Sunnudagsblaðið - 15.05.1966, Síða 20

Sunnudagsblaðið - 15.05.1966, Síða 20
ÞaS er snemma vors 1940. Mað ur kcmur akandi inn í lítið landa mæraþorp í Sviss og stanzar.Hann gengur inn í hús, þar sem hann kemst í síma. Þegar hann hefur hringt, segir hann: — Qn hér. Má ég tala við Waibel höfuðs- mann. . . Eruð það þér höfuðsmað ur? Þetta er Qn. Ég var að koma yfir landamærin, og ég held strax áfram tii Ziirich. Getið þér kom ið þangað strax? Já, þessu liggur Maðurinn, sem kallaði sig Qn, cr dauðuppgefinn. Hann hcfur ek á. Kærar þakkir. Sjáumst aftur. . ið bjl sínum viðstöðulítið í tvo daga síðan hann lagði af stað frá Bei’lín. En hann má engan tíma missa og heldur óðara áfram til ZUrich eftir símtalið. Hann þai-f mætur farangur, sem hann hefur meðíei'ðis, þótt hann sé ckki s.ýni að koma farangri sínum af sér sem allra fyrst, og það cr dýr legur. Það eru upplýsingar, leyni legar upplýsingar. Hann hefur þó ckkert skrifað hjá sér, því að það væri allt of mikil áhætta, held ur hefur hann orðið að leggja allt á minnið, og þess vegna þarf hann að koma vitneskju siuni til skila sem alíra fyrst, meðan enn er öruggt, að nöfn, tölur og dagsetn- ingar hafi ekki skolazt til í minn inu. Að þessu sinni.er Qn með mik il tíðindi, leynilegar áætlanir yf irherstjórnarinnar þýzku. Hann er meðj áætlanir um innrásina í Dan möi-k, Noreg, Holland og Belgíu — ráðgerðar aðferðir við töku lánd anna og dagsetningu aðgerðanna — 9. apríl og 10. maí. Qn er ekki í neinum vafa um, að vitneskja hans er rétt. Sami aðili hafði áð ur skýrt honum fyrir fram frá inrtrás Þjóðverjá í Tékkóslóvakíu og Pólland. . SVISSNESKA LEYNI- ÞJÓNUSTAN. Ári eftir að síðari heimsstyrj öldin hófst, sagði Hermann Gör ing marskálkur eitt sinn í bræði: — í Evrópu eru ekki til nema tvær góðar njósnastofnanir. Við eigum sem betur fer aðra, hina á þetta ósvífna smáríki, Sviss. Þegar lengra var liðið á ófrið inn og farið að halla undan fæti fyrir Þjóðverjum vék Göring aft ur að sama efninu í viðtali við háttsettan þýzkan cmbættismann. Hann sagði: — Það er mér full komin ráðgáta, hvernig hinar leyni legustu upplýsingar komast í sí fellu til Sviss, og það er ekki hvað minnst óhugnanlegt, hve fljótt þær berast þangað. . . í nýútkominni svissneskri bók: QN WUSSTE BESCHEID ÍQn vissi það), er gefið svar við þess ari ráðgátu, scm olli Göring hvað mestum áhyggjum. Bókin er eftir blaðamann að nafni Kurt Emmen egger, og þar er gerð Ijós gi'ein fyrir stöðu Sviss á styrjaldarárun um, og þar kemur fram, hvers vegna Sviss hafði betri vitneskju um það, sem var að gerast í Þýzkalandi, en önnur Evrópuríki. Leyhiþjónusta Svisslendinga var ekki fjölmenn, en hún náði undra verðum árangri. Vorið 1938 unnu aðeins 3 sérfræðingar hjá levni þjónustunni, sem var kölluð Rigi um haustið vai' þeim fjölgað í 5, og þcgar Sviss hervæddist í stríðs byrjun urðu þeir 10. Síðan fjölg aði leyniþjónustumönnunum, eft ir því sem hættan á innrás Þjóð verja fór vaxandi, og þeir urðu flestir 120, en síðustu ár styrj aldarinnar fækkaði þeim aftur. Árangur lsvic,'snesk|(\ leyhijþjón ústúnnar stóð'í öífugu hlutfalli við mannfjöldann, sem starfaði við hana. Og það stafaði auðvitað af því, að þar var valinn maður í Iiverju rúmi, menn eins og Qn sem sagt var frá hér að framan. HVER VAR QN? Qn var einnig nefndur Múller, en hinu raunverulega nafni hans er ennþá haldið leyndu. Þegar styrjöldin hófst hafði hann um árabil gegnt ábyrgðarst^rfi við iðnfyrirtæki í Berlín. í stríðsbvr’ un hvarf hann heim til Sviss og gekk í svissneska herinn, en her þjónustu gegndi hann ekki nema fáeinar vikur. Þá kallaði yfirmað ur svissnesku leyniþjónustunnar, Waibel höfuðsmaður, hann á sinn fund, og bað hann að fara aftur til Berlfnar og halda áfram sínu fyrra starfi og þó fyrst og fremst að halda áfram þeirri upp lýsingaöflun, sem hann halði hafið í smáum stil fyrir stríðið:. „Sam bönd yðar í Beriín hafa langtum meirí þýðingu fyrir okkur en hern aðarstöi-f yðar.“ sagði Waibel, og það átti eftir að koma vel á dag inn, að þar hitti hann naglann á höfuðið. Múller átti mai'ga kunningja í Bei'lín, bæði áberandi menn í við skiptalífinu, herforingja og félaga í nazistaflokknum. Hann lók sér nú fyrir hendur að afla leyni legra upplýsinga hjá þessum mön um. Oft tókst honum að komast að hinum ótrúlegustu hlutum yf ir kaffibolla ,en eftir því sem longra leið á sljyrjöldina varði kaffi torgætari munaðarvara í Þýzkalandi. Svisslendingar sáu hins vegar til þess, að Múller skorti aldrei þann eðla drykk. Mikið af þeim uppíýsingum, sem Múller aflaði sér, var komið frá háttsettum herforingjum og flokks leiðtogum, en ýmislegt veiddi hann 308 SUNNUDAGSBLAÐ - ALPYÐUBLABIÐ

x

Sunnudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.