24 stundir - 17.04.2008, Blaðsíða 8

24 stundir - 17.04.2008, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 24stundir Svifryk mældist yfir heilsu- verndarmörkum í Reykjavík- urborg í gær og líkur eru á að hið sama verði upp á ten- ingnum í dag. Ryk berst nú of- an af hálendinu og inn yfir borgina og eins úr opnum grunnum og óbundnum svæðum í nágrenni borg- arinnar. Þá eru nagladekk mikill orsakavaldur svifryks. Svifryk veldur þeim sem eru með viðkvæm öndunarfæri miklum óþægindum og er fólk hvatt til að hafa varann á sér. fr Ryk í Reykjavík Svifryk mælist yfir mörkum STUTT ● Gæsluvarðhald Hæstiréttur staðfesti í gær úr- skurð Héraðsdóms Reykjaness um að erlendur karlmaður skuli sitja í gæsluvarðhaldi til 2. maí. Maðurinn er grunaður um aðild að fíkniefninnflutn- ingi og brot á endurkomubanni sem hann var dæmdur til 2004. ● Fíkniefnafundur Lögreglan lagði hald á fíkni- efni og 200 þúsund krónur í peningum við húsleit í Laug- ardalshverfi í fyrrakvöld. Karlmaður um fertugt var handtekinn vegna málsins. Eftir Þóru Kristínu Þórsdóttur thorakristin@24stundir.is Séu laun kynjanna skoðuð eftir starfsstéttum sést að konur voru með 18-57 prósentum lægri heild- arlaun (þ.e. laun og óreglubundnar greiðslur) en karlar í sömu stétt í fyrra, skv. upplýsingum frá Hag- stofunni. Munar 15-52% séu ein- göngu skoðuð reglubundin laun. Heimilisstörfin íþyngja konum „Launamunurinn getur að hluta til helgast af því að meðalvinnutími karla er lengri en vinnutími kvenna, en það endurspeglar líka ójafna verkaskiptingu á heimilum. Þar sem konur bera almennt meiri ábyrgð á ólaunuðum störfum inn- an heimilisins vinna þær minna úti en karlar, þó ekki muni miklu. Langur vinnutími karla fleytir þeim svo upp í hærri laun og við- heldur þannig ójafnri verkaskipt- ingu á heimilunum,“ segir Guð- björg Linda Rafnsdóttir félagsfræðingur. Sérfræðingarnir áberandi „Í tölum Hagstofunnar er kyn- bundinn launamunur sérlega áber- andi hjá sérfræðingum, stjórnend- um og sérmenntuðu starfsfólki. Við höfum áður séð að háskóla- menntun skilar sér betur í launa- umslag karla en kvenna sem er háalvarlegt mál,“ segir Guðbjörg og bætir við að mikilvægt sé að rannsaka hvaða öfl séu þar að baki. Hún segir líklegt að konur og karlar í hópi stjórnenda vinni í mismunandi atvinnugreinum. „Konur komast síður í stöðu æðstu stjórnenda en karlar og það er nokkuð ljóst að kvenstjórnendur tilheyra ekki þeim hópi stjórnenda sem fá ofurlaun. Kannski eru þær síður ráðnar í slík störf en mögu- lega þykja konur líka síður þurfa ofurlaun en karlar. Hluti kvenstjórnenda er stjórn- endur í svokölluðum hefðbundn- um kvennastörfum, t.d. í heil- brigðisgeiranum, en það er þekkt að launin eru almennt lægri hjá starfsstéttum þar sem konur eru í meirihluta en í hefðbundnum karlastéttum,“ segir hún. Væntingar ólíkar eftir kyni Þá segir Guðbjörg konur oft eiga erfiðara með að semja um laun því atvinnurekendur hafi ólíkar vænt- ingar til starfsmanna eftir kyni. „Þær hafa lítið að gera með raunverulega getu eða vilja við- komandi einstaklinga heldur end- urspegla þær staðalmyndir kynjanna. Litið er á karlmenn sem fyrirvinnur, sem þurfi þar af leið- andi góð laun á meðan litið er á konur sem annars flokks fyrirvinn- ur, sem sé að hluta til framfleytt af körlum.“ Þá segir Guðbjörg barneignir og hjónaband oft talið körlum til tekna en ekki konum. „Þessi við- horf valda því að karlmenn fá oftar en konur aukasporslur, óháð raun- verulegum vinnutíma, frammi- stöðu og getu.“ HVAÐ VANTAR UPP Á? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á 24@24stundir.is Stjóri og stýra með mismunandi laun  Heildarlaun íslenskra kvenna allt að helmingi lægri en heildarlaun karla í sömu stétt HEILDARLAUN ÍSLENDINGA Stjórnendur Sérfræðingar Tæknar og é t ði Skrifstofu- fólk Þjónustu-, öl f f Iðnaðar- Verkafólk Eftir starfsstéttum 2007 82 6. 00 0 91 1. 00 0 58 6. 00 0 62 5. 00 0 51 6. 00 0 47 5. 00 0 58 0. 00 0 36 8. 00 0 32 0. 00 0 36 2. 00 0 30 6. 00 0 31 9. 00 0 35 8. 00 0 25 8. 00 0 45 3. 00 0 31 6. 00 0 33 7. 00 0 24 8. 00 0 68 8. 00 0 Allir Karlar Konur ➤ Heildarlaun Íslendinga, s.s.laun og aðrar greiðslur fyrir utan kaupréttarsamninga, í fullri vinnu voru að meðaltali 424.000 á mánuði. ➤ Voru heildarlaun karla í fullustarfi 467.000 að meðaltali og laun kvenna 332.000. ➤ Meðal-Íslendingurinn vann44,8 stundir á viku. Unnu konur 41,8 stundir á viku en karlar 46,1 stund. LAUN 2007 Kristinn H. Gunnarsson, þing- maður frjálslyndra, spurði fjár- málaráðherra um ástæður þess að skrifstofum Fasteignamats ríkisins í Borgarnesi og á Egilsstöðum hefði verið lokað og „störfum þannig fjölgað í Reykjavík“ en fækkað á landsbyggðinni á þingi í gær. Sagði ráðherra að þeim hefði fyrst og fremst verið lokað vegna minnkandi verkefna þar sem skráningu í landsskrá fasteigna væri lokið. Þá sagði hann ekki rétt að breytingarnar fælu í sér fjölgun starfa í Reykjavík því þó að verkefni þau sem þessi útibú hefðu sinnt færu til Akureyrar og Reykjavíkur yrði ekki fjölgað starfsfólki þar. Lagði hann jafnframt áherslu á að ákvörðunin hefði ekki verið tekin vegna óánægju með starfsemi við- komandi útibúa FMR eða starfs- manna þeirra. þkþ Lokun skrifstofa FMR fyrir vestan og austan Starfsfólki fjölgar ekki í Reykjavík Meistaranemar í sagnfræði og heimspeki við Háskóla Íslands eru að vinna verkefni sem tengj- ast fyrirtækinu CCP og leiknum Eve-online. Annar þeirra, Andri Wilde sagn- fræðinemi, hyggst skrifa sögu Eve- online en hinn, Pétur J. Óskarsson heimspekinemi, er að kanna þróun lýðræðis innan leiksins. Eve-Online er fjölspilunarleikur á netinu. Þátttakendur mynda samfélög en saga þeirra hefur ekki enn verið rituð. Þá hefur lýðræði verið innleitt í Eve-online en níu manna full- trúaráð er kosið til hálfs árs í senn og hefur samstarf við CCP. Ritgerðir um Eve-online Með meistara- próf í tölvuleik Hjá Creditinfo Ísland er nú hægt að nálgast upplýsingar um hve líklegt fyrirtæki er til að lenda í alvarlegum vanskilum. CIP- áhættumatið metur fyrirtækið út frá viðamiklum gögnum, s.s. árs- reikningum, hlutafélagaskrá, upplýsingum um stjórnarmenn og framkvæmdastjóra, eigna- tengsl við önnur félög, atvinnu- grein og aldur. Þá er hægt að skoða greiðsluhegðun fyrirtækis og hver staða þess er í sam- anburði við önnur fyrirtæki. Creditinfo Ísland Íslensk fyrirtæki áhættumetin

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.