24 stundir - 17.04.2008, Blaðsíða 40

24 stundir - 17.04.2008, Blaðsíða 40
40 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 24stundir 24LÍFIÐ 24@24stundir.is a Mín plata lítur til rauna þeirra er blasa við ungu fólki í dag, en notast ekki við blótsyrði, sem oft eru tilgangs- laus í tónlistinni í dag. Eftir Trausta Salvar Kristjánsson traustis@24stundir.is Hinn aldni leikari og uppistand- ari Bill Cosby er aldeilis ekki dauð- ur úr öllum æðum, en þessi þel- dökki skemmtikraftur er sjötíu og eins árs gamall. Grínistinn góð- kunni hyggur nú á útgáfu hipp- hopp-plötu er nefnist „Cosby nar- ratives Vol. 1: State of Emergency“ og er einskonar hræringur af sög- um og bröndurum í bland við taktfasta hipphopp-tónlist. Krafa um kurteisis hipphopp Cosby segist ekki fyrir sitt litla líf ætla að rappa á plötunni. „Ég myndi ekki geta hreyft munninn nógu hratt né geta sagt sum orðin sem þeir nota í dag,“ sagði Bill sem mun njóta aðstoðar gestatónlist- armanna. Hann ýjaði að því að blótsyrði væru allt of algeng í tón- list. „Mín plata lítur til rauna þeirra er blasa við ungu fólki í dag, en notast ekki við blótsyrði, sem oft eru tilgangslaus í tónlistinni í dag.“ Textarnir á plötu Cosbys fjalla mikið til um gildi menntunar og sjálfsvirðingu og eiga að styrkja sjálfsmat og sjálfsöryggi hlustenda. Það er í fullkomnu jafnvægi við boðskap Cosbys í gegnum tíðina, sem hefur lengi predikað slíkt í garð kynbræðra sinna og -systra, en honum blöskrar að ungt fólk skuli einblína á frama í skemmt- ana- og tískuiðnaðinum í stað þess að mennta sig og setja sér raunhæf markmið. Þá hefur Cosby lengi barist fyrir almennum borgararétt- indum þeldökkra og er góðvinur predikarans og fyrrverandi forseta- frambjóðandans Jesse Jackson. Ekki fyrsta plata Cosbys Þó hér sé um að ræða fyrstu plötu Cosbys með hipphopp- áhrifum, getur hann státað af nokkuð reglulegri útgáfu síðan 1963. Um er að ræða upptökur af uppistandi meistarans, sem gjarn- an byggist í hans eigin lífsraunum og þar er af nógu að taka, en Cosby missti til dæmis son sinn í skotárás árið 1997, þegar hann var að skipta um dekk á bíl sínum. Cosby býst ekki við að diskurinn slái í gegn, það sé óraunhæft, en lofar samt meiru, því hann segist ávallt geta betur. Hinn gamalgróni grínisti Bill Cosby höfðar til ungviðisins Bill Cosby gefur út hipphopp-plötu ➤ Hóf ferilinn í sjónvarpsþátt-unum I Spy. ➤ Fékk sinn eigin þátt 1969,The Bill Cosby show. ➤ Hefur haft áhrif á Richard Pry-or, Jerry Seinfeld, Chris Rock, Dave Chapelle og marga fleiri. BILL COSBY Hinn góðkunni og gam- alreyndi grínari Bill Cosby er ekki dauður úr öllum æðun, en hann hyggst gefa út hipphopp- plötu á næstunni. hann þekkir þó sín takmörk og fær aðra til að rappa. Höfðar til skynseminnar Bill Cosby er ekki hrifinn af stefnunni sem margt ungt fólk tekur í lífinu. Jackie Chan og Chris Tucker ná greinilega vel saman á hvíta tjald- inu því þeir félagar hafa nú ákveðið að taka enn einu sinni höndum saman í kvikmynd, svo lengi sem það er ekki Rush Hour 4. „Við settumst niður og ákváðum að við vildum gera aðra kvikmynd. Ekki Rush Hour- mynd, eitthvað nýtt,“ sagði Jackie Chan við MTV News á dögunum. Hin aldna hasarhetja sagði að ekkert væri ákveðið í þessum málum annað en það að stjörn- urnar tvær eru ákveðnar í því að gera aðra mynd saman. Chan og Tucker saman á ný MYNDASÖGUR Aðþrengdur Afsakið að ég er til! HVAÐ ER SVONA FYNDIÐ? EINHVERJIR FLEIRI GJAMMARAR Í SALNUM? -HEY SLAKAÐU Á, HVAÐ VAR ÞETTA MEÐ FANGELSISMATINN? Bizzaró Hey! Láttu mig taka mynd svo þú getir verið með á myndinni! HEILL HEIMUR AF SKEMMTUN Opið sunnudaga til fimmtudaga 11.00 -24.00 Opið föstudagaoglaugardaga 11.00 - 02.00 Skólavörðustíg 21 – Sími 551 4050 – Reykjavík Sængur og koddar Allar stærðir teg. Golden Martina - gl silegur "push up" me aukapœ um BCD skÆlum Æ kr. 4.470,- teg. Golden Martina big - s mulei is mj g gl silegur fyrir st rri d muna CDEFG skÆlum Æ kr. 4.885,- Misty, Laugavegi 178, Sími 551 3366 Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf www.misty.is

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.