24 stundir - 27.06.2008, Page 12

24 stundir - 27.06.2008, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2008 24stundir 24stundir Útgáfufélag: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Árvakur hf. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Björg Eva Erlendsdóttir Magnús Halldórsson Þröstur Emilsson Elín Albertsdóttir Auglýsingastjóri: Gylfi Þór Þorsteinsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is, 24stundir@24stundir.is, Prentun: Landsprent ehf. Óhætt er að skála fyrir Landsvirkjun og Sjálfstæðisflokknum þessa dag- ana. Álver á Bakka, virkjanir í Þjórsá, aukin framleiðsla álversins í Straumsvík og nýtt álver í Helguvík. Þetta er fagra Ísland ríkisstjórn- arinnar. Samfylkingin virðist sjálf ennþá trúa því að flokkurinn haldi fram nýrri sýn í atvinnu- og umhverfismálum en hér hefur ríkt undanfarna ára- tugi. Fagra Ísland er þó orðin fullkomin andstaða þess sem Samfylkingin boðaði þjóðinni fyrir síðustu kosningar. Stóriðja áfram, ekkert stopp, var það ekki stefna Framsóknar? Hver er nú munurinn? Það er talsverð kokhreysti hjá Samfylkingunni að segja að skoðana- könnun Fréttablaðsins sem sýnir andstöðu almennings við frekari stóriðju sé – „öflugur stuðningur við grunnhugsunina í stefnu Samfylkingarinnar um Fagra Ísland.“ Hvernig Ísland er það og hver er eiginlega þessi grunn- hugsun? Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra mokaði yfir trúverðugleika Samfylkingarinnar þegar hann tók skóflustungu að álveri í Helguvík á dögunum. Eftir þann mokstur þarf engum að koma á óvart að Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra undirriti viljayfirlýsingu um álver á Bakka. Og ekki heldur að Þórunn Sveinbjarnardóttir standi hnípin hjá og kynni sig endurtekið sem umhverfisráðherrann sem engu vill ráða. Henni finnst leitt að fylgjast með byggingu álvers í Helguvík og undirbúningi á Bakka og hún hefur samúð með fólkinu á Þjórsárbökkum. Sú samúð kemur að litlum notum, þegar grá jökullónin fara að flæða um gróin tún og fagrar byggðir Suðurlands, svo hægt verði að stækka álverið í Straums- vík. Hætt er við að einhverjum verði þá hugsað til ráðherranna sem treyst var til að verja náttúru lands- ins. Það voru ráðherrar Samfylkingarinnar. Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins voru ekki kosnir til þess að stöðva stóriðju, heldur til að halda henni áfram. Stefna Sjálf- stæðisflokksins er níðsterk. Og sveitarstjórnarmenn, hvar í flokki sem þeir standa, treysta henni svo vel að þeir uppfylla óskir Landsvirkjunar umyrðalaust og virða ekki viðlits fólkið sem kaus þá. Samfylkingin er í sama báti. Hún treystir Sjálfstæðisflokknum betur en sjálfri sér og kjósendum. Þess vegna finnst henni duga að hafa grunnhugsun um fagra Ísland, sem aldrei kemst til framkvæmda, á meðan Sjálfstæðisflokkur- inn lætur verkin tala. Grunnhugsun Samfylkingar Efnahagskreppur á Íslandi hafa hingað til stafað af lækkandi fisk- verði og minnkandi sjávarafla. Nú er fiskverð hins vegar í há- marki og útflutn- ingsverðmæti haldast þrátt fyrir að heimilað sé að veiða minna en oftast áður. Efna- hagskreppan nú er því af öðrum toga en áður. Hún er heima- tilbúin. Hún er bein afleiðing hagstjórnarmistaka Seðlabanka og ríkisstjórna í rúman áratug. Aukin umsvif og skattheimta hins opinbera er einn af helstu orsakavöldum þeirra efnahags- þrenginga sem við erum nú að ganga í gegn um. Jón Magnússon jonmagnusson.blog.is BLOGGARINN Heimatilbúið Meðan almennir íbúðaeigendur á landsbyggðinni hafa búið við verðfall á íbúðum sínum árum saman vegna rangláts kvóta- kerfis, þenslu á höfuðborg- arsvæðinu og ruðningsáhrifa stóriðjufram- kvæmdanna, er hlaupið upp til handa og fóta til að bjarga fyrirtækjum og lána- stofnunum sem hafa vaðið áfram í offjárfestingum á höfuðborg- arsvæðinu. Grátið er hástöfum yfir þúsundum óseldra íbúða í Reykjavík og nágrannabyggðum, þar sem sveitarfélögin héldu hvert og eitt að því bæri að byggja yfir alla fólksfjölgun … Jón Bjarnason jonbjarnason.blog.is Offjárfestingar Stuðningur minn við Þjóðverja kemur m.a. til af því að ég bjó í Þýskalandi á mínum yngri árum og líkaði það vel. Ég lærði margt af dvöl minni í landinu sem hef- ur komið að not- um í skóla lífsins. Allar þjóðir hafa einhver sér- einkenni og að sjálfsögðu kosti og galla. Það hefur reynst Þjóð- verjum erfitt að vinna úr hörm- ungum seinni heimstyrjald- arinnar og ábyrgð þeirra í þeim efnum en nú á seinni árum hefur verið unnið skipulega að því að opna umræðuna. Á þeim tíma sem ég bjó í Þýskalandi var orðið „Hitler“ bannorð … Valgerður Sverrisdóttir valgerdur.is EM-fótboltinn Björg Eva Erlendsdóttir beva@24stundir.is Iðnaðarráðherra hefur lýst yfir að hann styðji álver á Bakka við Húsavík, og segist þar mæla fyrir munn ráðherra og þingflokks Samfylk- ingarinnar. Hann telur að stuðningur við þetta álver gangi ekki í bága við umhverfisstefnu Samfylking- arinnar frá síðustu kosningum, Fagra Ísland. Og fyrir skömmu voru tveir ráðherrar úr sömu rík- isstjórn með skóflur við Helguvík á Rosmhvalanesi. Það álver er ekki heldur nefnt sérstaklega í stefnu Samfylkingarinnar. Þar er hins vegar talað um að „ákvörðunum um frekari stóriðjuframkvæmdir verði frestað þangað til fyrir liggur nauðsynleg heildarsýn yfir verðmæt náttúrusvæði og verndun þeirra hefur verið tryggð.“ Með þröngri túlkun á þessum orðum mætti halda því fram að „frekari stóriðjufram- kvæmdir“ væru þær einhverjar sem ekki höfðu verið ákveðnar þegar stefnan var samþykkt. Orðalagið mið- ast við þau reynsluvísindi úr daglega lífinu að þegar skrúfað er fyrir vatn úr slöngu rennur óhjákvæmilega úr henni það vatn sem þegar var komið í slönguna framhjá hananum. Á hinn bóginn þarf enga snilligáfu til að líta svo á að í stefnu Samfylkingarinnar um „Fagra Ísland“ og um „nýja atvinnulífið“, sem byggist á hugviti, tækni og grænni orku, felist almenn en afar skýr fyrirheit um aðra kosti í atvinnumálum og aðra tíma í umhverf- ismálum en áður voru uppi. Eða heldur einhver að kjósendur S-listanna hafi verið að krossa við tvö ný ál- ver? Enn er að gæta að því að mengunarkvóti okkar er á þrotum. Það er einfalt reikningsdæmi að innan Kyoto-heimilda fram til 2012 rúmast aðeins eitt álver af meðalstærð. Þetta sögðu forystumenn flokksins míns löngu fyrir kosningar. Hvað gerist eftir 2012 veit vissulega enginn – en líklegast er að þá verði mengunarkvóti okkar rýrari en nú. Bara þess vegna verða álvers- áhugamenn að velja á milli Helguvík- ur og Bakka. Það verða ekki sama daginn jól og páskar. Ljóst er að iðnaðarráðherra hefur ákveðið sig. Núna hlýtur öll rík- isstjórnin að taka undir. Höfundur er formaður Græna netsins og varaþingmaður fyrir Samfylkinguna Bakka eða Helguvík? ÁLIT Mörður Árnason

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.