24 stundir - 27.06.2008, Side 15
24stundir FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2008 15
byrjaði ég átta ára gömul og fékk
bakteríuna á svipstundu og hef
verið í þessu síðan ásamt reyndar
öðrum íþróttagreinum. Þar var ég
svo að æfa mig fram til þess dags
sem ég fór suður í menntaskóla og
hef verið hjá Keili í Hafnarfirði
síðan.“
Æfir fjóra til fimm tíma á dag
Þar æfir Ásta nú undir hand-
leiðslu helstu kennara golfklúbbs-
ins Keilis og ekki aðeins eyðir hún
mörgum klukkustundum á dag
við æfingar eða leik heldur starfar
hún einnig í afgreiðslu golf-
klúbbsins. „Ég kann vel við mig í
Hafnarfirðinum og starfið er mjög
fínt og aldrei nein vandræði þó ég
þurfi frá vegna móta eða slíks. Ég
reyni að spila mikið á vellinum og
æfa þá klukkustund að auki ann-
aðhvort fyrir hring eða eftir en ef
ég fer ekki hring á vellinum þá
nota ég æfingaaðstöðuna hér og er
þá þrjá til fjóra tíma í senn flesta
daga. Það er sú fórn sem þarf að
færa til að ná árangri.“
Leið á golfi
Ásta viðurkennir að hún fái nóg
af golfi strax og vetur konungur
fer að gera vart við sig í lok sept-
ember og segir það hið besta mál.
„Allavega meðan ég er í námi. Ég
er að klára náttúrufræðibraut í
Menntaskólanum í Kópavogi og
ég hyggst halda áfram á mennta-
brautinni og þar heillar sjúkra-
þjálfun mig mest eins og sakir
standa nú. En ég læt þó golfið ekki
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@24stundir.is
Þessi unga og fallega austfirska
mær er sem stendur í öðru sætinu
í kvennaflokki á Kaupþingsmóta-
röðinni í golfi en þar etja saman
kappi allir helstu kylfingar lands-
ins en fyrir ofan hana er ein helsta
stjarnan í golfinu um langa hríð,
Ragnhildur Sigurðardóttir.
Golf á Djúpavogi?
Þó á landinu sé nú að finna víða
fína golfvelli verður seint sagt að
Djúpivogur fari í bækur sem
Mekka golfs á Fróni en þar kynnt-
ist Ásta íþróttinni gegnum frænda
sinn Jón Rúnar Björnsson sem
sjálfur er liðtækur spilari. „Margir
halda að golfvöllurinn í bænum sé
bara eitthvað slegið tún en svo er
nú ekki og aðstaðan þar með
ágætum þó ekki jafnist hún á við
það sem best gerist. En þarna
eiga sig lengi heldur fer að grípa í
kylfur að nýju í desember og fer
þá að æfa á ný tvisvar til þrisvar í
viku og fjölga svo æfingum smátt
og smátt fram að sumri.“
Rétt að byrja
Ásta, stolt af austfirskum upp-
runa sínum, segir engar veimiltít-
ur koma að austan og árangur
hennar nú sé aðeins byrjunin á því
sem koma skal. „Ég hef tekið þátt
og sigrað mót í unglingaflokkum
og svo fyrir austan en sigurinn á
þessu móti á Kaupþingsmótaröð-
inni er hápunkturinn hingað til.
Ég segi hingað til þar sem ég ætla
mér lengra og er aðeins í starthol-
unum. En þar átti ég frábæran dag
og allt gekk upp en ég auðvitað á
mína slæmu daga líka eins og allir.
Málið snýst um að fækka slæmu
dögunum og þá er ekkert hægt
annað en að fara hærra en nú er.“
Hola í höggi komin í hús
Þúsundir, ef ekki milljónir,
áhugakylfinga dreymir um að fara
holu-í-höggi á lífsleiðinni en Ásta
kláraði það verkefni fyrir tvítugt á
þriðju braut á Hvaleyrarvelli í
fyrra en sú er par 4 og umkringd
hrauni. „Það var þvílík hunda-
heppni og það var meira að segja
fólk að pútta á flötinni þegar ég
sló höggið. Svo sá ég fólkið veifa
og öskra eitthvað og óttaðist að
hafa slasað einhvern en sem betur
fer var það bara að fagna högginu.
Það var mjög ánægjulegt en hafði
ekkert með sérstaka hæfileika að
gera. Tóm heppni bara.“
Engar veimiltítur
sem koma að austan
Ekki þarf alltaf toppaðstöðu til að ná árangri í íþróttum Það veit Ásta Birna Magnúsdóttir, ein skærasta
stjarnan í íslenska kvennagolfinu, sem fékk golfbakteríuna fyrir austan á Djúpavogi
Ásta Birna Magnúsdóttir
frá Djúpavogi hefur kom-
ið víða við í íþróttum
með góðum árangri þrátt
fyrir að vera einungis tví-
tug að aldri. Hún á að
baki fínan árangur í
hlaupagreinum, há-
stökki, langstökki, kúlu-
varpi og spjótkasti og nú
er hún aldeilis að láta vita
af sér í kvennagolfinu.
Stanslausar æfingar
Fjórar til fimm klukku-
stundir á dag fara í æf-
ingar og leik.
➤ Ásta Birna er samanlagt íöðru sæti á Kaupþings-
mótaröð kvenna með 271.50
stig að þremur mótum lokn-
um.
➤ Á því fyrsta á Hellu varð Ásta ísjöunda sæti.
➤ Allt gekk upp á öðru mótinu íLeirunni á Suðurnesjum en
þar sigraði hún með nokkrum
yfirburðum.
➤ Á því þriðja dalaði árang-urinn aðeins en þar varð Ásta
ellefta.
ÁRANGURINN 2008
24stundir/Árni Sæberg
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Svo sá ég fólkið veifa og öskra eitthvað og
óttaðist að hafa slasað einhvern en sem betur
fer var það bara að fagna högginu sem á einhvern
stórundarlegan máta rataði beint ofan í holuna.