24 stundir - 27.06.2008, Side 8

24 stundir - 27.06.2008, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2008 24stundir Pantaðu núna á www.oryggi.is T B W A \R E Y K JA V ÍK \ S ÍA Hver vaktar þitt heimili? Prófaðu Heimaöryggi í sumar – án endurgjalds • Við setjum upp kerfi heima hjá þér og þú prófar í 2 mánuði, engin krafa er gerð um framhaldsviðskipti. • Heimaöryggi felur í sér innbrotsvörn, útkallsþjónustu, brunaviðvörun og vatnsviðvörun. • Tilboðið gildir til 15. ágúst 2008, gríptu tækifærið núna. • Í boði á þeim þéttbýlisstöðum landsins þar sem Öryggismiðstöðin hefur þjónustuaðila og sinnir útkallsþjónustu. Hringdu í 570 2400 og fáðu öryggi í áskrift Yfirvöld í Norður-Kóreu af- hentu skýrslu um kjarn- orkuáætlun landsins í gær. Þótt skýrslan hafi verið sex mánuðum á eftir áætlun var henni víða fagnað. Þykir allt benda til þess að landið stefni ekki lengur að því að verða sér úti um kjarnorkuvopn. Bandaríkin hyggjast bregðast við með því að fjarlægja Norð- ur-Kóreu af skrá yfir ríki sem styðja hryðjuverk og leggja af efnahagsþvinganir. aij Norður-Kórea Kjarnorkan á hilluna STUTT ● Gegn aldursmismunun Har- riet Harman, jafnréttisráðherra Bretlands, leggur til að lög gegn aldursmismunun verði hert í landinu. Árið 2006 varð ólög- legt að mismuna fólki sökum aldurs á vinnustað, en nýju lög- in munu ná yfir víðara svið. Er þar sérstaklega litið til með- höndlunar heilbrigðiskerfisins. ● Börnum bjargað Banda- ríska alríkislögreglan FBI hef- ur handsamað rösklega 300 manns víðsvegar um Banda- ríkin og bjargað 21 barni sem neytt var í vændi. Eftir Andrés Inga Jónsson andresingi@24stundir.is Spánverjar hafa lengi legið undir ámælum dýraverndarsamtaka fyrir slæma meðferð á nautum, og hafa sjaldnast verið í forvígissveit rétt- indafrömuða, en lög sem liggja fyr- ir spænska þinginu gætu breytt þessu. Á Spáni stendur til að veita öpum réttindi í ætt við mannrétt- indi. Munu nokkrar tegundir apa njóta réttar til lífs og frelsis, nái til- lögurnar í gegn. Samþykkt í umhverfisnefnd Umhverfisnefnd spænska þings- ins samþykkti á miðvikudag að leggja til að stefnuyfirlýsing dýra- verndarsamtakanna Great Ape Project yrði leidd í lög. Í samtök- unum koma saman heimspekingar og vísindamenn, sem telja nánustu ættingja mannskepnunnar eiga heimtingu á réttindum sem til þessa hafa ekki staðið þeim til boða. „Þetta er sögulegur dagur í bar- áttunni fyrir réttindum dýra og til varnar þróunarfræðilegum fé- lögum okkar,“ segir Pedro Pozas, formaður spænskrar deildar Great Ape Project. Ýmsar breytingar framundan Ályktun umhverfisnefndarinnar nýtur þverpólitísks stuðnings og er talið líklegt að þingið muni sam- þykkja hana. Ríkisstjórnin hefur þegar hafist handa við að endur- skoða lagabókstafinn, þannig að komið verði í veg fyrir að tilraunir verði gerðar á öpum. „Við vitum ekki til þess að mannapar séu notaðir sem til- raunadýr á Spáni, en sem stendur eru engin lög í gildi til að koma í veg fyrir það,“ segir Pozas. Bannað verður að halda apa sem sirkusdýr, eða nota þá sem leikara í auglýsingum og kvikmyndum. Brot gegn lögunum munu verða refsiverð. Dýragörðum verður eftir sem áður heimilt að halda apa. Þó er reiknað með að lögin muni hafa þær afleiðingar að bæta þurfi að- búnað um 70% þeirra rösklega 300 apa sem búa í spænskum dýra- görðum. Mannapar með mannréttindi?  Spænskir þingmenn taka vel í tillögu um að veita öpum aukin réttindi Hagsmunaapar Mæðgurnar Jawi og Locki, sem búa í dýra- garði Barcelona, hefðu hag af lögunum. ➤ Samtökin stofnuðu heim-spekingarnir Peter Singer og Paola Cavalieri árið 1993. ➤ Þau krefjast þess að næstuættingjar mannsins njóti jafn- réttis. ➤ Þeir eru simpansar, górillur,órangútanar og bonobo-apar. GREAT APE PROJECT Danmörk ætti að segja sig úr Al- þjóðahvalveiðiráðinu, til að gefa Færeyingum og Grænlendingum færi á að setjast sjálfir í ráðið. Þetta segir Jørgen Niclasen, formaður færeyska Fólkaflokksins. „Alþjóðahvalveiðiráðið var stofnað af hvalveiðiþjóðum, og að- eins ríki sem stunduðu hvalveiðar urðu meðlimir. Danmörk hefur ekki verið hvalveiðiþjóð og gekk aðeins í ráðið vegna okkur,“ segir Niclasen á heimasíðu Fólkaflokks- ins. Vill Niclasen að landsstjórnin sækist eftir því að fara sjálf með þetta hagsmunamál – og jafnvel í samvinnu við Grænlendinga. „Þetta væri betra en núverandi að- stæður, þar sem Danmörk selur at- kvæði okkar hæstbjóðanda suður í Evrópu.“ andresingi@24stundir.is Formaður færeyska Fólkaflokksins Vill Dani úr Alþjóða- hvalveiðiráðinu Stjórnarskrá Bandaríkjanna leyf- ir ekki að menn séu dæmdir til dauða fyrir að nauðga barni. Þessari niðurstöðu komst Hæsti- réttur Bandaríkjanna að í gær, í máli tveggja manna sem sátu á dauðadeild í Louisiana. Meiri- hluti dómara var sammála um að ekki væri hægt að refsa fyrir nauðgun með dauða nema fórn- arlamb hefði látið lífið. Enn- fremur er leyfilegt að beita dauðarefsingu í landráða- og njósnamálum. Dómstóllinn skiptist nokkuð jafnt – fimm dómarar skipuðu meirihlutann, en fjórir voru þeim ósammála. Fjöldi stjórnmála- manna hefur gagnrýnt úrskurð- inn, þeirra á meðal forseta- frambjóðendurnir John McCain og Barack Obama. aij Hæstiréttur Bandaríkjanna Bannað að bana barnaníðingum Bandaríkjaher hefur fjarlægt öll kjarnorkuvopn sín frá Bretlands- eyjum, að því er heimildir banda- rískra vísindamanna herma. Tel- ur Hans Kristensen, höfundur skýrslunnar þar sem þetta kemur fram, þetta benda til þess að norðurhluti Evrópu skipti ekki lengur miklu máli í þessu tilliti. „Bandaríkin setja sig nánast ein- vörðungu í kjarnorkustelling- arnar í suðurhluta álfunnar, á Tyrklandi og Ítalíu,“ segir hann . Kjarnorkuvopn Kanans Bretland orðið bombulaust

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.