornby rithöfundur,
1957
10. Aska - kilja
Yrsa Sigurðardóttir
9. Þúsund bjartar sólir
Khaled Hosseini
8. Agnarsmá brot úr eilífðinni
Ólafur Ragnarsson
7. Sjortarinn - kilja
James Patterson
6. Hugmyndabókin
Fredrik Harén
5. Steinsmiðurinn - kilja
Camilla Läckberg
4. Maxímús Músíkús heimsækir...
Hallfríður Ólafsdóttir / Þórarinn M.
3. Dvergurinn Rauðgrani
G.T. Rotman
2. Alfinnur álfakóngur
G.T. Rotman
1. Dísa ljósálfur
G.T. Rotman
Listinn er gerður út frá sölu í Eymundsson
og Bókabúð Máls og menningar 09.04.
2008 -15.04.2008.
METSÖLULISTI
Bækur á íslensku
10. Absolute War
Chris Bellamy
9. Absolute Scandal
Penny Vincenzi
8. Obsession
Jonathan Kellerman
7. Stalins Ghost
Martin Cruz Smith
6. Brida
Paulo Coelho
5. Skin Privilege
Karin Slaughter
4. Devil Who Tamed Her
Johanna Lindsey
3. 501 Must-See Destin.
Bounty Books
2. Daring to Dream
Nora Roberts
1. Exit Music
Ian Rankin
Listinn er gerður út frá sölu dagana
08.04.2008 - 14.04.2008 í Pennanum
Eymundsson og Bókabúð Máls og
menningar
METSÖLULISTI
Erlendar bækur
Auglýsingasíminn er
510 3744
stundir
KOLLAOGKÚLTÚRINN
kolbrun@24stundir.is a
Dagur án hláturs er
dagur sem ekki hefur
verið nýttur vel.
Charlie Chaplin
MENNINGARMOLINN