Sunnudagsblaðið - 15.05.1966, Blaðsíða 23

Sunnudagsblaðið - 15.05.1966, Blaðsíða 23
Og Iiyer ber svo ábyrgS á þessum mistökum? i hve fullkomlega vonlaus a'ðsta'ða okkar var, hvort ég skildi að ]xítta brambolt var jaín vita-fánýtt og snjómoksturinn á þakinu ,að allt sem ég gerði varð einungis til að stuðla að réttri framrás atvikanna, hjálpa þeim að halda áætlun sinni? En svarið er neitandi. Ég bægði öllum slíkum liugsunum frá mér. Einhver eðlishvöt bauð mér að taka upp þessá vonlausu bar- áttu — sem lífið væri óbærilegt án hennar. Ég reyndi að telja sjálíum mér tru um að áhyggjur mínar væru ► f jarstæðukenndar og hpimskulegar Það var hvorki styrjöld né farsótt sem vofði yfir okkur, — einungis hlægilegt grýlukerti sem ekki hafði nema einn möguleika móti milljón að hitta í mark. Vandinn var ekki annar en fara yfir götuna og þar með væri öllum háska af- stýrt. Og í öllu falli yrðum við þúsund mílur í burtu þegar stund- jn rynni. Við mundum ieygg okkur balc við Úralfjöllin og ekki snúa afíur fyrr en grýlukertið hefði þiðnað eða fallið ofan í hausinn á einhverjum fáráðling sem ekki vissi á hyerju hann átti von. Bara Boris taki ekki upp á því að segja til mín, hugsaði ég, svo ég yrði gripinn á brautarstöðinni og hindr- aður að komast í burt iir þessari kuldatíð. Ég hélt við ætluðum ekki að hafa það af. Það var ekki fyrr en lestin fór í gang og vagninn okkar hnykktist af stað að ég andaði léttar. Ég bað um tvenna rúmfatn- aði, sat svo reykjandi og horfði á Natösju búa um. Vagninn hökti og riðaði til en Natasja smeygði koddunum í ver, með bliknuðum ísaumi, einsog hún hefði ekki annað gert um dagana. Það var svo mikil rósemi yfir þess- um viðbúnaði hennar að ég hallaði mér að henni og sagði: „Natasja,” sagði ég, „v|ð skuþim giftast, Natasja.” Hún gekk frá lökunum með sama húsmóðiirbrag,. settist. niður með annan fótinn uhdir sér. „En þú veizt vel að Boris vill ekki gefa mér eftir skilnað,” sagði hún. „Það gerir ekkert til. Við skul- um búa saman samt eins og hvert annað fólk. AUt í lagi?” Hún sagði ekkert. Þess í stað lagði hún mjúkan lófann yfir augu mín. * Ritstjóri: Kristján Birsi ÖlafssoR Útgefandi: AlþýSublaSiB Prontun: PriRtsmlIja Albýtublalslh*. AU>ÝÐUBLAÐIÐ - SUNNUDAGSBLAÐ gjj I

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.