24 stundir - 27.06.2008, Blaðsíða 40

24 stundir - 27.06.2008, Blaðsíða 40
24stundir ? Þeir sem fylgjast með fréttum hljótaað hugleiða hvort öllu fari orðið fram?Það er ekki annað að sjá eða heyra og svorammt kveður orðið að þessari orða-notkun að ósjálfrátt finnst mér semmörgu fari aftur. Fjöldi íþróttakappleikja fer orðiðfram, innan lands og utan. Menn eru löngu hættir að leika þá. Meira að segja Evrópumeistarakeppnin í knattspyrnu fer fram og mér mun koma á óvart ef úr- slitaleikurinn fer ekki líka fram. Leit að ísbjörnum hefur farið fram svo dögum skiptir. Kannski yrði árangurinn betri ef menn leituðu bara? Hvers kyns tónleikar fara orðið fram. Stórtónleikar, styrktartónleikar og jafn- vel einsöngstónleikar. Menn virðast löngu hættir að halda tónleika. Undirskriftalistar sleppa ekki, afhend- ing þeirra fer líka fram. Menn eru löngu hættir að afhenda þá. Á opinberri vefsíðu segir að allar um- sóknir skuli fara fram rafrænt. Má ekki bara sækja um? Og okkur er sagt að inn- kaup landsmanna fari að mestu leyti fram í verslunarmiðstöðvum. Menn eru að sjálfsögðu löngu hættir að versla eða kaupa inn. Meira að segja Ríkisútvarpið segir kosningar fara fram víða um heim. Hér áður var bara kosið. Og það hefur vart farið fram hjá fólki að kosningabarátta hefur farið fram í Bandaríkjunum í marga mánuði. Á árum áður hófst kosn- ingabarátta og var svo í gangi. Ég get ekki að því gert að mér finnst okkur fara svolítið aftur. Er fjölmiðlaíslenskan fátæk? Þóru Þórarinsdóttur finnst fjölbreytt orðalag skemmtilegra. YFIR STRIKIÐ Fer öllu fram … eða kannski aftur? 24 LÍFIÐ Um 50 lög hafa verið send inn í samkeppni útvarpsstöðvarinnar FM 957 sem leitar að nýjum sumarslagara. FM 957 leitar að nýj- um sumarslagara »34 Mörður Árnason er ekki mjög hrifinn af nafni gosdrykkjarins Rí- Mix en telur að íslenska tungan muni lifa af. Fyrsti íslenski gos- drykkurinn í þrjú ár »38 Silvía Nótt hefði ekki látið grípa sig dauða með tónlist Joao Gilberto í tækinu, en Ágústa Eva elskar bossanova. Ágústa Eva syngur bossanova »34 ● Hróarskeldu- tombóla „Þetta verður eins og gamla, góða tom- bólan. Fólk fær númer á miða þegar það mætir á staðinn,“ segir Matthías Már Magnússon á Rás 2, sem stendur fyrir Hróarskeldupartíi á Organ í kvöld. Rás 2 hefur þegar boðið tíu manns út á hátíðina en tveir gestir partísins bætast í hópinn í kvöld. Dikta og Bloodgroup spila en síðarnefnda sveitin spilar ein- mitt á hátíðinni. Matti fær þó ekki að fara. „Einhver verður að stýra gufuskipinu á meðan Óli Palli verður í burtu.“ ● Endur í önd- vegi „Við erum bara svo andavæn og þetta eru hinar einu sönnu veg- farendur,“ segir Jón Halldór Jón- asson, upplýs- ingafulltrúi fram- kvæmdasviðs Reykjavíkurborgar, en nýtt umferðarskilti sem varar við umferð anda við veginn var sett upp í Grafarholti á dögunum. Skiltið var sett upp eftir að ábend- ing barst þess efnis að endur á vappi settu sjálfar sig og aðra í hættu. „Við eigum nú ekki öll dýr á lager en það væri kannski sniðugt að eiga allavega einn ísbjörn.“ ● Tré mánaðar- ins „Tréð er óvenjufallegt og það réð valinu. Við vildum líka vekja athygli á teg- undinni sem mætti gróðursetja víðar,“ segir Krist- ján Bjarnason, verkefnisstjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur, sem í fyrsta sinn hefur valið tré mán- aðarins. Tréð er gullregn í garði við Sólvallagötu 4. Halda á áfram að velja tré mánaðarins næsta árið. „Ég reikna með því að það verði helst barrtré sem komi til greina að vetrinum,“ segir Kristján. Ritstjórn Sími: 510 3700 ritstjorn@24stundir.is Auglýsingar Sími: 510 3700 auglysingar@24stundir.is Hvað ætlar þú að gera í dag? - kemur þér við Reykjavík Faxafen 12 S. 533-1550. Keflavík Hafnargata 25 S. 421-3322 OPIÐ UM HELGINA! STÓRÚTSALAN 50-80%AFSLÁTTUR HEFST Í DAG dömu-, herra- & barnafatnaður bolir skyrtur flíspeysur softshellpeysur buxur zip-off buxur kvart buxur stuttbuxur regnföt kápur isotex jakkar isotex buxur bakpokar skór sandalar sokkar smávara ofl. www.utivistogsport.is virka daga 10 - 18 laugard. 10-18 sunnud. 13-17

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.