Alþýðublaðið - 05.06.1976, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 05.06.1976, Blaðsíða 14
II 14 FRÁ MORGNI... Laugardagur 5. júní 1976. iJSjfö ' UTBOÐ Hveragerðishreppur óskar eftir tilboðum i undirbyggingu gatna og lagningu holræsa. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu; Hveragerðishrepps og Verkfræðistofunni Fjarhitun h.f. Álftamýri 9, Reykjavik, gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Hvera- gerðishrepps þriðjudaginn 22. júni kl. 14. TRÉSMIÐJA BJÖRNS ÓLAFSSONAR REYKJAVÍKURVEGI 68 - SÍMI 51975 HAFN ARFIRÐI HÚSBYGGJENDUR! Munið hinar vinsælu TI- TU og Slottlistaþétting- ar á öllum okkar hurð- um og gluggum. * Ekki er ráð nema i tíma sé tekið. Pantið timanlega. Aukin hagræðing skapar lægra verð. Leitið tilboða. Fjnl SKIP4UTGERB RIKISIfiS m/s Esja fer frá Reykjavik fimmtudaginn 10. þ.m. vestur um land i hringferð. Vörumót- taka: þriðjudag og miðvikudag til Vest- fjarðahafna, Norður- fjarðar, Siglufjarðar, Ólafsfjarðar, Akur- eyrar, Húsavikur, Þórshafnar og Vopnafjarðar. VIPPU - BltSKORSHURÐlK Lagerstærðir miðað við jnúrop: tlæði210 sm x breidd: 240 sm ‘2*Q - x - 270 sm ' Aðrar stárðir. smiðaðar eflir beiðni t • ' £•' i GLUÍflAS MIÐJAN Síðumúla 20. slmi 38220 _J. t Minningarathöfn um bróður okkar Guðna óiafsson apótekara fer fram I Dómkirkjunni þriðjudaginn 8. júnl kl. 13.30. Jarðsett verður frá Eyrarbakkakirkju kl. 16. Bfll verður við kirkjuna fyrir þá sem vilja fara austur. Magnea ólafsdóttir Sigriður óiafsdóttir Árni óiafsson Gfsli óiafsson Sigurjón ólafsson Islenzkubættir Albýðublaðsins eftir Guðna Kolbeinsson Þættinum hefur borist gott og efnismikið bréf frá Sigurjóni Valdimarssyni. Mun ég fjalla um nokkur þeirra atriða sem hann gerir að umtalsefni. Hann segir m.a.: „23. september s.l. stóð i Visi: „sem kom oliuneytendum til góða”. Sama dag var I útvarpi talaö um oliuneyslu kinverja. Fram að þessu hefi ég haldið að fólk legði sér ekki oliu til muns. (Að visu heyröi ég eitt sinn um mann að hann tæki inn eina matskeiö af steinoliu á dag sér til heilsubótar!) Er ekki réttara að tala um oliu notkun eins og gert hefur veriðalltfram undir þetta? Mér finnst að þetta orð neysla sé eitt af þessum tiskuorðum, sem hver tekur eftir öðrum, sbr. menningarneysla. Ég held að svona lagað stefni að málfá- tækt.” Sögnin neyta merkir að njóta einhvers, eta eða drekka: neyta matar, neyta vins. En hún merkir einnig: að nota, hagnýta sér eða beita: neyta aflsmunar, neyta allrar orku. Neytenda- samtökin láta sig ekki einungis varða það sem menn leggja sér til munns heldur einnig það sem menn nota á annan hátt. Nafn- orðið neysla merkir ekki aðeins það að njóta einhvers drykkjar eða fæðu heldur jafnframt það að nota eitthvað. Hins vegar munu orðhagir menn kjósa að brúka fremur nafnorðið notkun um það að nota. Það er rétt hjá bréfritara að neysla er eitt þeirra orða sem hvað mestum vinsældum fagna um þessar mundir: Okkur er tjáð að heildarneysla neyslu- þjóðfélagsins vaxiárlega, nema þá menningarneyslan. Mér finnst, eins og Sigurjóni, menn- ingarneysla heldur óskemmti- legt orð en ekki treystist ég til að benda á annað skárra. Og bréfið heldur áfram: „23. september. Dagblaðið: billinn „hafnaði úti i gjótu”. Um þetta orð hafna má segja það sama og um neysluna, orðiö tröllrlöur hverju dagblaði og þá lætur fréttastofa útvarpsins ekki sitt eftir liggja. Sem dæmi má nefna að fyrir nokkru var sagt i útvarpsfréttum frá bil sem steyptist fram af hengiflugi i Alpafjöllum að hann hefði hafnað i á 25 metrum neðar. Var ekki fréttin nógu sorgleg (þaö fórst fjöldi manns) þótt ekki væri verið að segja frá slysinu i æsifréttastil, m.a. með þvi að nota orðið hafnaðisem eins kon- ar áhersluorð! 1 iþróttafréttum má heyra i útvarpi og lesa i blöðum að þrá- stagast er á setningum sem þessum: Boltinn hafnaði i net- inu: boltinn hafnaði I körfunni. Þetta þykir mér skemma i- þróttafréttirnar, og jafnvel gera þær stundum leiðinlegar.” Orðið hafna i þessari merk- ingu mun ekki gamalt i málinu. Ekki virðist mér nein ástæða til þess að amast við þvi i islenzkri tungu en ofnotkun einstakra orða er ævinlega mállýti. Enn segir Sigurjón. „Þaö þriðja sem ég vii nefna er orðið væntanlega, sem er eitt þeirra oröa sem mér finnst of- notað, og stundum notað i rangri merkingu. Ég hefi álitið að orðið væri dregið af von. Maður vonar að góðar óskir rætist.” Siðan tiundar hann nokkur dæmi um að væntanlega sé not- að þar sem engan veginn sé von á góðu. Þarna er ég ekki sammála bréfritara. Ég hygg að sögnin að væntasé i mæltu máli notuð i merkingunni búast við:án tillits til hvers eðlis það er sem búist er við. Ekki treysti ég mér tii að gagnrýna málfar eins og t.a.m. Hann vænti sér ills eins af þess- um nýju húsbændum sinum. — Og sé ekkert athugavert við að nota sögnina vænta i sambönd- um 'sem þessum, gegnir vænt- anlega sama máli um væntan- lega. Það sem eftir er af bréfi Sig- urjóns Valdimarssonar verður að biða næsta þáttar. 3. þáttur: „sem kom olíuneyt- endum til góða” EPLASTRIÐIÐ: OVENJU- LEG MÁNUDAGSMYND Það er óhætt að segja, að sú mynd, sem Háskólabió sýnir næstu tvo mánudaga er gerólik þeim, sem bióiö hefur haf t upp á, að bjóöa á undanförnum dögum/ Mynd þessi er sænsk, „Epla- striöið”, og er gerð undir stjórn Andersons, sem hefur einnig samið handritið i samvinnu við Hans Alfredson, en tónlistin er eftir Evert Taube. Efnið er i stuttu máli, að svissneskur auömaður -- Jean Volkswagner — ætlar að breyta sænsku þorpi og sveitinni um- hverfis það i miðstöö fyrir skemmtiferðamenn. Sveitasæla og náttúrufegurö skulu vikja fyrir skemmtistööum af öllu tagi auk risahótela og hver veit hvaö? Maöurinn ætlar aö kaupa „heila klabbiö” og reisa borg, sem á aö bera vott um ameriskt og þýzkt hugvit, enda skal hún heita „Deutschneyland”, þegar þar aö kemur. Volkswagner er búinn aö fá bæjafyfirvöld i lið meö sér, þeg- ar almenningur efnir til fundar undir eplatré og samþykkir að þessiáform skuli aldrei ná fram að ganga — og þannig hefst eplastriöið. Myndin hefur fengiö lof viöa um lönd, en þaö ætti aö nægja aö birta eftirfarandi ummæli úr New York Times: „Þaö er mikiö talaö um dræma og rénandi aösókn aö sænskum kvikmyndum. Næsta leikstjórakynslóðá eftir Ingmar Bergman virðist eiga erfitt meö að halda I áhorefendur. Alger andstæða þessa er heillandi mynd Hans Danielsson og Tage Anderson, „Epla- striöiö”, sem fyllir nú kvik- myndahús hvarvetna i Sviþjóö vegna hins sérkennilega sam- blands sins af gamansemi og beiskju. Myndin gerist i afskekktri sveit I Sviþjóö, þar sem landslag er fagurt og gamall kastali er meöal þess sem athygli vekur. Svissneskir hagsmunahópar hafa keypt staöinn og ætla aö breyta honum i eins konar Disneyland með hótelum og lendingarstöðum fyrir þyrlur. Heimamenn, sem leggjast gegn þessu, en njóta ekki stuðnings yfirvalds á staönum, leita á náöir fomra töfrakrafta. Systir garöyrkjumanns staðar- ins reynist vita lengra nefi sinu. Ósvikinn risi er kvaddur til hjálpar og tvær skógargyöjur taka einnig þátt i baráttunni. Dreki er unninn og baráttan kostuö af gulli þvi, sem hann hefur legið á. Þetta er frábær ádeilumynd. „Eplastriöiö” viröist hafa örvaö vissan ótta, sem gerthefur vart við sig i Sviþjóö að undanförnu við mögulegar afleiðingar af Efnahagsbandalaginu og „Eurodollarnum”— sem leikur lausum hala I áflunni — á nátt- uruna og þaö sem enn lifir af sveitamenningunni. Þetta ævin- týri, sem hefur vakið almenning af doðanum.” Aö endingu má svo geta þess, aö margt ágætra leikara fer meö hlutverk i myndinni, svo sem Max von Sydow, Monica Zetterlund, Birgitta Anderson, Sture Ericson, Per Grunden og Yvonne Lombard. ■■ KOSTABOÐ á kjarapöllum KJÖT & FISKUR Breiðholti Simi 74200 — 74201 DURA Síðumúla 23 /ími 04900 V Heimiliseldavélar, 6 litir - 5 gerðir Yfir 40 ára reynsla Rafha við Óðinstorg Simar 25322 og 10322 Birgir Thorberg málarameistari sími 11463 önnumst alla málningarvinnu — úti og inni — gerum upp gömul husgögn ■

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.