24 stundir - 27.06.2008, Síða 13
24stundir FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2008 13
Sú saga gengur nú fjöllunumhærra í borgarkerfinu íReykjavík að
Ólafur F. Magn-
ússon borgarstjóri
sé ekki sáttur við
aðstoðarmann sinn
Ólöfu Guðnýju
Valdimarsdóttur
og því sé hún á förum. Ástæðan
er sögð sú að Ólafi finnst Ólöf
ekki hafa sinnt PR-málum nægi-
lega vel. Allir blaða- og frétta-
menn vita hins vegar að erfitt
reynist að ná í Ólaf F. og ef það
tekst vill hann ekki tala við fjöl-
miðla. Nú segja gárungar að Ólaf-
ur leiti sér aðstoðarmanns með
millibókstafinn F. Hann sé sjálfur
með þann millistaf svo og nýráð-
inn miðborgarstjóri, Jakob F.
Magnússon.
Bókaútgáfan Bjartur hefurverið með keppni á vef-svæði sínu um hver yrði
50 þúsundasti áskrifandi frétta-
bréfs þeirra og var
þeim heppna boðið
gull og gersemar
sem lenda myndi í
lukkupottinum. Í
fyrradag datt síðan
hinn heppni inn
sem var enginn annar er jo-
hann@jpv.is en allir nema starfs-
menn Bjarts föttuðu strax að þar
var keppinauturinn Jóhann Páll
Valdimarsson á ferð. Í gær birtist
síðan önnur frétt, ekki eins glað-
beitt því þar var getið um að
johann@jpv.is hefði svindlað
því hann hefði skráð sig þrisvar
sinnum inn. Vegna svindlsins fær
hann því ekki verðlaunin. Við hér
trúum frekar að starfsmenn hjá
Bjarti hafi allt í einu kveikt á per-
unni um hver vinningshafinn
væri og í staðinn fyrir að veita
honum vegleg verðlaun var hann
sakaður um að vera svindlari.
Í skoðanakönn-un sem Frétta-blaðið birti fyrr
í vikunni kom fram
að 68,6 prósent
kjósenda Samfylk-
ingarinnar eru andvíg frekari
virkjunarframkvæmdum enda
gekk flokkurinn til kosninga fyrir
rúmu ári með kosningaloforðið
Fagra Ísland. Össur Skarphéð-
insson, iðnaðar-, orku-, byggða-
og ferðamálaráðherra er á skjön
við Samfylkingarfólk í þessum
efnum og skrifaði undir vilja-
yfirlýsingu um byggingu 250 þús-
und tonna álvers á Bakka í gær. Í
hvaða ráðherrahlutverki ætli Öss-
ur hafi verið? elin@24stundir.is
KLIPPT OG SKORIÐ
Það er komin kreppa. Eitt skýr-
asta merki þess er að útrásarvíking-
arnir okkar hugumstóru og marg-
rómuðu eru víst margir hverjir á
leiðinni heim – einn á eftir öðrum í
halarófu yfir hafið. Það er meira að
segja farið að sjást til þeirra sumra í
Leifsstöð enda ekki margir sem
hafa getað endurnýjað leigusamn-
inginn á einkaþotunni undanfarið
hálft ár eða svo.
Um bæinn gengur sú flökkusaga
á meðal manna að eitt megingoð
íslensks viðskiptalífs hafi meira að
segja sést á almennu farrými á leið-
inni heim frá London um daginn.
Svoleiðis hefur ekki sést lengi. En
ég sel það ekki dýrara en ég keypti
það. Sem er raunar að mér skilst
einn helsti vandinn: Íslensku fjár-
málafurstarnir fá nú ekkert selt á
hærra verði en þeir keyptu á upp-
sprengdu verði í uppsveiflunni.
Skuldadans
Virði margra nýkeyptra fyrir-
tækja í útlöndum er orðið minna
en ekki neitt. Í bókstaflegri merk-
ingu – útrásin var tekin út á krít og
nú, þegar komið er að skuldadög-
um, fæst minna fyrir eignirnar
heldur en nemur skuldsetning-
unni. Mér er sagt að nú sé svo
komið að íslenska þjóðarbúið í
heild sinni skuldi orðið meira í út-
löndum heldur en við eigum utan
landsteinanna. Útrásin er þar með
komin á höfuðið. Úti er ævintýri –
eða allavega í biðstöðu.
Þeir eru margir hverjir ansi sárir,
sem hafa barist í okkar nafni á
blóðugum velli alþjóðaviðskipt-
anna undanfarin misseri. Fregnir
herma að sumir hafi nú þegar fallið
í valinn, aðrir séu helsærðir en sem
betur fer hafa einhverjir náð að
verjast óvígum her hnattrænnar
lausafjárkrísu. Og eru sem sé nú á
leiðinni heim að sleikja sárin og
safna kröftum.
Fett og brett
En við blæðum öll fyrir. Líka
þeir sem gerðu ekki neitt annað en
að vinna sitt starf hér heima og
sýna sömu fyrirhyggju og ráðdeild
og alltaf. Verðbólgan étur upp
launin eins og mölurinn forðum,
vextirnir þurrka upp næfurþunn
seðlaveskin og gengisfall krónunn-
ar borar gat á alla vasa. Almenn-
ingur borgar fyrir óhóflegt sam-
kvæmislíf nýju auðstéttarinnar,
fyrir gleðskap sem þeim var ekki
einu sinni boðið í. Og nú á
mamma gamla í stjórnarráðinu og
afi hennar í Seðlabankanum að
koma glaumgosunum til bjargar.
Þeir segja að lækningin felist í að fá
meiri pening frá útlöndum. Menn
þurfa skammtinn sinn. En sú
gamla veit ekki sitt rjúkandi ráð og
fjasar bara um óviðjafnanlegan
teygjanleika íslensku krónunnar.
Sjáðu hvað hægt er að toga hana og
teygja, sagði sú gamla hróðug á
fundi í London, sveigja hana og
beygja, fetta og bretta. Út og suður.
Og það þrátt fyrir ríflega þriðj-
ungsfall á innan við hálfu ári.
Sólarsamba
Best haldna hálaunastétt lands-
ins hefur enn og aftur hótað að
loka landinu. Vonandi ná sem
flestir heim fyrir verkfall flugum-
ferðarstjóra. Voðalega vont að vera
fastur í útlöndum með götótta
krónu. Fríið er tekið heima í ár, en
við komumst ekki einu sinni út á
land því bensínið hækkar með
hverjum keyrðum kílómetra. Ak-
ureyri er nú í tugþúsunda fjarlægð.
En okkur er svo sem sama, veðr-
ið hefur nefnilega verið svo ósköp
gott. Sólin er okkar Prosac og til-
finningarnar fá útrás fyrir framan
skjáinn. Á EM og við að fylgjast
með blessuðum ísbjörnunum sem
hafa stytt okkur stundir í blíðunni.
Og jarðskjálftinn maður, þá var
stuð. En hvað svo? Hvað gerist þeg-
ar ísbirnir hætta að ganga á land,
boltinn er búinn og sólin farin?
Hvað ætla efnahagsmálayfirvöld þá
að gera?
Höfundur er stjórnmálafræðingur
Kreppa á verðbólgnum
jeppa
VIÐHORF aEiríkur Bergmann Einarsson
Almenningur
borgar fyrir
óhóflegt
samkvæm-
islíf nýju auð-
stéttarinnar,
fyrir gleð-
skap sem
þeim var ekki einu sinni
boðið í. Og nú á mamma
gamla í stjórnarráðinu og
afi hennar í Seðlabank-
anum að koma glaum-
gosunum til bjargar.
Komdu til okkar,
taktu með
eða borðaðu
á staðnum
Alltaf góð
ur!
Kjúklingastaðurinn
Suðurveri
Nú er
orðin
n stór
Nesbyggð ehf óskar að ráða pípulagnameistara.
Starfssvið meistarauppáskrift, verkstjórn og
almenn pípulagnavinna. Hjá Nesbyggð starfa
4 til 6 píparar og eru næg verkefni framundan.
UPPLÝSINGAR GEFUR
PÁLL Í SÍMA 840 6100
Ferðaskrifstofa
Fyrstur kemur, fyrstur fær.
Nánari upplýsingar og bókanir
á www.plusferdir.is
3.,10.,17. 24. og 31. júlí.
Verðfrá:
39.900kr.
Portúgal
Netverð á mann í viku
miðað við 2, 3 eða 4 í s
túdíó, íbúð eða hótelh
erbergi.
Enginn barnaafsláttur.
Innifalið er flug, gisting
í 7 nætur, flugvallaskat
tar
og íslensk fararstjórn.
Sjóðheitt
sólarlottó!
Spilaðu með og láttu sólina leika við þig.
Þú velur áfangastaðinn og brottfarardaginn. Viku
fyrir brottför staðfestum við á hvaða gististað þú
dvelur í sumarfríinu. Gildir fyrir júlí ein vika eða tvær.
Áratuga ending
Mest selda heimilisvél heims í 65 ár
Sérstök brúðkaupsgjöf
Öll brúðhjón fá glæsilega svuntu með ísaumuðum nöfnum sínum og brúðkaupsdegi
Íslensk matreiðslu- kennslubók í lit ásamt alþjóðlegum uppskriftum fylgir.
- kemur þér við
AUGLÝSINGASÍMI: 510 3744
íþróttir útivist
pólitík heilsa
fréttir fé&frami
golf 24fólk veiði
neytendavaktin
golf dagskrá
menning viðtöl
ferðalög viðskipti
garðurinn grill
24lífið bílar
neytendur umræða