Sunnudagsblaðið - 29.05.1966, Page 5
Þessa mynd mál
aði van Meegeren
í stíl við myndina
á móti. Hann stæl
ir fyrirmyndina
ekki út í æsar,
heldur sækir
sumt í aðrar mynd
ir eftir de Hooch,
en skyldleikinn
leynir sér þó ekki.
lausnir. Hvitan lit, sem var í
klæði Lasarusar á frummyndinni
og hann gat ckki náð burt, notaði
liann áfram sem hluta af borðdúk
í i'ölsuðu myndinni.
Allur þessi undirbúningur og til-
raunir tóku fjögur ár. Árið 1936
skrapp hann til Berlínar ásamt
konu sinni og horfði á Olynlpíu-
píuleikana þar, síðan tók hann til
óspilltra málanna við sjálfa mynd-
ina. Henni lauk hann á sex mán-
uðum bak við luktar dyr í húsi
sínu, og í vinnustofunni kom hann
fyrir speglum, svo að hann gat
notað sjálfan sig sem fyrirmynd.
•Hins vegar vantaði hann fyrirmynd
að andliti Krists, en þá var hann
svo heppinn að ítalskur bcininga
maður rakst að húsinu, og þessi
beiningamaður hafði einmitt and-
Ht, eins og van Meegeren vantaði.
X þrjá daga sat hann fyrir í vinnu-
stofu málarans og fékk fyrir það
mat og fatnað.
Vorið 1937 var myndinni lokið,
cn þá var eftjr að koma' henni á
framfæri. van Meegeren hafði
samband við lögfræðing í París og
tókst að sannfæra liann um, að
myndin væri úr eigu aðalsfjöl-
skyldu frá Suður-Frakklandi, sem
hefði lent í efnahagserfiðleikum,
en vildi ekki láta nafn síns getið.
Sjálfur kvaðst van Meegeren/tkki
vilja skipta beint við listfræðing-
ana, sakir þess hve óvinsæll hann
væri meðal þeirra. Lögfræðingur-
inn tók að sér að selja málverk-
ið, og þegar það var borið undir
listfræðinginn dr. Bredius, lýsti
liann þaö undir cins ekta. Málverk-
ið var síðan selt Boymans Usta-
safninu i Rotterdam.
Listfræðingar og almenningur
áttu naumast nógu sterk orð til að
lýsa þessu „nýja meistaraverki
eftir Vermeer,” en van Meegren
notaði féð, sem honum hafði á-
skotnazt til að kaupa sér hús í
Nice og skreyta það listmunum.
Konu sinni og vinum sagði hann,
að liann hefði unnið í happdrætti.
En þessi dýrð stóð skammt. í ág-
úst 1939 flúði hann ásamt konu
sinni tómhentur til Hollands til
þess að eiga ekki á hættu að lok-
ast inni í Frakklandi, ef til styrj-
aldar kæmi.
Ætlvin van Meegerens hafði
verið að mála aðeins þessa einu
mynd í nafni Vermeers og ljóstra
síöan upp um svikin til að klekkja
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - SUNNUDAGSBLAÐ 317