24 stundir - 17.04.2008, Blaðsíða 1

24 stundir - 17.04.2008, Blaðsíða 1
24stundirfimmtudagur17. apríl 200873. tölublað 4. árgangur Ólafur Gunnarsson rithöfundur heldur beat-dag 3. maí en beat- kynslóðin er hópur bandarískra rit- höfunda sem höfnuðu við- urkenndum reglum sam- félagsins um 1950. Beat-dagur Ólafs KOLLA»21 Huga þarf reglulega að öryggi og ástandi leiktækja, ekki síst nú þegar sumarið er á næsta leiti, að sögn Sig- rúnar A. Þorsteinsdóttur. Oft þarf ekki að gera mikið til að draga úr hættu á slysum. Öryggi leiktækja HEILSA»31 Þriðjungsmunur á túnþökunum NEYTENDAVAKTIN »4 Þýskt fyrirtæki sem framleiðir innréttingar í farþegaflugvélar hyggst hefja framleiðslu á pissuskálum, sem ætlað er að stytta raðir á salernin. Nor- bert Runn, talsmaður fyr- irtækisins, telur að notkun skálanna muni hefjast á næsta ári. „Skálarnar eru smærri og taka minna pláss en hefð- bundin salernisaðstaða,“ segir Runn. Segir hann umtals- verðan tíma geta sparast, þar sem meirihluti farþega á al- mennu farrými sé karlkyns. aij Pissuskálar í háloftunum GENGI GJALDMIÐLA SALA % USD 74,11 -0,81  GBP 146,36 -0,27  DKK 15,85 0,09  JPY 0,73 -0,75  EUR 118,28 0,11  GENGISVÍSITALA 151,09 -0,17  ÚRVALSVÍSITALA 5.244,98 1,22  8 7 3 8 5 VEÐRIÐ Í DAG »2 Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@24stundir.is Margir tugir nemenda leita sér á hverjum vetri aðstoðar hjá sálfræðingum og námsráðgjöfum í háskólum vegna prófkvíða. Einkennin geta verið líkamleg, eins og til dæmis bólgur í maga og vöðvum auk svefn- leysis. Andlegu einkennin eru kvíði, vonleysi og vanmáttarkennd, að sögn Rögnu Ólafs- dóttur, sálfræðings hjá náms- og starfsráðgjöf Háskóla Íslands. Óraunhæfar kröfur „Vegna prófkvíðans kemur það fyrir að nemendur fresti prófum eða fari úr einni námsgreininni í aðra. Í prófunum sjálfum skortir þá sem eru með prófkvíða oft einbeit- ingu. Þeir æða til dæmis úr einni spurningunni í aðra. Þeir eru ekki nógu markvissir, hvorki í prófinu sjálfu né undirbúningnum. Þetta getur augljóslega sett mark sitt á námið. Oft er um að ræða góða nemendur sem gera óraunhæfar kröfur til sjálfra sín,“ segir Ragna sem bætir því við að venjuleg prófstreita sé bara eðlileg og hvetjandi. „Þegar streitan fer hins vegar yfir ákveðin mörk og líðanin er orðin það slæm að fólk getur ekki gert eins vel og það getur er um vandamál að ræða.“ Þeir sem leita sér aðstoðar yfir veturinn hjá náms- og starfsráðgjöfinni skipta tugum. Flest- ir koma þegar prófin fara að nálgast. „Við bjóðum upp á námskeið á haustin og vorin þar sem kennd er stjórnun á prófkvíða. Einnig er boðið upp á einstaklingsmeðferð,“ segir Ragna. Fleiri stelpur en strákar Hún segir stelpur í meirihluta þeirra sem leita sér aðstoðar. „Það þýðir ekki að þær séu kvíðnari en strákar. Þær eru kannski ekki jafn- viðkvæmar fyrir því að viðurkenna veikleika.“ Sólveig Hrafnsdóttir, námsráðgjafi við Há- skólann á Akureyri, segir að til hennar leiti ein- hverjir tugir prófkvíðinna nemenda á hverjum vetri. „Þeir koma með prófkvíða úr öðrum skólum og við kennum þeim að reyna að ráða við hann. Kvíðinn hverfur ekki alltaf strax en það bætir líðanina að kunna að stjórna hon- um.“ Nemendur sem leitað hafa til námsráðgjafa við Háskólann í Reykjavík í vetur skipta nokkr- um tugum, að sögn Karenar Björnsdóttur námsráðgjafa. Þar er boðið upp á kvíðastjórn- unarnámskeið eins og í hinum háskólunum. ÞEKKIR ÞÚ TIL? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á frettir@24stundir.is Þjáð af prófkvíða  Tugir háskólanema þjást af magabólgum, svefnleysi og vanmáttarkennd vegna próf- kvíða  Fresta prófum eða fara úr einni grein í aðra  Námskeið til að takast á við vandann ➤ Nemendur með prófkvíða fá lengri tíma enaðrir til að ljúka prófi. ➤ Þeir fá einnig að sitja í fámennum stofum. ÚRRÆÐI VEGNA PRÓFKVÍÐA Yfirþyrmandi Þúsundir blað- síðna af lesefni og próftaka í tíma- pressu leggjast þungt á marga stúdenta. Stúlkan á myndinni tengist ekki efni fréttarinnar. 24stundir/Golli Borgarstjóri segir sjálfsagt að fjölga skýlum á biðstöðvum Strætó. Um 550 biðstöðvar eru í Reykjavík en 200 þeirra eru án skýlis. Þar bíða farþegar því án skjóls fyrir veðri og vindum. Ekkert skýli á 200 biðstöðvum »2 Hægt er að framleiða 75% þess korns sem þörf er á til fóðurgerðar hér. 11 þúsund tonn af byggi voru framleidd hér í fyrra en fimmfalt meira þarf til að anna innlendri eftirspurn. Kornrækt ætti að fimmfalda »4 ostahusid.is Brie með hvítlauksrönd Bílaverkstæði Smurstöð Verslun Vissir þú að... vélarslitvörn frá Liqui Moly kemur í vegfyrir að vélin bræðir úr sér ef hún verður olíulaus. Sjálfstæðismenn í Árborg vilja að bærinn kaupi menningarsal Hótels Selfoss. Salurinn er falur fyrir 90 milljónir og fæst gegn niðurfell- ingu fasteignagjalda af hótelinu í nokkur ár. Salurinn verði keyptur strax »6 Markaðssetning vestfirskra sæl- keraslóða gæti verið mikið sókn- arfæri í sérhæfðri ferðaþjónustu. Ísland gæti orðið fastur áfanga- staður sælkeraferða- langa sem fjölgar ört. Vestfirðir seldir sælkerum »16 »14

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.