24 stundir - 27.06.2008, Side 20
20 FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2008 24stundir
Eftir Björn Braga Arnarsson
bjornbragi@24stundir.is
„Þú setur upp prófíl með upplýs-
ingum og segir aðeins frá sjálfum
þér. Þá getur fólk sent þér póst og
spurt hvort það megi koma og gista.
Þú ræður svo að sjálfsögðu hvort þú
vilt hýsa viðkomandi eða ekki,“ seg-
ir Kolbeinn Jónsson, laganemi og
einn af fjölmörgum meðlimum Co-
uchSurfing-tengslanetsins.
Kolbeinn býr með félaga sínum
Svenna í miðbæ Reykjavíkur og
skráðu þeir sig í CouchSurfing síð-
asta sumar. „Þá komu sjö manns til
okkar og svo komu fjórir í vetur.
Við erum með litla kompu hérna
hjá okkur og leyfum fólki að gista
þar á dýnu,“ segir Kolbeinn.
Fá fólk með svipuð áhugamál
Samkvæmt Wikipediu eru með-
limir CouchSurfing rúmlega 500
þúsund og koma frá 226 löndum.
Kolbeinn áætlar að hann fái að
meðaltali einn tölvupóst á dag þar
sem fólk óskar eftir gistingu, en
skiljanlega þarf að velja og hafna.
„Við skoðum prófílana og reynum
að átta okkur á því hvernig fólk
þetta er. Reynum að velja fólk með
svipuð áhugamál og líkan tónlistar-
smekk og svona. Sætar stelpur hafa
líka ákveðið forskot,“ segir hann í
léttum tón.
Hann kveðst eingöngu hafa góða
reynslu af því fólki sem hefur kom-
ið og neitar því að það verði nokk-
urn tímann vandræðalegt að fá blá-
ókunnugan gest á heimilið. „Við
bjóðum þeim bara upp á bjór fyrsta
kvöldið og kíkjum kannski með
þeim á barinn. Sýnum þeim hvern-
ig Íslendingar skemmta sér. En ann-
ars er þetta lið mestmegnis með
sjálfu sér að skoða Reykjavík eða
fara út á land. Maður þarf ekkert að
sjá um það og þetta er alls engin
kvöð,“ segir Kolbeinn.
Safna góðum meðmælum
Þeir Kolbeinn og Svenni hafa
ekki enn farið erlendis og gist á sóf-
um annarra meðlima Couch-
Surfing, en það er þó á döfinni. Þá
kemur sér vel að hafa góð meðmæli
frá fólki sem hefur fengið að gista
hjá þeim.
„Eftir hverja heimsókn gefur fólk
okkur umsögn og segir frá því
hvernig því fannst að gista hjá okk-
ur og hvernig því líkaði við okkur.
Því fleiri jákvæð ummæli sem við
fáum því líklegra er að við fáum
hýsingu þegar við förum út,“ segir
Kolbeinn, en þeir fyrirhuga að fara í
reisu til Suður-Ameríku og Asíu á
næsta ári. Út frá umsögnunum á
prófíl þeirra að dæma má ætla að
þeir verði ekki í nokkrum vanda
með að verða sér úti um svefnpláss
þegar þangað er komið.
CouchSurfing er ódýr og frumlegur kostur fyrir ferðalanga
Fríar gistingar um
gervallan heim
➤ Slóðin á vefsíðuna erwww.couchsurfing.com.
➤ Um þessar mundir eru 92 Ís-lendingar að bjóða upp á
gistingu.
➤ Hægt er að fá sófagistingunæstum hvar sem er í heim-
inum, meira að segja á Gaza-
svæðinu.
COUCHSURFING
CouchSurfing er tengsla-
net fólks sem ferðast um
heiminn og fær að gista á
sófum hvers annars til að
spara góðan pening og
kynnast áhugaverðum
einstaklingum. Kolbeinn
Jónsson hefur hýst fjölda
ferðalanga og hyggur
sjálfur á reisu á næsta ári.
Skipta? Margir myndu vilja
skipta á þessu fátæklega
hengirúmi fyrir Ikeasófann
heima á Íslandi.
Brugðið á
leik Kolbeinn,
hægra megin
á myndinni,
bregður á leik.
Þægindi um land allt
Fossháls 5-9 • Sími 551 5600 • www.utilegumadurinn.is
Polar hjólhýsi
Sérhönnuð fyrir norðlægar slóðir. Evrópskar þrýstibremsur,
galvaníseruð grind, iDC stöðugleikakerfi og ríkulegur staðalbúnaður.
Rockwood fellihýsi
Sérstaklega löguð að íslenskum aðstæðum með galvaníseraðri
grind, fjöðrum fyrir akstur á erfiðum vegum og upphituðum lúxusdýnum.
19˝ LCD
skjár
Séstakur
vínkælir
DVD
spilari
44mm
einangrun
-40 °C
iDC
stöðugleikakerfi
iDC
Evrópskar
þrýstibremsur
Fjöðrun f.
ísl. aðstæður
Vatn tengt
heitt/kalt
CD spilari/
útvarp
Upphitaðar
lúxusdýnur
12 cm
Evrópskar
þrýstibremsur
Sumarg
jöf
Sólar
rafhla
ða,
fortja
ld og
gasgr
ill
fylgir
öllum
fellih
ýsum
Tilbo
ðið g
ildir ú
t júní
Athugið!Sólarrafhlaða,fortjald, TV, DVD& Alde gólfhitakerfifylgir hjólhýsum.Fortjaldatilboðgildir út júní
Bátar í úrvali
Kynntu þér úrvalið af Galeon skemmtibátum, Regal og ChrisCraft
hraðbátum, Galía og Karnic sport- & veiðibátum.