24 stundir - 27.06.2008, Síða 18
18 FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2008 24stundir
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@24stundir.is
„Ég hef það miklar væntingar til
borgarinnar að ég er nokkuð viss
um að hún verður mín uppáhalds-
borg þegar ég fer þangað í haust,“
segir Kolbrún og segist halda að þar
sé ótrúlega margt að skoða og upp-
lifa af menningu, listum og mann-
lífi.
Hver er andinn í borginni? Magn-
aður, fjölbreytilegur og hraður. Það
er það sem ég hef heyrt.
Uppáhaldsveitingastaðurinn? All-
ir staðir sem selja góða steik eru í
uppáhaldi hjá mér. Ef boðið er upp
á ískalt og nýlega framleitt kók með
klökum með steikinni er þetta
toppstaður.
Eftirminnileg máltíð? Augljóslega
engin í New York en ég hef sjaldan
hlegið jafnmikið og fengið jafn-
góðan mat og á BeniHana í London
fyrir nokkrum árum. Frábært kvöld
með ótrúlega skemmtilegu fólki.
Uppáhaldsbúðirnar? French
Connection og G-Star eru í miklu
uppáhaldi hjá mér og ég geri fast-
lega ráð fyrir því að merkja þær inn
á kortið af New York svo ég finni
þær örugglega. Boss og Burberry
verða áreiðanlega líka leitaðar uppi
en ætli það velti ekki á genginu
hversu lengi verður stoppað í þeim
verslunum.
Uppáhaldsbarinn? Ég er lélegasta
barfluga sem um getur. Erlendis
eyði ég kröftum mínum yfir dag-
inn, fer út að borða á kvöldin og
beint heim á hótel og vakna hress
daginn eftir.
Á hvaða tíma árs er best að heim-
sækja borgina? Ég held að New York
sé frábær allan ársins hring. Ég
valdi þó að fara í byrjun nóvember
til að upplifa stemninguna í kring-
um forsetakosningarnar.
Geturðu hugsað þér að búa þar?
Nei, ég vil hvergi annars staðar búa
en á Íslandi. Ég er heimakær í orðs-
ins fyllstu merkingu.
Hvað gerir þú í borginni sem þú
gerir ekki annars? Ertu önnur mann-
eskja í annarri borg? Ég skipti ekki
um ham þegar ég fer í borgarferð.
Helsti munurinn er kannski sá að í
staðinn fyrir að ryksuga, elda og
þvo þvott, geng ég nánast af mér
fæturna, nota kreditkortið meira og
borða mun fleiri steikur en vana-
lega.
Hvað finnst þér markvert að sjá í
borginni? Hvar á ég að byrja?
Ground Zero, útsýnið úr Empire
State byggingunni, Guggenheim-
safnið, Soho, Ellis-eyja og frels-
isstyttan, Times Square og nakti
kúrekinn. Þetta er bara brot af list-
anum.
Hvað tekur þú með þér til ferða-
lagsins? Myndavél, aukakort í
myndavélina, þægileg föt og góða
skó. Þetta er grunnurinn.
Hvaða ferðafélaga myndir þú óska
þér með í ferðina? Af öllum öðrum
ólöstuðum þá er Árni, unnusti
minn, besti ferðafélagi sem hægt er
að hugsa sér. Hann hefur ekki bara
gaman að því að skoða merka staði
og sögu þeirra, hann er líka frábær í
afslöppun og búðarápi. Svo er hann
líka svo fyndinn!
Kolbrún vill upplifa kosningaspennu í Bandaríkjunum í haust
Dreymir um stórborg
Kolbrún Björnsdóttir hef-
ur aldrei heimsótt New
York, engu að síður togar
borgin í hana og er henni
efst í huga þegar hún er
spurð hvaða borg heims-
ins sé í sérstöku uppá-
haldi hjá henni. „Mig hef-
ur lengi dreymt um að
heimsækja New York,“
segir Kolbrún.
Öðruvísi á ferðalagi?
„Helsti munurinn er
kannski sá að í staðinn
fyrir að ryksuga, elda og
þvo þvott, geng ég nán-
ast af mér fæturna, nota
kreditkortið meira og
borða mun fleiri steikur
en vanalega.“
Útsýni úr Empire State Building Kolbrún ætlar sér að virða fyrir sér fagurt útsýnið.
Nakti kúrekinn Hinn
fáklæddi John Burck
spilar á Times Square
gangandi til mikillar
ánægju. Karlmenn
geta leitað uppi Na-
ked cowgirl ef þeim
líst ekki á kauða.
Ellis Island Staðsett í
mynni Hudson flóa í
New York höfn. Þangað
streymdu á sínum tíma
innflytjendur til Banda-
ríkjanna í von um nýtt
og betra líf.
Ferðalög
Umsjónarmenn:
Svanhvít
Ljósbjörg
svanhvit@24stundir.is
Kristjana
Guðbrandsdóttir
dista@24stundir.is
María
Ólafsdóttir
maria@24stundir.is
Veiðikortið veitir nú aðgang að
32 vatnasvæðum vítt og breitt
um landið fyrir aðeins 5000 kr.
Með veiðikortið í höndunum,
ákveður þú hvar og hvenær þú veiðir!
Frí heimsending þegar verslað er beint á www.veidikortid.is
560 Varmahlíð
Klara Jónsdóttir & Sigurður Friðriksson
www.bakkaflot@isladia.is• www.bakkaflot.com
Sími 453 8245 og 899 8245
FERÐAÞJÓNUSTAN BAKKAFLÖT