Sunnudagsblaðið - 29.05.1966, Blaðsíða 20

Sunnudagsblaðið - 29.05.1966, Blaðsíða 20
voru það þær sem verið liöfðu konur í fyrra lífi; ég skyldi hafa mig mína leið meðan undankomu væri enn auðið. Aðrar fjösuðu mest um allt það fé sem farið hafði til einskis. Enn önnur rödd sagði mér að veita viðnám. En ég gat ekki fundið út hver þetta væri. Var það Stefán Alexej- evitsj með allt sitt rembilæti? Eða Var það indíáninn sem drukkn- aði með höfuðleður milli tann- anna? Eða einhver óþekktur her- maður grafinn djúpt í mínum innra manni, innundir öllum heigl- unum og smáþjófunum? Elsku gamli óþekkti hermaður! Það var með þínum stuðningi, líkamlegum og siðferðilegum, að mér auðnað- ist að stúgga öllum þessum lýð frá mér: „Haldið ykur saman, bannscttu bjánar, cllegar ég hcngi ykkur á hæsta . gálga,” muldraði ég niilli tannanna. Og þeir kyrrðust smám- saman, hættu að dæsa og hvæsa svo að aftur mátti heyra hjóla- ' gnýinn, brakið og.brestina í vagn- inum sem kom í veg fyrir að heyrð- ist: stígvélatraðkið og fjarlægt muldur mannanna á leið til okkar. i leit að mér. Ég sagði við Natösju að við yr6- um að komast út úr lestinni. Hún spurði ekki hvernig slikt væri hægt, við ókum á fullri ferð cftir snæviþakinni sléttunni. Það eina scm hún vildi vita var hvað við ættum að gera við töskurnar okk- ar. Ég greip í hönd henni og dró hana mcð mér eftir ganginum. Sem betur fór var enginn við vagndyrnar. Og alveg eins og ég hafði séð fyrir voru þær ekki læstar þó það sé vanalega gert til að hindra fólk að lioppa út og limlesta sig. ísköld vindstroka stóð beint framan í okkur. ..Stökktu!” hrópaði ég til Nat- ösju til að yfirgnæfa vagnskröit- ið. „Þú meiðir þig ekki í snjó- • sköflunum! Það er alveg satt! Stökktu strax, segi ég!” En hún þorði ekki að hlaupa út úr lestinni á slíkum hraða, vissi ekki að ekkcrt var að óttast, að hún var óhult fyrir öllum háska og gat stokkið það sem .hana lysti án þess að eiga neitt á hættu. Ég hcíði stokkið út á undan til að visa henni veginn - hefði ég ekki óttazt að hún mundi halda áfram án mín. Og þá hefði ég engin ráð að hjálpa henni. Fjórir einkennisklæddir nienn voru nú komnir inn í vagninn okkar og nálguðust okkur eftir ganginum. Ég tók að stjaka við Natösju og berja á fingurna á henni, sagði henni sífellt að stökkva, stökkva nú! En hún hlust- aði ekki á mig, righélt sér fastri og stagaðist á því að ég mætti ekki fieygja sér út, hún væri öldungis skilin að skiptum við Boris. Samt hefði mér kannski tekizt að koma henni út og stökkva sjálf- ur á eftir hefðu ekki þessir útsend- arar Borisar tekið undir sig stökk og umkringt okkur á svipstundu. Þeir létu dynja á okkur skipanir og spurningar: hver vorum við, hvað að gera hér, hvers vegna vbru dyrnar opnar? Ég sagði að við hefðum farið fram til að fá okkur frískt loft. Konunni minni liði ekki vcl. Natasja hríðskalf. Hún gat ekki losað sig við þá tiifinningu að ég hefði ætlað mér að hrinda hcnni undir æðandi lestina. Engu að síður samsinnti hún því að við hefðum komið hingað fram til að anda að okkur fersku lofti; enn hlaut. ég að dást að innræti henn- ar. En nú var allt um seinan. Þcir höfðú borið kennsl á mig. „Þér eruð tekinn fastur! Komið nú með mér,”, sagði maðurinn sem nefndur var Sysojev. Hann stakk skilrikjum mínum í brjóstvasann og rétti mér eitthvað plagg sem ég hirti ekki einu sinni um að lesa. Mér fannst að allt þetta hefði gerzt einhverntíma áður. Jafnvel húfa Sysojevs, glæst loðfóðruð for- ingjahúía, virtist mér kunnugleg. Ég hafði aldrei séð Sysojev fyrr á ævinni né hvítu húfuna hans; ég vissi það eitt að svona hlaut þetta að ganga fyrir sig; ég hafði vitað frá upphafi að til svona mundi þetta fara. Vefst var að þeir tóku Natjösu ekki fasla líka. Þeir sögðu að hún gæti farið hvert á land sem hcnni sýndist. Hún kyaðst mundu snúa aftur til Moskva og brast í grát — í þriðja eða fjórða skiptið þcnnan sarna morgun. „Þú mátt ekki halda að ég fari aítur til Borisar,” sagði hún við mig. „Ég skal bíða eftir þér. Þetta hljóta að vera mistök, þeir sleppa þér bráðum aftur....” Við stigum af lestinni á næstu stöð. Það var þurrt veður með frosti. Helmingurinn af farþegun- um kom askvaðandi að sjá hver hefði verið tekinn; bóndakona í gæruúlpunni krossaði sig, er hún sá mig eins og ég væri liðið lík. Átta einkennisbúnir menn slógu hring um mig, stoltir og virðuleg- ir, rétt eins og ég væri mikilsmet- inn gestur frá útlöndum. En að minnsta kosti fjórir þeirra héldu fast um byssuskeftin í frakkavös- um sínum. „Þér megið kveðja vinkonu yff- ar,” sagði Sysojev. „En þér, frú, ættuð að vera um kyrrt á stöð- inni. Moskvulestin kemur ekki fyrr en í kvöld.” Ég tók utan um Natösju og sagði við hana hljóðlega en greinilega hið síðasta sem ég gat sagt henni þennan örlagamorgun: „Natasja,” sagði ég, „hvað sem þér kann að finnast um mig, þó þú haldir að ég sé brjálaður — mundu samt eitt: haltu þig frá Gnezdnikovski-götu þegar þú kem- ur aftur til Moskvu. Þú þekkir götuna hún er rétt hjá Púskín- torgi og Gorkí-stræti. Farðu þang- að fyrir enga muni og gættu þess sórstaklega á sunnudaginn, þann 19da. Mundu: 19da janúar, eftir fjóra daga. Klukkan tíu um morg- uninn! Vertu heima! Ef þú skyldir endilega þurfa að fara til Boris- ar.... vertu ekki að hrista höi'uð- ið! Ég veit það vel! Sá 19di er sunnudagur.og það getur vel ver- ið að þig langi til að finna Boris. Hvað um það? Skítt með það! Mér er alveg sama! Farðu bara ekki um Gnezdnikovskí. Það er líka krókur fyrir þig svo þú yrðir alltaf sein . . þú ert alltaf hjá honum milli tíu og hálfellefu. Það er í lagi. Vertu bara til há- degis ef þú vilt! Þið hafið nóg að gera svo timinn líður fljótt. Það skiptir engu máli! Mundu bara eitt: Gnezdnikovskí.......... þann 19da. . . . klukkan tíu um morg- uninn.... En ég hafði ekki fyrr sleppt orð inu cn mér varð Ijóst að einmitt þctta hefði ég ekki átt að segja. Ef ég liefði ckki bannað henni aö 332 SUNNUDAOSLILAÍ) - ALÞÝDUBLADIÐ

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.