Sunnudagsblaðið - 15.05.1966, Síða 17

Sunnudagsblaðið - 15.05.1966, Síða 17
börnin mín stóðu alcngdar og tyiltu sér á tá til að reyna að sjá framan í mig. En í senn var ég lif- andi og horfði á þetta einhvers staðar að utan og ofan. Ég grét og hrópaði til þeirra að þau biðu mín, það mætti vel vera að ég hresstist og færi á fætur. Ég bað þau líka að taka burt blómin því mér sló fyrir brjóst af lyktinni af þeim. En þau skeyttu þessu engu, heldur baru lxkið út með fæturna fram eins og siður er. Ég hljóp á eftir þeim niður mar- maraþrepin hrópandi að þau skyldu bíða. Og síðan missti ég meðvitund........ Allur þessi minningaflaumur varð tii þess að ég missti með ein- hverjum hætti sjónar á sjálfum mér, hver ég væri og hvar niður- kominn. Mér fannst ég ekki vera til, að ég væri ekki nema óendan- leg röð tilviljunarlegfa atvika sem komið hefðu fyrir annað fólk fyTir og eftir minn dag.Til a® fullvissa mig um að ég væri raunverulegur leitaði ég til spegilsins og sat langtímum saman og starði á and- lit mitt í honum. En þetta dugði mér ekki nema skammt. Menn eru þannig gerðir að þeim virðist útlit sitt aldrei fyllilega sannfærandi. Þegar við lítum í spegil setur ævinlega að okkur furðu. „Er þessi hroðalega mynd virkilega mín eigin?” spyrjum við. „Það getur ekki verið!” Þetta getuleysi að einangra sig frá sjálf- um sér er banvænt. Og þegar ég borfði á mína eigin jarðarför voru tilfinningar mínar alveg eins og okkar sameiginlegu tilfinningar frammi fyrir spegli — nema tíu sinnum verri. Ég ímynda mér að innra með okkur ölium leynist einhver sem mótmælir því af öli- uiri kröftum, hafnar hverri tilraun til að sannfæra hann um að mynd- in sem hann sér fyrir sér sé hann sjálfur, hvorki meira né minna. I’að er alveg sama hvað honum eru sýndir margir speglar, sama hvað gallalaus spegilmyndin er — fanginn innra með þér baðar út höndunum við þessa. sýn: ..Ertu alveg frávita? Dettur þér í liug að þetta sé ég?” ..Nú hver skyldi það vera ann- ar?” ,,Nei, nei nei! Það er ekki ég! Þetta er ckki ég!” emjar hann, og lætur aldrei undan hvað sem taut- ar og raular Það eru bara ungar og laglegar konur sem geta setið óttalausar og dá'ðst að sjálfum sér klukku- tímum saman. Þetta kemur bæði til af því að þær eru ekki vel til þess fallnar að hugsa, svo sjá þær sig ekki með sínum eigin augum lieldur sjónum vina sinna og aðdá- enda. Venjulegt eðlisgreint fólk þolir hinsvegar spegla mjög illa. Sannleikurinn er sá að sþeglar eru eins og dauðinn, andstæðir eðli okkar og blása okkur í brjóst sama ótta, tortryggni og forvitni. Við getum tæpast fengið af okk- ur að trúa því að venjulegur gler- bútur, smurður einhverjum sora, sé fær um áð líkja trúverðulega eftir sjálfum okkur, birta öll okkar hyldýpi, og því tökum við til að rausa og ygla okkur eins og tii að láta í ljós tortryggni okkar við myndihhi sem þrjózkást víð frammi •fyrir okkur. „Svéi þér,” segjum við. „Hypjaðu þig! Snaut- aðu burt! Út, út!” Hræðilegast er áð þvert ofan í heilbi’igða skynsemi tekur myndin til að láta á sömu leið og við sjálf, yglir sig, slær til okkar, muldrar fyrir munni sér: „Hypjaðu þig, helvítis beinasninn þinn!” Og síðan veit maður ekki lengur hverjum maður á að trúa, mynd- inni eða sjálfum sér Maður yglir sig eins og bjáni, hugsar um heims málin, vefst í vafa þar til maður er loks orðinn viti sínu fjær og forðar sér burt með það eitt til huggunar sér, að þá hljóti myndin einnig að hverfa úr speglinum; framlíf mannsins. er óleyst gáta eftir sem áður Reynið bara að sitja við spegil einn tíma eða tvo. Þá sjáið þið sjálf hvað ég meina! Samt tók ég út enn rneiri efa- semdir. Sem ég hafði staðið hugsandi við spegilinn eina mínútu eða tvær tóku að birtast mér myndir þeirra sem áður. höfðu búið hér og einnig horft á sjálfa sig í spegli. Míi? eigin mynd, sú sem ég hafði alltaf þekkt og gat sannprófað með sam- anburði við ótal ljósmyndir, hrakt- ist út i horn fyrir þessum að- komugestum; þar tók hún til að ygla sig og afskræma, rang- hvolfdi augunum hnussandi og frussandi, sápaði sig undir rakstur, bíés út kinnarnar, kleip sig og kreisti graftrarbólur, þó ég aðhefð- ist sjálfur ekkert þessu líkt, héldur reyndi af fremsta megni að gæta viðeigandi stillingar og alvöru. ég varð að gæta þess vel að andlit mitt tæki ekki að líkja eftir ímynd sinrxi í speglinum eins og vandi þess var. Ef ég tæki að eigna mér þessar l'ramandi grettur gengi ég fyrr en varði af göflunum, glataði minni eigin sjálfsveru. Því gerði ég mig harðan eins og grjót í hvert skipti sem ég kom að speglinum. Ekki veit ég hvert þessar til- raunir hefðu leitt mig ef ég hefði ekki séð sjón sem opinberaði mér hvílíkt hættuspil það er að leika með minningarmyndir eins og þær sem sóttu nú að mér margar í senn og ógnuðu allar tilvist minni, Þetta var smávaxinn þeldökkur maður, gamaíl og korpinn líkt og leðurblaka með felldum vtfengjum. Hann var að bera sig að spegla sig í kristalsmola sem klauf mynd iians í marga hluta — eins og hann væri ekki sjáfur nógu ofursmár! En nú sá ég höfuð hans í nærmynd, sköllótt og skarpholda með strengdri, dökkbrúnni liúð, og hold skörp illúðleg ásjóna hans horfði svo hvasst við mér að allt í einu skildist mér að hann væri þarna sjálfur og gæti séð mig. Já, ég sá hann, og hann mig; við stóðum stjarfir af undrun og ótta. Hann hafði allt í einu orðið þess áskynja að ég horfði á hann, og þetta kom honum engu minna á óvart en mér sjálfum. „Guð minn góður! Hef ég þá verið svona! Þessi hugs- un fló örsnöggt um huga minn, og brennandi minning órafjarlægrar fortíðar snart við votu, köldu enni mínu...... Ég stóð inni á miðri eyðimörk með kristal í hendinni. Hvernig. verð ég ó mig kominn í minni 75tu hpldtekju? Ætti ég að spyrja? Það má ekki! Ég spyr samt. Enginn mun komast að því. Og ég sé sjáífan mig, fínlegt, greindarlegt andlit með leðurkenndri húð...... En bvað er nú þetta? Hver er þetta, hvítur og slímaður og bað- aður svita? Rétt eins og snákur! Hvjlíkur ófögnuður! Hræ í tötrum ALÞÝÐUBLAÐIB - SUNNUDAGSBLAÐ 305

x

Sunnudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.