24 stundir - 27.06.2008, Blaðsíða 30

24 stundir - 27.06.2008, Blaðsíða 30
Landsins mesta úrval af laxa- og silungaflugum www.frances.is Frítt flugubox fylgir 30 FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2008 24stundir Veiðikortið veitir nú aðgang að 32 vatnasvæðum vítt og breitt um landið fyrir aðeins 5000 kr. Með veiðikortið í höndunum, ákveður þú hvar og hvenær þú veiðir! Frí heimsending þegar verslað er beint á www.veidikortid.is Kjartan Þorbjörnsson veidi@24stundir.is Árangurinn er þeim mun athygl- isverðari ef haft er í huga að nú er eingöngu veitt á flugu í Aðaldaln- um en Æðarfossasvæðið hafði áður fyrr þann stimpil á sér að vera ein- göngu maðkasvæði. Öllum löxun- um var sleppt eins og reglur gera ráð fyrir en áður en það var gert var komið fyrir á þeim flestum, sér- stökum senditækjum svo hægt sé að fylgjast með göngu þeirra upp ána. Jón Helgi Vigfússon, laxabóndi á Laxamýri í Aðaldal, segir að opn- unin sé sú besta í mörg ár. „Við náðum engum í fyrra, einum árið þar á undan og tveimur árið 2005. Þetta byrjaði með hvelli en göngur hafa síðan róast. Áin er glettilega vatnsmikil og frekar köld enn þá.“ Jón Helgi segir að líffræðingur standi vaktina fram eftir sumri til að merkja veiddar hrygnur. „Ætli hann sé ekki búinn að merkja 10- 15 laxa.“ Ætlunin er að veiða og merkja á þennan hátt sextíu hrygn- ur. „Við fengum styrk frá Fiskrækt- arsjóði til að framkvæma þetta, enda er þetta rándýrt í fram- kvæmd. Ætli bara merkin kosti ekki tæpa milljón, sagði Jón Helgi. Hann sagði Laxá mjög stóra og vatnsmikla og erfitt að gera sér al- mennilega grein fyrir hvar aðal- hrygningarsvæðin eru. Auk þess hefði sandburður aukist í ánni og ástand botnsins breyst. Líffræðing- urinn mun geta miðað reglulega út staðsetningu hryggnanna í ánni og fundið hrygningarstaði þeirra. „Þessar upplýsingar geta hjálpað okkur að bæta hrygningarsvæðin og auðveldað okkur að fylgjast með seiðavexti næstu árin,“ sagði Jón Helgi og bætti við að gaman væri ef einhver þessara merktu laxa næði að lifa veturinn af og ganga aftur í ána að ári. Kortleggja hrygningarsvæði í Aðaldal Stórlaxar með senditæki Í síðustu viku hófst veiði í hinni fornfrægu stór- laxaá, Laxá í Aðaldal. Að venju hófu Laxamýr- arbændur tímabilið og veiddu ásamt gestum 7 laxa á fyrstu vaktinni, allt 10 til 14 punda hrygnur, flesta í Kistukvísl. Rafmögnuð stór- hrygna Jón Oddur Guðmundsson sleppir merktum stórlaxi. Hver langferð byrjar á einu skrefi og hér er það: Þú ert á leið til dokt- orsgráðu í silungapúpum og ætlar að kjafta þig í gegnum inntökupróf- ið. Þetta er það sem þú þarft að vita ef þú ert á leið í litla sæta silungsá eða ætlar í veiðivatn með urriða og bleikju í þokkalegu úrvali. Fyrst þarftu að koma við í veiðibúð – því þú ert ekki byrjuð að hnýta og mað- urinn þinn ekki heldur. Það kemur næsta vetur. En nú þurfið þið sil- ungsveiðahjónin að versla því ann- ars fæst ekkert á grillið. Þið kaupið púpur, því þær eru almennt séð veiðnari en almennar sígildar vot- flugur, sem þó er alltaf gaman að eiga. Peacock Hún er mest notaða sil- ungapúpa á Íslandi og til að vera viss kaupir þú hana bæði með og án kúluhauss. Stærðir 10-12 eru ágæt- ar. Teal and Black púpan Sígild og er hér komin vegna þess að hún líkir svo vel eftir lirfum mýflugna. Stórir silungar taka hana og litlir líka. Hún er fulltrúi svörtu púpunnar í þessu safni. Ég myndi vilja sjá boxið með stærðum 10-16. Peter Ross púpan Snillingar gera hana sjálfir í ýmsum afbrigðum. Sagt er að ekki sé til sá silungur sem einhvern tíma dagsins taki ekki Pet- er Ross. Kúnstin er bara að hitta á þá stund. Ráðið er að standa bara stöð- ugt við. Peter Ross er frábær fluga og púpa og gaman að eiga hana. Killer Nafnið segir allt sem segja þarf. Á Þingvöllum er hún í heið- urssæti. Með kúlu og rauðum kraga, eða án kúlu og bara svört með vafn- ingum. Tailor Nafnið segir ekki neitt. En reynsla ólyginna er sú að hún gefi alls staðar fisk þar sem fiskar éta lirf- ur flugna. Þú skalt eiga hana brúna og svarta, að minnsta kosti. Hvað stærðir þarftu? Þegar komið er fram í júlí og ágúst smækka silungaflugurnar, sem þýðir að menn nota flugur með hærri númerum. Þetta er ein af lífs- gátum fluguveiðinnar og þér nægir að vita þetta í bili. Þess vegna þarftu að eiga Teal and Black, Peter Ross og Tailor í stærðum 12, 14 og jafnvel 16. Það eru smáar flugur sem kalla á granna tauma. Fimm punda taum- ur nægir. Reyndar eru fimm punda taumar afskaplega misjafnlega sver- ir, og ég hef á tilfinningunni að nú sé komið að því að fara inn á flugur.is og skoða myndir af þessum púpum og mörgum fleiri, og lesa greinar um línur og tauma. Því að eiga flug- urnar er bara byrjunin. Á flugur.is er grein sem lýsir vali á flugum fyrir 200 ár og vötn á Íslandi ef þú vilt fá fleiri hugmyndir! Það sem margir flaska á er að reyna ekki nógu smáar flugur. Stærð 16 er frekar smá en stundum of stór. Þegar komið er fram á mitt sumar er svo margt að gerast í lífríkinu að úr- valið í boxinu þarf að vera sæmilegt. Skoði maður í maga silungs kemur oft í ljós hve agnarsmá skordýrin eru. Ekki hika við að smækka og grenna tauminn. Og hafðu tauminn þá langan. Rúmlega stangarlengd en ekki styttri Og já. Ég geymdi bestu fluguna þar til síðast. Pheasant tail Með kúluhaus og án, í öllum stærðum, í sem flestum gerðum. Og ef þú vilt vera alveg örugg og slá manninum þínum við skaltu laumast til að ná þér í ,,flugu 20. aldarinnar – Héraeyra. Stefán Jón Hafstein skrifar um veiði VEIDDU BETUR Silungapúpur Skyndihjálparnámskeið Landssamband Stangaveiðifélaga mun standa fyrir árlegum veiðidegi fjölskyldunnar sunnudaginn 29. júní. Dagurinn hefur notið mikilla vinsælda á undanförnum árum. Veiðiréttarhafar í 27 vatnasvæðum á landinu bjóða landsmönnum að veiða frítt þennan dag. Veiðimenn eru þó beðnir að láta vita af sér og skrá afla á hverjum stað fyrir sig. Vötnin má finna um allt land en upplýsingabæklingur liggur frammi í öllum veiðibúðum og á www.landssambandid.is. Veiðidagur fjölskyldunnar Ánægð Veiðidag- urinn hefur notið vinsælda LÍFSSTÍLL lifsstill@24stundir.is a Við náðum engum í fyrra, einum árið þar á undan og tveimur árið 2005. Þetta byrjaði með hvelli en göngur hafa síðan róast. Áin er gletti- lega vatnsmikil og frekar köld enn þá. veiði Einar Sveinbjörnsson veðurfræð- ingur hefur lengi haldið úti bloggi á esv.blog.is tileinkað sí- breytilegu veðurfari landsins. Nú hefur hann aukið þjónustu sína í samvinnu við mbl.is og mun birta þar vikulegar veiðiveð- urspár. Þar fer hann yfir hita og úrkomuspár vikunnar, skoðar rennsli veiðiáa og spáir almennt um flest sem tengist veiðinni, nema kannski aflabrögðin. Frá- bær þjónusta fyrir veiðimenn. Veiðiveðrið

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.