Alþýðublaðið - 05.06.1976, Page 16

Alþýðublaðið - 05.06.1976, Page 16
LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1976 Siglingaklúbburinn Ýmir: Ahugasamir en aðstaðan slæm 1 Kópavogi er starfræktur siglingaklúbbur, er nefnist Ýmir. Formaður hans er Svav- ar Egilsson. Við ræddum litil- lega við hann. Slæm aðstaða. Hann sagöi að klúbburinn hefi verið starfræktur á sjötta ár, og að félagsmenn væru um 90. Að- staðan hjá þeim, að sögn Svav- ars, er vægast sagt léleg. Þeir hafa i tvö ár reynt að fá lóð undir bátaskýli, en aldrei fengið nein svör. Þeir teldu sig reiðu- búna fjárhagslega, til að byggja sjálfir hjálparlaust, þar sem vinnan myndi að mestu leyti vera sjálfboðavinna og nóg væri um vinnufúsar hendur. En þar sem undirtektir bæjaryfir- valda eru svona dræmar, telja þeir sig neydda til þess að leita til borgaryfirvalda i Reykjavik og flytja starfsemi sina þangað, ef þeir fá ekki skýr svör fljót- lega. Borgaryfirvöldin i Reykjavik virðast hafa meiri skilning á málefnum siglingar- manna. Smíða sína báta sjalfir. Aðspurður um kostnaðarverð á seglbátum og útbúnaði, sagði Svavar það vera mjög breyti- legt eftir stærðum bátanna. Margir smiða báta sina sjálfir. Núna nýlega var sjósettur 25 feta bátur, sem ber tegundar- heitið QT, sem merkir quarter- tonn eða fjórðung úr tonni. Hann hefur verið i smiðum i næstum tvö ár og er efniskostnaður seunilega orðinn u.þ.b. 1200 þúsund kr. Verður mastrið sett á hann fljótlega og búiö er að gefa honum nafnið „Skýja- bore”. Skýjaborgin.smiðuð af eigendunum sjálfum, og er efniskostnaður sjálfsagt um 1.200.000. Við forvitnuðumst um bátinn, sem nýkominn var til Vest- mannaeyja eftir ferð yfir Atlanzhafiö frá Bretlandi. Svavar kannaðist mæta vel við hann, þar sem einn sæ- faranna er einmitt i Ými. Báturinn er 22 fet, af gerðinni Marconi. Báturinn er nýr, keyptur i Bretlandi á u.þ.b. 2 milljónir með öllum út- búnaðiÞeir félagar voru þá ný- lega lagðir af stað frá Eyjum, á- leiðis til Kópavogs. Svavar hafði ákveöið aö sigla skútu sinni, Sirri III. til móts við Marconi. Sagöist hann hafa nægilegt pláss fyrir blaðamann Alþýðu- blaðsins, og bauð undirrituðum með. Þar sem undirritaöur hafði aldrei áður komið um borð i seglbát, hikaði hann ofurlítið, en svo fór, að forvitnin varö hræðslunni yfirsterkari, og hófst þvi ferðin: Til móts við Marconi Sirri er 38 feta langur seglbát- ur með 25 hestafla hjálparvél. Er skútan öll hin glæsilegasta og afar rennileg. Sex vanir og fjórir landkrabbar. Um hálfáttaleytiö fórum viö út i skútuna og vorum við tiu talsins. Þar af voru fjórir, sem voru óvanir landkrabbar en sex vanir siglingarmenn. Það voru Svarar, kona hans Sirri (sem sennilega er Sirri I.), hjónin Ari og Olla, en þessi fjögur sigldu skútunni frá Bretlandi i fyrra ásamt tveimur öðrum. Einnig voru Binni og Finnur Torfi eitthvað gagnlegir, enda vanir siglingum. Landkrabbarnir fjórir komu einnig nokkuð við sögu, en ekki á jafn glæsilegan hátt. Komið sér fyrir. Eftir að hafa klöngrazt um borð, náð i öruggt hald við borð- stokkinn og spennt sig niður eft- ir getu, var undirritaður tilbú- inn til átakanna við Æ gi konung. Nú voru segl reist, stórseglið og fokka númer 2, og klukkan átta var lagt af stað i fimm vindstigum. Sigldum við nú hraðbyri út- voginn, framhjá baujum sigl- ingarmerkjum, sem undirritaö- ur ber litið skynbragð á. Fljót- lega komst hraðinn i 6 hnúta og jókst enn. Var þvistrax slökkt á hjálparvélinni, enda kvörtuðu hörðustu seglbátamennirnir undan hávaða og ólykt, sem af vélum væri. Hraðinn var kom- inn i 7 hnúta og vindurinn i 6 vindstig, en báturinn ruggaðist litiö og fór afar mjúklega i öld- urnar. Settur inn i sjómennsk- una. Sirri settist hjá mér og sagðí mér undan og ofan af þvi hvern- ig svona tæki yerkar. Eina sem ég vissi um seglskip, hafði ég lært af Onedin I sjónvarpinu, svo að ég vissi að þetta stóra, hvita, var segl. Hún benti mér á hraðamælinn, vindhraðamælinn og dýptarmælinn, sýndi mér muninn á fokku og stór seglinu. Ég vissi nú orðiö allmikiö um siglingar. Siðan varaði hún mig við, að láta mér ekki bregða, þó aö báturinn veltist talsvert á hliðina. Við þessar upplýsingar herti ég tökin á borðstokknum. Fer að æsast leikurinn. Rétt fyrir klukkan niu voru komin 8. vindstig og hraöinn Ljósm. ATA aldrei kallaður annað en vélbát- urinn. Nú er dólað að landi, veður er dottiö niöur, siglt með órifuðu stórsegli og fokku númer 1. Nú risa jafnvel þeir sem virtust dauðir, úr kojum sinum og fara út til að njóta siglingarinnar. Þeir landkrabbanna, sem harð- astir höfðu verið af sér, og veriö úti á þilfari allan timann, fóru nú undir þiljur til að hlýja sér. Þegar sjórinn þornaði, urðu menn stifir af saltinu og brakaði I, þegar menn hreyföu sig. Tók sjálf sjóveikipillu. Eftir að hafa þornaö, dreif maöur sig upp á þilfar og naut siðustu tima siglingarinnar. Þegar loks var komið inn á vog- inn, voru seglin felld og vélin gangsett. Ég verð að viður- kenna, að það var hálf leiöinleg lykt og óþægilegur hávaði af vélinni. Og ef mér býðst ein- hvern tima aftur tækifæri til að skreppa út á seglbát, þá þigg ég það örugglega. Það hjálpaði nefnilega upp á sálartetrið að heyra, að Sirri, sem hafði siglt á skútunni frá Bretlandi I fyrra, hafði sjálf laumaö upp i sig sjóveikipillu, áður en við lögðum af stað til móts við Marconi. ATA Skipstjórinn skyggnist eftir baujum, eða öðrum siglingarmerkjum. orðinn 9hnútar. Báturinn var nú tekinn að veltast og farinn að hallast. Nú fór að koma I ljós, hverjir voru landkrabbar og hverjir ekki. Niöri i káetunni var ein hinna fyrmefndu lögzt i koju og átti þá ósk heitasta, að bölvuð skútan brotnaði i spað. Annar landkrabbi var orðinn gráhvitur i framan og leit ekki út fyrir að eiga langt eftir. En á meðan á þessu stóö, söng Ari. Nú kunni sá maður við sig. Einnig fannst undirrituðum hann standa sig frábærlega vel, •það væri sko munur á mér og þessum landkröbbum. Bæði var ég algerlega laus við sjóveikina og svo fannst mér hallinn á skútunni, sem Sirri hafði varaö mig við, ekkert voðalegur. Þess vegna sleppti ég takinu á borð- stokknum og ætlaði að fara aö iðka hina göfugu ljósmyndaiðju. Þáhallaöist báturinn allt i einu og gaf yfir hann um leið, svo að ég veltist fyrst yfir að hinum borðstokknum og þar fékk ég háift Atlanzhafiö yfir mig. Ég flýtti mér niöur i káetu, til að þurrka af vélinni. Þegar þangaö kom, fannst mér hreyfingar bátsins breytast skyndilega og veröa hinar óþægilegustu. Ég fann innyflin verða ósammála um einföldustu hluti og vildu komast út til að útkljá málin. Myndavél eða ekki myndavél, ég þe'ytti henni sjóblautri frá mér og fór upp á þilfar i snar- hastí. Við vendum bátnum. Klukkan 21:30 fór landkrabbi númer þrjú aö ókyrrast með miklum látum, og ekkert sást til Marconi og þar sem veöur virt- ist vera að versna, var ákveðið að snúa við. Búið var að rifa stórseglið og siglt var meö stormfokku. 1 annarri til raun tókst að venda og var nú siglt heim á leið aftur, án þess að hafa mætt Marconi. Með rifað stórsegl og storm- fokku gekk siglingin ekki eins greiðlega. Landkrabbarnir, sem ekki voru vel klæddir, voru orðnir hundvotir og iskaldir, en að öðru leyti var heilsan góð. Sést til Marconi. UM ELLEFU LEYTIÐ SÉR Ari, gleraugnalaus og allslaus, Marconi. Hann er rétt i kjölfar okkar, búinn að fella öll segl og siglir með vélarafli. Þetta þótti seglbátamönnunum um borð lé- legt, þeir fundu strax lyktina og er nú viðbúiö, að báturinn veröi alþýóu blaöið Lesið: 1 norska blaöinu Fiskaren, að norskir sild- arseljendur telji horfur á sildarmarkaöi betri en oft- ast áður. Mikil eftirspurn sé eftir sild og verðiö hátt. — á kemur fram I blaðinu, að margir bátar hafi aö undanförnu veitt býsn af kolmunna og hafi Norð- menn mikinn áhuga á þess- um veiðum, og telji, að i þeim felist miklir mögu- leikar. Ur kolmunnanum búa þeir meðal annars til „marninga”. Heyrt: Aö margir Fram- sóknarmenn telji, að með ræðu sinni á aðalfundi SÍS hafi Erlendur Einarsson sett all-óþyrmilega ofan i við rikisstjórnina og gagn- rýnt harkalega efnahags- stefnu hennar. Ekki er vist, að allir séu jafnhrifnir af þessu framtaki Erlends. Lesið: I Samvinnunni: „Þegar fram liða stundir mun sam vinnumönnum leika hugur á að vita sem gleggst um upphaf sam- vinnustefnunnar hér á landi”. í framhaldi af þess- ari staðhæfingu, er birt grein eftir Jónas Jónsson frá Hriflu, sem hann skrif- aði árið 1918. Lesið: í Alþýðubiaðinu i gær: ,,MB. Astþór RE-395 aflahæstur i Reykjavik, — en fyrirtæki i sjávarútvegi eiga samt sem áður i erfið- leikum”. Þetta var fyrir- sögn, sem hafði ruglast og verður að fáránlegri setn- ingu. Lesið: I Þjóðviljanum i gær: „1 endaðan april var keyptur 200 tonna bátur, Hafrún frá Bolungarvik, og hefur hann verið á útilegu á linu og lagt upp i Reykjavík og Bolungarvik og fengið um 80 tonn. Rækjuveiðar voru stundaðar... Frekar tregt var og rækjan smá. Veiðarnar hættu um miðjan april og hefur hluti rækjubátanna farið á skak og lagt upp annarsstaðar.” Svo kemur rúsinan i pylsu- endanum: „Af þessu má sjá, að Bildudalur er nú heldur eð rétta úr kútn- um.” HEYRT: Að á „kostaboöi” hollenzkra um ylræktarver séu óteljandi agnúar, og ekki á færi nema reyndustu samningamanna að binda svo um hnútana að við höf- um einhvern hagnað af uppátækinu, eða a.m.k. áhættan sé ekki okkar. Hollendingar eru gamalt nýlenduveldi og stórfyrir- tæki þeirra hafa árhundr- aða reynslu i að „plata sveitamanninn”. HEYRT: Að ásókn i sólar- landaferðir i sumar aukist i sifellu, og sé nú hvergi hik- að við að slá vixla fyrir fari og gjaldeyri, enda búist margir við þvi að þegar efnahagsráðstafanir haustsins lita dagsins ljós séþegarfarið „siðasta skip suður.”

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.