Sunnudagsblaðið - 15.05.1966, Blaðsíða 5

Sunnudagsblaðið - 15.05.1966, Blaðsíða 5
gefendur. En þetta komst upp, og hann var látinn hætta. Nokkru síðar brauzt farsótt út í fangabúðunum, og öll læknislyf skorti, - — enda höfðu hvorki japönsku fangabúðarlæknarnir né yfirstjórn fangabúðanna vilja eða getu til að koma til hjálpar. Wa- tanabe tók þá til sinna eigin ráða. Hann var búinn að ávinna sér trúnað brezku fanganna, og þeir vísuðu honum til kínverskrar konu, sem bjó ásamt þremur börnum sínum í Hong Kong, en maður hennar gegndi herþjón- ustu. Watanabe hélt fljótlega til fundar við hana, en hún hét Nellie Lee. Fyrst tók hún honum með nokkurri tortryggni, en Wa- tanabe tókst fljótlega að vinna bug á henni, og eftir það var hann aufúsugestur í húsi hennar og ekki hvað sízt vinsæll meðal barnanna. Nellie Lee kom honum í samband við dr., nú Sir Selwyn Selwyn-Clarke, sem verið hafði yfirlæknir í Hong Kong og hafði einhverra hluta vegna ekki verið tekinn höndum. Dr. Selwyn-Clarke útvegaði lyf, sem Watanabe síðan smyglaði inn i fangabúðirnar, — fyrst í mjög smáum skömmtum, en síðan í stærri stíl. í búðunum var talsvert af kandískum föngum og þeir voru orðnir beygðir af því að fá aldrei neinar fregnir að heiman eða gjafapakka eins og Bretarnir fengu sem játtu/ vandámenn íl borginni. Watanabe varði þá hluta af launum sínum sem engan veg- inn voru mikil til að láta kaupa gjafir fyrir þessa menn og siðan voru þær fluttar inn í fangabúð- irnar á venjulegan hátt. Og hann liélt áfram að útvega læknislyf og jafnvel þegar dr. Selwyn- Clarkc var tekinn fastur, gat hann haldið því áfram, þar eð samböndum hans hafði farið tals- vert í'jölgandi. En að því kom að lokum að gripið var í taumana. Einn góð- an veðurdag var Watanabe kall- aður á íund íangabúðastjórans. Hann var svo óður af reiði að hann fékk naumast talað. Loks kom þó út úr honum í gusu: — Ég vil ekki einu sinni kalla þig svín, það væri móðgun við skepnurnar. Þú hefur svikið Japan og hjálpað fjandmönnum okkar. Þú skalt fá að deyja, hægt og kvalafulit. Ég læt Kempeitai (leynilögreglan japanska) taka við þér. Watanabe gerði ráð fyrir að þar með væri öllu lokið og úti um hann. En það gerðist ekki neitt. Ástæðan hefur trúlega ver- ið sú, að Japanir voru komnir að tapi og herstjórn þeirra farin að leysast upp. Nokkrum dögum síðar, 15. ágúst 1945 flutti Japanskeisari hið fræga útvarpsávarp sitt, og styrjöldinni var lokið. Japan hafði beðið ósigur, og Watanabe grét — ekki yfir uppgjöfinni, — heldur yfir þeim hörmungum, sem hann hai'ði verið vitni að. Hann grét af áhyggjum vegna fjölskyldu sinnar, en frá henni hafði hann ekkert frétt svo mánuðum skipti. Eftir uppgjöf Japana fengu brezkir og kínverskir vinir lians því áorkað, að liann var ekki settur í fangelsi, og hann hélt áfram að starfa sem túlkur, að þessu sinni þýddi hann jap- önsku fyrir Breta.Að heiman frétti hann ekkert fyrr en eftir nokkrar vikur. Og þá voru það ekki gleði- t.íðindi sem bárust honum heldur harmsaga. Kona hans og dóttir höfðu báðar farizt í þeim eina glampa, sem jafnaði Hírósjíma við jörðu, fyrstu kjarnorkuspreng- ingunni. Þeir menn og þau öfl, sem hann hafði lagt lið, höfðu gert út af við ástvini hans. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - SUNNUDAGSBLAÐ 293

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.