24 stundir - 27.06.2008, Side 15

24 stundir - 27.06.2008, Side 15
24stundir FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2008 15 byrjaði ég átta ára gömul og fékk bakteríuna á svipstundu og hef verið í þessu síðan ásamt reyndar öðrum íþróttagreinum. Þar var ég svo að æfa mig fram til þess dags sem ég fór suður í menntaskóla og hef verið hjá Keili í Hafnarfirði síðan.“ Æfir fjóra til fimm tíma á dag Þar æfir Ásta nú undir hand- leiðslu helstu kennara golfklúbbs- ins Keilis og ekki aðeins eyðir hún mörgum klukkustundum á dag við æfingar eða leik heldur starfar hún einnig í afgreiðslu golf- klúbbsins. „Ég kann vel við mig í Hafnarfirðinum og starfið er mjög fínt og aldrei nein vandræði þó ég þurfi frá vegna móta eða slíks. Ég reyni að spila mikið á vellinum og æfa þá klukkustund að auki ann- aðhvort fyrir hring eða eftir en ef ég fer ekki hring á vellinum þá nota ég æfingaaðstöðuna hér og er þá þrjá til fjóra tíma í senn flesta daga. Það er sú fórn sem þarf að færa til að ná árangri.“ Leið á golfi Ásta viðurkennir að hún fái nóg af golfi strax og vetur konungur fer að gera vart við sig í lok sept- ember og segir það hið besta mál. „Allavega meðan ég er í námi. Ég er að klára náttúrufræðibraut í Menntaskólanum í Kópavogi og ég hyggst halda áfram á mennta- brautinni og þar heillar sjúkra- þjálfun mig mest eins og sakir standa nú. En ég læt þó golfið ekki Eftir Albert Örn Eyþórsson albert@24stundir.is Þessi unga og fallega austfirska mær er sem stendur í öðru sætinu í kvennaflokki á Kaupþingsmóta- röðinni í golfi en þar etja saman kappi allir helstu kylfingar lands- ins en fyrir ofan hana er ein helsta stjarnan í golfinu um langa hríð, Ragnhildur Sigurðardóttir. Golf á Djúpavogi? Þó á landinu sé nú að finna víða fína golfvelli verður seint sagt að Djúpivogur fari í bækur sem Mekka golfs á Fróni en þar kynnt- ist Ásta íþróttinni gegnum frænda sinn Jón Rúnar Björnsson sem sjálfur er liðtækur spilari. „Margir halda að golfvöllurinn í bænum sé bara eitthvað slegið tún en svo er nú ekki og aðstaðan þar með ágætum þó ekki jafnist hún á við það sem best gerist. En þarna eiga sig lengi heldur fer að grípa í kylfur að nýju í desember og fer þá að æfa á ný tvisvar til þrisvar í viku og fjölga svo æfingum smátt og smátt fram að sumri.“ Rétt að byrja Ásta, stolt af austfirskum upp- runa sínum, segir engar veimiltít- ur koma að austan og árangur hennar nú sé aðeins byrjunin á því sem koma skal. „Ég hef tekið þátt og sigrað mót í unglingaflokkum og svo fyrir austan en sigurinn á þessu móti á Kaupþingsmótaröð- inni er hápunkturinn hingað til. Ég segi hingað til þar sem ég ætla mér lengra og er aðeins í starthol- unum. En þar átti ég frábæran dag og allt gekk upp en ég auðvitað á mína slæmu daga líka eins og allir. Málið snýst um að fækka slæmu dögunum og þá er ekkert hægt annað en að fara hærra en nú er.“ Hola í höggi komin í hús Þúsundir, ef ekki milljónir, áhugakylfinga dreymir um að fara holu-í-höggi á lífsleiðinni en Ásta kláraði það verkefni fyrir tvítugt á þriðju braut á Hvaleyrarvelli í fyrra en sú er par 4 og umkringd hrauni. „Það var þvílík hunda- heppni og það var meira að segja fólk að pútta á flötinni þegar ég sló höggið. Svo sá ég fólkið veifa og öskra eitthvað og óttaðist að hafa slasað einhvern en sem betur fer var það bara að fagna högginu. Það var mjög ánægjulegt en hafði ekkert með sérstaka hæfileika að gera. Tóm heppni bara.“ Engar veimiltítur sem koma að austan  Ekki þarf alltaf toppaðstöðu til að ná árangri í íþróttum  Það veit Ásta Birna Magnúsdóttir, ein skærasta stjarnan í íslenska kvennagolfinu, sem fékk golfbakteríuna fyrir austan á Djúpavogi Ásta Birna Magnúsdóttir frá Djúpavogi hefur kom- ið víða við í íþróttum með góðum árangri þrátt fyrir að vera einungis tví- tug að aldri. Hún á að baki fínan árangur í hlaupagreinum, há- stökki, langstökki, kúlu- varpi og spjótkasti og nú er hún aldeilis að láta vita af sér í kvennagolfinu. Stanslausar æfingar Fjórar til fimm klukku- stundir á dag fara í æf- ingar og leik. ➤ Ásta Birna er samanlagt íöðru sæti á Kaupþings- mótaröð kvenna með 271.50 stig að þremur mótum lokn- um. ➤ Á því fyrsta á Hellu varð Ásta ísjöunda sæti. ➤ Allt gekk upp á öðru mótinu íLeirunni á Suðurnesjum en þar sigraði hún með nokkrum yfirburðum. ➤ Á því þriðja dalaði árang-urinn aðeins en þar varð Ásta ellefta. ÁRANGURINN 2008 24stundir/Árni Sæberg ÍÞRÓTTIR ithrottir@24stundir.is a Svo sá ég fólkið veifa og öskra eitthvað og óttaðist að hafa slasað einhvern en sem betur fer var það bara að fagna högginu sem á einhvern stórundarlegan máta rataði beint ofan í holuna.

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.