Sunnudagsblaðið - 29.05.1966, Page 4
’ •./ ■ . ■•••
Myndin hér til
lilið'ar er eftir liol-
lenzka málarann
Pieter de Hooch.
Þcssa mynd tók
van Meegeren til
fyrirmyndar að
einni af fölsumun
sínnm. Árangurinn
sést á myndinnl
hér á móti
áhuga á, að kaupa hana sem slíka.
van Meegeren sagði a0 það staf-
aði auðvitað af því að málverka-
kaupendur hefðu engin áhuga á
listgildi mynda, heldur tækju þeir
eingöngu mark á þeim stimpli, sem
þeir gætu sett á myndirnar.
Ýmislegt varð til þess að stað-
festa þessa skoðun van Meegerens.
Eitt sinn dró hann í flýti upp riss-
mynd af dádýri í eigu Júlíönu
prinsessu. Hann áleit að þessi
mynd gæti orðið góð söluvara,
svo að hann bauð nokkrum lista-
verkasölum hana til kaups. Eng-
inn sýndi myndinni nokkurn á-
huga — þar til hann ljóstraði því
upp að dádýrið væri í eigu kon-
ungsfjölskyldunnar. Þá varð mynd-
in allt í einu skemmtilegt og nær-
færnislegt listaverk.
Er tímar liðu fram, fór van Mee-
geren að ganga nokkru betur. —
Hann varð talsvert eftirsóttur
portrettmálari, en listdómarar gáfu
honum liins vegar ekki háa eink-
unn. Þeir töldu hann ekki vera
annað en mjög færan handverks-
mann, sem skorti listræna innlifun.
Þessa dóma tók van Meegeren sér
mjög nærri og í huga hans tóku
að fæðast ráðagerðir um að fletta
ofan af listdómurunum og ná sér
niðri á þeim.
Til ársins 1932 hélt van Mee-
geren áfram að mála^ í eigin nafni,
aðallega portrett eftir pöntun. —
Hann hafði skilið við konu sína
allmörgum árum áður, og kvænzt
aítur, og nú fluttist hann skyndi-
lega frá Hollandi til Roquebrune í
Suður-Frakklandi, en þar keypti
hann sér hús, er hann settist að
í. Hann var þá 43 ára að aldri,
og að fullu undir það búinn að
mála þær myndir, sem áttu eftir
að afla honum heimsfrægðar, þótt
sú frægð væri dálítið vafasöm.
Enn liðu þó full fjögur ár, þar til
fyrstu fölsuðu myndirnar komu
fram á markaðinum.
van Meegeren hóf falsanir sín-
ar með því að kaupa ekta sautj-
ándu aldar málverk, sem hann
fékk ódýrt í listaverkabúð í Am-
sterdam. Næst lá fyrir að ákveða
hvaða liti skyldi nota í stað olíu-
lita, og síðan varð að ná eldri
myndihni af striganum, til þess að
unnt yrði að mála þá fölsuðu á
hann. van Meegeren gerði marg-
víslegar tilraunir með þetta, og
oft datt hann niður á snjallar
316 SUNNUDAGSRLAÐ - ALÞÝÐUBLADID