Sunnudagsblaðið - 29.05.1966, Side 14
Sem betur fór voru hendurnar ekki
bundnar aftur fyrir bak. Hann fór nú
upp á hnén, náði taki taki á steminum
sem bundinn var við hann, og velti hon
um upp að bringunni á sér.
Hann reyndi nú, varlegá, að standa á
fætur með steminn í fanginu og það
tókst eftir nokkrar tiíraunir.
Nú l'aumaðist hann eins hljóðlega og
hann gat með þessa þungu byrði út úr
vagninum og stefndi síðan beint af aug-
um út á heiðina, út í óvissuna. Steinninn
tafði hann ólýsanlega mikið, hann varð
undir eins yfir sig þreyttur.
Þegar hann var búinn að staulast á-’
fram um mela og móa, upp og niður
hæðir alla nóttina, þá gafst hann skyndi
lega upp, hneig niður á milli þúfna og
steinstofnaði.
Hann vaknaði við það, að eitthvað
blautt kom við hendurnar á honum.
Honum varð mjög hverft við, þegar
hann sá. að stór hundur gnæfði yfir
honum.
Samt varð hann rólegri þegar hann
fann, að hundurinn sleikti vinalega á
honum hendurnar.
Það. var kominn morgunn og allt orð-
ið bjart.
Allt í einu mundi Kalli eftir vandræð-
um sínum, hentist upp og leit fljótt í
kring um sig.
Hvergi kom hann auga á óvini sina, en
hann vissi að þeir myndu geta komið á
hverju augnabliki.
Hundurinn sleikti stöðugt hendur
Kalla, svo að hann fékk allt í einu þá
hugmynd, að hundurinn gæti ef til vill
nagað böndin í sundur.
Eftir nokkrar tilraunir virtist hundur-
inn skilja drenginn og tók nú til að
naga með sterku tönnunum sínum.
Kalli kvatti vin sinn óspart og ekki
leið á löngu þar til böndin brustu og
Kalli var laus við stóra steininn.
Nú þaut hundurinn af stað, og Kalli
elti hann, án þess að hika.
’ffann vissi. að nú var um að ?era að
knrnast til fótks, svo, að Tatararnir
bvrðu ekki að taka hann, en þeir hlutu
að vera að leita að honum.
Kalli vissi líka, að hundurinn átti heima
á einhverjum bæ og bjóst við, að hann
hlypi beint heim.
Þetta revndist rétt.
T-<nrror hoív höfðu hlfnmí?? svoh'tia stund,
Vr'T°u beir heim að fallegum bæ í stóru
tuni.
Við hliðina á bænum stóð lítil kirkja um
kringd mörgum trjám.
,.Hér hlýtur að búa prestur, hugsaði
Kalli og elti nú hundinn heim að dyrum.
Hrmdurinn þaut geltandi inn, en Kalli
settist á trönmina on beíð.
FRAHMALD.
Ráðning á myndagátu: „Hver vill kaupa Sólskin?
326 SUNNUDAGSBLAÐ - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
1