Sunnudagsblaðið


Sunnudagsblaðið - 15.05.1966, Qupperneq 11

Sunnudagsblaðið - 15.05.1966, Qupperneq 11
Leiðrétting bæjarklausturs 1523 sem sýnir auð klaustursins í löndum og lausafé og gripi hinnar miklu klausturkirkju er þar hefur sta®- ið og staðarins. SUMARIÐ 1523, í ÞYKKVABÆ (gamall máldagi). Anno Domini 1523 var svo felldur máldagi í Þykkvabæjar- klaustri um sumarið þá herra Ög- mundur með guðs náð biskup í Skálholti var í sinni visitatio um Austfirðingafjórðung. Tn primis : Hrafnbær, Herjólfs- staðir, Hoít, Skáldabær, Jórvík, Mýrar, Flaga, Hrífunes, Hemra, Hlíð, Gröf, Borgarfell, Hvammur, Svínadalur, Nes 2, Ásar, Botnar, Hólmar, Hnausar, Skarð, Lyngum 2, Eyjar 2, Sandar, Dalbær, Fagra hlíð, Þykkvabær, Seljaland, Dal- ur, Hvolur, Hryggir, Ketilsstaðir, hálfa Dyrhólmana, Geilar, Hvamm -Ur, Foss, Gata, Heiðar, Vík, Fagridahir, Höfði, Steinar, Upp- salir, Staffell, Miðhús, Útdalur, Hánefsstaðir, Þemunes. Item reiknaðist svo mikið orna- mentum kirkjunnar eftir fráfall Árna ábóta Steindórssonar, sem guð hans sál náði, þá er ábóti Hall- grímur Koðránsson tók við 3 ár- um síðar. In primis, innan kirkjunnar: Item 16 höklar góðir og 4 vond- ir, 8 messuklæði góð og 4 vond, item svo margar kantarakápur, 3 góðar og 10 vondar, item 3 slopp- ar og 4 rykkilín, 2 merki, 10 kor- poralar, 5 sacvarium, handklæði, 6 kaleikar góðir, propiciatorium 1, 2 silkidúkar litlir, 3 glóðarker og 1 með silfur og 2 silfurkrossar, brík sæmileg með alabastur, 2 írskir krossar, hinn þriðji gylltur, 3 áltarisskrúðar, 2 stólklæði, 2 textar og annar með kodda, 10 dalmatikur með 2 vondum, 2 baglár annar með tönn en annar með kopár, ábótahúfa, 1 glófar, 2 paxblod? Item svo mörg líkneski í kórnum in primis: Maríúskrift, Jónsskrift, með ala- bastur, Ágústinsskrift og Þorláks- skrift gömul með tré item brík uppá Maríukór méð alabastur item 4 kóþarstikur, 2 burðarstikur stór Allmargar prentvillur hafa slæðzt inn í fyrri greinar um ís- lenzkt klaustur, og verða þær helztu þeirra, þær, sem sízt er hægt að lesa í málið. — leiðrétt- ar hér með. ar og 4 smáar, 2 merkisstengur, 3 altarissteinar og 1 prestastóll. Item í hákirkjuni, fontar og font- klæði og umbúningur allur, Maríu- skrift stór og kross með undirstöð- um með tré, Ágústinsskrift stór forgyllt, Ólafsskrift og Andrés- ski-ift, heilög þrenning með ala- bastur, Önnuskriftir tvær, Katrín- arskrift, Nikulásarskrift og Jóns- skrift með tré og sancte rokus- skrift og Veronika með alabastur. Item svo margar sængur 4 góð- ar og 6 alfærar, léttari og 6 hæg- indi og auki 1 ábreiða og 3 áklæði ligjandi. Item í klaustrinu 4 hægindi með rekkjuvoðum og ábreiðum. 80 vætt ir smjörs, item sláttur 15 sauðir með öllu, item af 5 nautum skam- rif að 4 nautum síðuspellr, af 3 nautum bægir (bógar), af 6 naut- um kuidalar? Item svo mikil forn skreið 19 hdr. 7 harðsteinar, og ádráttar brýni 2, 15 ljáir, 5 uxa- húðir, 5 axir og 1 klaufax, 10 stjór ar, 8 vaðir, 30 hesta reiðingur, 14 hesta reip, item smiðja alfær, 2 pálar og 1 járnkarl, hálf önnur tunna tjörnu, 8 kvíslar og 5 rekur, 9 orf, 6 sigðir. Item á 5 hesta bar- krókar. Item svo mörg tinföt 11 lítil og 4 föt steind, 4 rauð og 3 rauð forn, 1 vevricat? 15 borð- diskar, item trédiskar smáir og stórir 48, item 12 ölkönnur með 1 koparkönnu, 6 tinter, 16 horn- staup og beitsleigið eitt, 6 bikarar með tré undir 12 hesta járn, item 9 pansara og 4 járnhattar, 3 hengi og 2 kragar item hjulauk, ein vond? 1 hægindaver með lín og 1 lítið tjald með röndum. (Heimildir: Biskupasögur, Ann- álar, Fornbréfasafn, Sturlunga, íslenzkar æviskrár. Árbækur Espó líns o.fl.). í greinina um Þingeyrarklaust- ur í 8. tbl., 20. marz: Bls. 184 í 2. dálki ségir, að Bjarni Ingimundarson hafi verið ábóti frá 1280 til dauðadags 1288, á að vera 1299. Neðar í sama dálki liafa fallið úr nokkur orð. Þar á að standa: Höskuldur heitir ábóti á Þingeyr um 1300—1309. Systursonur hans var Guðmundur ábóti 1310—38, mesti merkismaður o.s.frv. Bls. 185 í 2. dálki hafa fallið úr tvö k i fjórðu línu að ofan: þar á auðvitað að standa: ok kenndi mörgum klerkum. Bls. 186 í 3. dálki stendur í pró- ventubréfi: höfum vér tekið Helgu og Guðrúnu Ólafsdóttur: Þar á aS standa Helga Þorvaldson og Guð- rúnu Ólafsdóttur. í sama dálki er nefndur Kirkju bær í Norðurárdal: á að vera Kirkjubær í Laxárdal. Bls. 187 í 2. dálki stendur: Krist- ínar Gottskálkssonar: á að vera Gottskálksdóttur. í 3. dálki sömu bls. hefur fallið úr nafn: þar á að standa Guðrúnar Árnadóttur í Kalmanstungu Jóns- sonar. Bls. 188 neðarlega í 1. dálki stendur Barnakarsmessu: að að vera Barnabarsmessu. Bls. 190, 1. dálki hefur fallið niður setningin: „þrjár ölkönnur gamlar” úr skránni um eign klaust- ursins. Sömu bls. í sama dálki stendur Þorgils Oddsson:\á að vera Odda- son. Sama dálki neðar stendur kórsaltari: á að vera krossaltari. 2. dálki sömu síðu stendur „heil- ags Benedikts”: á að vera heilagur Bcnedikt . í greininni um Munkaþverár- klaustur í 10. tbl., 10. apríl: Bls. 232, 3. dálki hafa fallið út úr til- vitnun í Guðmundar sögu orðin: at Guðmundr biskup, frændi minn, má meira en sjálfum sér”. Bls. 236, 2. dálki hefur fallið niður nafn: þar á að standa Guðrúnar Törfadóttur hirðstjóra á Ökrum. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - SUNNUDAGSBLAB 299

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.